Fréttablaðið - 11.07.2009, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 11.07.2009, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 11. júlí 2009 29 Sérstakt rokkabilly-kvöld verður haldið á skemmtistaðnum Q- bar í Ingólfsstræti í kvöld. Hljómsveitin Langi Seli og skuggarn- ir munu leika lifandi tónlist fyrir gesti og því næst mun plötusnúð- urinn Curver þeyta skífum langt inn í nóttina. Rósa Birgitta Ísfeld söngkona er skipuleggjandi kvöldsins og hvetur fólk eindregið til að mæta uppstrílað í anda rokkabilly-tískunnar til að skapa stemningu. „Strákarnir eiga að mæta gelaðir í gallabuxum og stelpurnar í pils- um og með túberað hár í anda Grease,“ segir hún. Skemmtunin hefst klukkan 22.00 og stendur fram á nótt. Aðgangs- eyrir er 1000 krónur. - sm Rokkað fram á nótt Svavar Sigurðsson, einarð- ur baráttumaður gegn eitur- lyfjadjöflinum um árabil, beinir nú sjónum sínum að fjárhagsvanda landsins. Og er þess albúinn að taka við af stjórnvöldum – sem eru við uppgjöf að hans mati. „Já, ég er þess albúinn að taka við þegar þeir hafa gefist upp. Þú sérð hvaða árangri ég hef náð í eitur- lyfjamálunum,“ segir Svavar Sig- urðsson sem hefur nú í rúm þret- tán ár barist með oddi og egg gegn fíkniefnafjandanum – með góðum árangri að sögn. Svavar segir mik- inn uppgjafartón kominn í ráða- menn og telur þá á hinum mestu villigötum í ráðaleysi sínu. Þeir einblíni á afleiðinguna í stað orsak- arinnar. Og meðan svo er komast menn hvorki lönd né strönd. Spurður hvaða ráð hann sjálf- ur hafi í erminni vitnar Svavar til spádóma Nostradamusar, sem byggjast á Jesajabók Biblíunnar. Svavar varð fyrir vitrun fyrir fimmtíu árum. Hann er á vegum Drottins. „Þetta er stórkostlegt tæki sem ég hef í höndunum. Ég spyr andann og svörin koma í skynjunum.“ Svavar segir svo frá því að hann hafi nú talað við stjórnarráðið, ráðuneytin, for- seta Alþingis, ritara forseta, sent erindi – einblöðung þar sem segir af spádómum Nostradamusar – í öll sendiráð á Íslandi, öll sendiráð Íslands erlendis og sé nú að vinna í að setja sig í samband við Hvíta húsið. „Ég hef talað við 34 þing- menn á tveimur dögum. Og svo 14 nokkru seinna. Hringi bara í gsm-símana. Mest hef ég talað við Tryggva Herbertsson. Ég hef álit á honum. Ég hef bæði hringt í hann, sent honum sms-skeyti og tölvupóst. Ég myndi vilja vinna með þeim og býðst til þess að koma á þeirra fund. En ég veit að ég fæ ekki að komast að fyrr en þeir hafa gefist upp. Og það er uppgjafartónn í dag.“ Svavar er þegar landsþekktur fyrir baráttu sína gegn fíkniefn- um og hefur orðið verulega ágengt í þeim efnum. Hann hefur fengið frá fyrirtækjum og hinu opinbera 150 milljónir sem hann hefur veitt í baráttuna, til dæmis keypt aug- lýsingar og gegnumlýsingarbúnað fyrir tollara. Einkum hefur hann lagt upp úr því að halda Vest- mannaeyjum hreinum. Þegar spurður um ástæður harðrar mót- stöðu hans við eiturlyf, sem hann hefur aldrei prófað, segir hann: „Eigum við ekki að segja að Drott- inn sé á móti þeim. Hann fékk mig til að standa í þessu. Ég hef verið í fimmtíu ára þjálfun. Þetta er köll- un. Þetta hefur verið erfitt. Og ef þú myndir verða fyrir þessu eins og ég fyrir fimmtíu árum mynd- ir þú detta á gólfið, hrópa á hjálp og verða keyrður inni við sundin blá. Mikill sársauki. En það hefur dregið úr honum – ég hef verið að herðast og herðast.“ Svavar ein- beitir sér nú að skuldastöðunni því að í fjárleysi er vonlaust að standa í baráttunni gegn dópinu. jakob@frettabladid.is Antídóp-Svavar klár í slaginn SVAVAR SIGURÐSSON. Hefur á þrettán og hálfu ári safnað 150 milljónum í baráttu sinni gegn eiturlyfjum. Ef ekki tekst að vinna bug á bágri fjárhagsstöðu er hætt við að sú barátta fari fyrir lítið. Hér er mynd af gegnumlýsingarbúnaði. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Eins og kom fram í fjölmiðlum nýverið blæs Páll Óskar Hjálmtýs- son til mikillar Michael Jackson- veislu á Nasa í kvöld þar sem hann tekur mörg af þekktustu lögum poppguðsins ásamt Jagúar og þeim Seth Sharp og Alan Jones. Þá mun Yasmine Olsen ásamt fríðum flokki dansara endurskapa bæði Thriller og Smooth Criminal og Páll mun síðan þeyta Jackson-skífum alla nóttina. Allur ágóði tónleikanna rennur til Barnaspítala Hringsins en bæði tónlistarmenn og tækni- menn gefa vinnu sína. Fréttin um þetta kvöld virðist hafa hreyft við Jackson-aðdáend- um um allt Ísland því þeir hafa verið duglegir við að hringja í Páll og bjóða fram aðstoð sína. „Og svo eru margir sem hafa komið með svokölluð „bootlegg“-upptök- ur og mix sem hafa aldrei heyrst áður,“ segir Páll en „bootlegg“ eru ólöglegar upptökur af tónleikum. Páll hyggst spila þessar upptök- ur þannig að gestir og gangandi fá að heyra tónlistina á algjörlega nýjum nótum. Páll er ekki í vafa um að arf- leifð Michaels eigi eftir standast tímans tönn og spáir því að hann eigi eftir að verða hæst launaði látni listamaðurinn, slái þar sjálf- um Elvis Presley við. „Annars er maður bara uppgefinn eftir æfing- arnar með Jagúar, ég verð bara að finna tíma á sunnudaginn til að hvíla mig,“ segir Páll. Veislan hefst klukkan 23.00 og er, eins og áður segir, á Nasa. - fgg Jackson-aðdáendur vilja hjálpa Palla ÆSTIR AÐDÁENDUR Páll Óskar hefur fengið símtöl og tölvupósta frá æstum Jackson-aðdáendum sem vilja ólmir leggja sitt af mörkum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.