Fréttablaðið - 11.07.2009, Blaðsíða 6
6 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR
FR IGG K E EN NEWPORT H2 K E EN CORONADO
Léttur fl ísfatnaður úr Polartec® Power Stretch®,
efni sem teygist á fjóra vegu og heldur vægum
hita á líkamanum. Fæst líka í svörtu.
Flottir barnasandalar með táavörn, frönskum
rennilás og mjög góðu gripi. Fæst líka í appelsínugulu.
Barna strigaskór með góðum sóla. Með kaupum á
Coronado skónum styrkir þú National Wildlife Federation
sem vinnur að verndun dýralífs í heiminum.
bolur og buxur barnasandalar barna strigaskór
Verð bolur: 7.800 kr.
Verð buxur: 6.800 kr.
Verð: 6.200 kr. Verð: 6.500 kr.
SJÁVARÚTVEGSMÁL Sjávarútvegs-
ráðherra tilkynnti í gær átta
prósenta samdrátt í aflamarki á
þorski. Heimilt verður að veiða
150.000 tonn á næsta fiskveiðiári,
en veiða mátti 162.500 tonn á yfir-
standandi fiskveiðiári.
Þorskafli næsta fiskveiðiárs
miðast við tuttugu prósent afla úr
viðmiðunarstofninum, og ætti því
ekki að koma á óvart, segir Jón
Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra.
Aflamark ýsu verður skorið
niður um þriðjung; heimilt verð-
ur að veiða 63 þúsund tonn, sam-
anborið við 93 þúsund tonn á yfir-
standandi fiskveiðiári.
Ýsukvótinn er þó ekki skorinn
jafn mikið niður og Hafrannsókna-
stofnunin mælti með, en stofnun-
in taldi ekki heppilegt að veiða
meira en 57 þúsund tonn. Vísað er
til þess í rökstuðningi ráðherra að
ýsustofninn hafi náð óvenju mikilli
stærð upp úr aldamótum, en stofn-
inn fari nú minnkandi.
Heimilt verður að veiða um
fjórðungi minni ufsa, fimmtíu
þúsund tonn samanborið við 65
þúsund tonn nú. Aflamark á aðrar
tegundir mun í flestum tilvikum
standa í stað eða minnka lítillega.
„Þetta er mjög í takt við það sem
mátti búast við,“ segir Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna (LÍÚ). Hann segir það þó
skoðun LÍÚ að óþarfi hafi verið
að lækka þorskkvótann í 150 þús-
und tonn. Heppilegra hefði verið
að fara ekki neðar en í 160 þúsund
tonn.
Sjávarútvegsráðherra fór að ráð-
gjöf Hafrannsóknastofnunarinn-
ar um aflamark á þorski, en í fjöl-
mörgum tilvikum ákvað ráðherra
að leyfa meiri veiði en ráðlegg-
ingar stofnunarinnar gerðu ráð
fyrir. Hann segir þar einkum um
að ræða smærri tegundir þar sem
meiri óvissa sé um stofnstærð.
Á næstunni verður skoðað
hvernig nýta megi þær laga-
heimildir sem þegar eru til staðar,
eða setja ný lög, til að styrkja full-
vinnslu aflans hér á landi, segir
Jón. Þar skipti miklu að tryggja
íslenskum fiskvinnslum aðgang að
fiski, í stað þess að hann sé seldur
óunninn úr landi.
Þá segist Jón íhuga að leggja
fram lagafrumvörp sem taki á
færslu aflaheimilda milli ára, og
tilfærslum milli tegunda.
brjann@frettabladid.is
Þorskkvóti skertur
um 12 þúsund tonn
Heimilt verður að veiða 150 þúsund tonn af þorski á komandi fiskveiðiári, átta
prósentum minna en á yfirstandandi fiskveiðiári. Þriðjungs samdráttur verður
á ýsukvóta. Í takti við það sem við var að búast segir framkvæmdastjóri LÍÚ.
FRIÐRIK J. ARN-
GRÍMSSON
JÓN BJARNASON
SKERÐING Þorskkvóti næsta árs verður um átta prósentum minni en á yfirstandandi
fiskveiðiári, en aflamark ýsu skerðist um þriðjung. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
FRAKKLAND, AP Neðri deild
franska þingsins tók á föstudag-
inn til umfjöllunar tillögu sem
gerir fleiri verslunum kleift að
hafa opið á sunnudögum.
Nicolas Sarkozy forseti hefur
barist fyrir sveigjanlegri vinnu-
löggjöf í þeim tilgangi að efla
hagvöxt og gera landið vænlegra
fyrir ferðamenn. Líklegt þykir að
frumvarpið nái fram að ganga,
þrátt fyrir að það hafi mætt and-
stöðu í þinginu. - þeb
Frumvarp í franska þinginu:
Vilja hafa opið
á sunnudögum
Á Ísland að hefja aðildarvið-
ræður við Evrópusambandið?
Já 48,1%
Nei 51,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er eftirsjá að Hótel Valhöll á
Þingvöllum?
Segðu þína skoðun á visir.is
KOSTARÍKA, AP Vonir um að sættir
tækjust í deilunni um stjórnar-
byltingu í Hondúras dvínuðu
þegar fundur andstæðra fylkinga
skilaði engum árangri.
Þeir Manuel Zelaya forseti,
sem hrakinn var úr landi í lok
júní, og Roberto Micheletti, sem
tók við af honum, héldu báðir til
Kostaríku á fimmtudag, en hitt-
ust ekki á sameiginlegum fundi
heldur ræddu sitt í hvoru lagi við
Oscar Arias, forseta Kostaríku,
sem reyndi að miðla málum.
„Við gerum okkur engar grill-
ur,“ sagði Arias að fundunum
loknum. „Þetta getur tekið lengri
tíma en við héldum.“ - gb
Viðræður um Hondúras:
Sáttavon dvínar
BÚRMA, AP Vitnaleiðslum í máli
Nóbelsverðlaunahafans Aung San
Suu Kyi frá Búrma lauk í gær.
Vitni í málinu héldu því fram að
engin lög hefðu verið brotin enda
byggði kæran á lögum sem voru
afnumin fyrir 21 ári.
Suu Kyi er sökuð um að hafa
brotið lög þegar hún hýsti amer-
ískan ríkisborga sem mun hafa
synt yfir vatn að heimili hennar.
Suu Kyi hefur setið í stofu-
fangelsi á heimili sínu í fjórtán af
síðustu tuttugu árum þegar hún
bar sigur úr býtum í kosningum
í landinu. Suu Kyi gæti átt yfir
höfði sér fimm ára fangelsi ef
hún er fundin sek. - bþa
Aung San Suu Kyi fyrir rétti:
Vitni sögðu lög
ekki brotin
FÓLK Leikskólinn Laufásborg
hefur ákveðið að gerast vina-
leikskóli barnaheimilis í Aneho
í Tógó. Íslenska styrktarfélagið
Sóley & félagar hefur um nokkurt
skeið styrkt barnaheimilið og
aðra starfsemi systur Victo í
Tógó.
Haldið var upp á þetta í Hljóm-
skálagarðinum í gær. Börnin á
Laufásborg fengu mangóís frá
Sólveigu Eiríksdóttur og tónlistar-
konan Magga Stína tók lagið fyrir
þau. Börnin fengu líka að smakka
vesturafrískan drykk sem heitir
bissap, en sá drykkur er vinsæll
hjá börnunum í vinaskóla þeirra.
- þeb
Laufásborg hélt hátíð:
Vinasamband
við börn í Tógó
Í HLJÓMSKÁLAGARÐINUM Viðstaddir
fögnuðu vinasambandi við barna-
heimilið í Aneho í Tógó. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍTALÍA, AP Barack Obama Banda-
ríkjaforseti sagði við lok G8-fund-
arins á Ítalíu í gær að líklega hefði
tekist að afstýra efnahagshruni í
heiminum, sem hefði haft skelfi-
legar afleiðingar. Enn væri þó
langt í varanlegan bata.
„Kæruleysi fárra kynti undir
kreppu sem hefur farið um allan
heiminn,“ sagði Obama og hvatti
leiðtoga heims til að standa sam-
einaðir að björgunaraðgerðum,
sem fela bæði í sér strangar regl-
ur um fjármál og auknar fjárveit-
ingar til að koma efnahagslífinu
af stað.
Strax að loknum G8-fundinum
hélt Obama á fund Benedikts
XVI. páfa, en í dag ætlar hann að
skreppa til Afríku, nánar tiltekið
til Gana þar sem hann skoðar
kastalann á Höfðaströnd.
Heimsóknin hefur táknrænt
gildi fyrir Obama, því í þessum
kastala höfðu Bretar höfuð stöðvar
þrælaverslunar sinnar fyrr á
öldum.
Obama hefur haft í nógu að snú-
ast í vikunni, allt frá því hann hélt
til Moskvu á mánudag að hitta
bæði Dmitrí Medvedev forseta og
Vladimír Pútín forsætisráðherra.
Á leiðtogafundinum í L‘Aquila
á Ítalíu í gær samþykktu G8-
ríkin meðal annars að veita tut-
tugu milljörðum Bandaríkjadala
til stuðnings bændum í fátækum
ríkjum, svo þeir gætu aukið fram-
leiðslu sína. - gb
Barack Obama heldur til Afríku að loknum leiðtogafundi G8-ríkjanna á Ítalíu:
Segir efnahagshruni afstýrt
BARACK OBAMA Lauk Ítalíuferðinni með
heimsókn til páfa. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LANDBÚNAÐUR Nýjar íslenskar
Premier-kartöflur komu á mark-
að á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Gera má ráð fyrir að um þrjú
tonn komi í fyrstu sendingu.
„Fyrsta uppskera sumarsins
er óvenju snemma á ferð í ár eða
rúmri viku fyrr en venjulega. Það
bíða margir spenntir eftir því að
fá glænýjar íslenskar kartöflur
á diskinn sinn og því selst fyrsta
sending jafnan fljótt upp,“ segir
Þórhallur Bjarnason, formaður
Sambands garðyrkjubænda.
Hefð hefur myndast fyrir því
að Úlfar Eysteinsson, matreiðslu-
meistari á Þremur frökkum, bjóði
til sín landsþekktum áhugamönn-
um um íslensku kartöfluna í
rauðsprettu og glænýjar íslensk-
ar kartöflur. - vsp
Kartöfluuppskeran snemma:
Þrjú tonn í
fyrstu sendingu
ÞRÍR FRAKKAR Jón Bjarnason land-
búnaðarráðherra og Bjarni Jónsson,
hjá Sambandi garðyrkjubænda, snæða
rauðsprettu og nýjar kartöflur.
KJÖRKASSINN