Fréttablaðið - 11.07.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 11.07.2009, Blaðsíða 8
8 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR 1 Hvaða breska blað er sakað um að hafa hlerað síma fjölda frægra einstaklinga? 2 Hvað heitir fiskbúðin á Akureyri? 3 Hvaða verðlaunarithöfundi hefur verið hótað á Facebook? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38 UTANRÍKISMÁL Steingrímur J. Sig- fússon fjármálaráðherra sótti ráðherrafund OECD í París í síð- asta mánuði. Á fundinum voru full- trúar fjörutíu ríkja, þar af þrjátíu OECD-ríkja, sem standa undir áttatíu prósentum af hagkerfi heimsins. Á fundinum lagði Steingrímur til að OECD tæki þátt í almennri endurskoðun á gildum og verð- mætamati sem óumflýjanleg væri eftir þau efnahagslegu áföll sem orðið hefðu í mörgum aðildarríkj- um. Þá var kynnt efnahagsspá OECD fyrir árin 2009 og 2010 auk þess sem gögn tengd efnahags- kreppunni voru lögð fram. - vsp Ráðherra á OECD-fundi: OECD taki þátt í endurskoðun Þarfir íslenskra fjölskyldna eru mismunandi. Þess vegna fæst vinsælasta fjölskyldu- tryggingin í nokkrum útgáfum. Eftir því sem heimilið stækkar og áhugamálin breytast velur þú þá vernd sem hentar þér best innan F plús trygginganna. Þess vegna er F plús vinsælasta fjölskyldutryggingin á Íslandi. Vátryggingafélag Íslands hf. | Ármúla 3 | 108 Reykjavík | Sími 560 5000 | vis.is Vinsælasta íslenska fjölskyldutryggingin DÓMSMÁL Þrítugur karlmaður, Eug- enio Daudo Silva Chipa, var í gær dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hrottafengna nauðgun fyrir hálfum öðrum mánuði. Eugenio gerði sér dælt við konu á bar í miðbænum og bauð henni síðar um nóttina far með sér í leigu- bíl. Hann lét leigubílinn aka þeim að iðnaðarhverfi í Hafnarfirði og þegar þangað var komið réðst hann á konuna í afskekktu húsasundi og kom fram vilja sínum við hana. Konan hlaut töluverða áverka af árásinni, og þykir dómnum ljóst að Eugenio hafi dregið hana um á hárinu og meðal annars barið höfði hennar við vegg. Konan hlaut punktablæðingu í hársverðinum, glóðarauga, mar, bólgur og rispur í andliti, hrufl, fleiður, roða og mar víðs vegar um líkamann og áverka og eymsli á kynfærum. Þá var hún með rusl í hárinu þegar komið var að henni. Eugenio neitaði sök og sagðist hafa haft samræði við konuna með fullu samþykki hennar. Dómnum þótti framburður hans ótrúverð- ugur og reikull og af myndum að dæma yrði auk þess „að telja einkar ósennilegt að ákærði og [konan] hafi valið sér þennan stað til að hafa samræði þegar litið er til aðstæðna á vettvangi, en þær eru einkar óaðlaðandi til slíkra athafna,“ segir í dómnum. Fjölskipaður héraðsdómur dæmir Eugenio jafnframt til að greiða konunni 1,8 milljónir í skaðabætur. - sh Eugenio Daudo Silva Chipa dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi: Nauðgaði konu í húsasundi MIKIL ÁHRIF Við komuna á slysadeild var konan eirðarlaus, fékk grátköst og var óttaslegin, segir í dómi. Hún var í hnipri, með skjálfta, hroll og vöðvaspennu og hafi haft tíð þvaglát. Konan mun áfram sækja tíma hjá sálfræðingi vegna málsins. KÍNA, AP Meira en 400 þúsund manns þurftu að yfirgefa heimili sín eftir að harður jarðskjálfti varð í suðvestanverðu Kína á fimmtu- dag. Hamfarirnar kostuðu einn mann lífið og hundruð manna slös- uðust, þar af nokkrir tugir alvar- lega. Jarðskjálftinn mældist 6 stig og upptök hans voru í Yao‘an-sýslu í Yunnan-héraði. Kínverska frétta- stofan Xinhua fullyrti að 18 þúsund íbúðarhúsa væru gjöreyðilögð og 75 þúsund skemmd. Margir íbúanna lögðust til svefns úti á götu, en aðrir komu sér upp bráðabirgðatjöldum þar sem aðstæður leyfðu. Einhver hluti þeirra sem flúðu úr húsum sínum getur þó snúið aftur, því margir þora ekki annað en að hafast úti við þótt húsin séu heil. Átta eftirskjálftar höfðu riðið yfir í gær, sá stærsti 5,2 stig seint í gær. Jarðskjálftar eru algengir í Yunnan, sem er fjallahérað norð- ur af Taílandi og Búrma. Árið 1988 fórust 930 manns þegar jarð- skjálfti, sem mældist 7,1 stig, skók héraðið. Árið 1970 fórust 15 þúsund manns þegar enn stærri jarð- skjálfti reið þar yfir, en hann mældist 7,7 stig. Stjórnvöld þá reyndu að gera sem minnst úr tjón- inu opinberlega. - gb Stór jarðskjálfti reið yfir sunnan til í Kína á fimmtudag: Þúsundir húsa gjöreyðilagðar ALDRAÐRI KONU BJARGAÐ Fjölmennt björgunarlið var sent á vettvang strax á fimmtudag. NORDICPHOTOS/AFP VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.