Fréttablaðið - 11.07.2009, Qupperneq 4
4 11. júlí 2009 LAUGARDAGUR
BRUNI Hið fornfræga Hótel Valhöll
á Þingvöllum brann til grunna í
gær. Eldurinn hófst á fimmta tím-
anum og slökkvistarf var fram
eftir kvöldi. Átta slökkviliðsbílar
voru á staðnum, frá slökkviliðinu
á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og
Hveragerði. Húsið er gjörónýtt.
„Þetta fuðraði bara upp. Mest allt
bendir til þess að eldsupptök séu úr
reykháf í eldhúsinu,“ segir Úlfar
Þórðarson sem tók við rekstri
Hótels Valhallar í maí. Hann segir
mildi að ekki hafi verið alvarleg
slys á fólki.
„Hótelið var rýmt um leið. Þetta
gerðist allt mjög hratt og húsið
fylltist fljótlega af reyk,“ segir
Úlfar. Einn starfsmanna hans
þurfti aðhlynningu vegna reyk-
eitrunar og var fluttur á sjúkra-
hús í Reykjavík. Fimm gestir voru
á hótelinu þegar eldurinn kvikn-
aði en búist var við margmenni
um kvöldið þar sem blása átti til
grillveislu með tónleikum Helga
Björnssonar.
Gestir í matsal Valhallar létu sér
fátt um finnast þegar brunabjalla
fór í gang, segir Kristján E. Gunn-
arsson, forstjóri og gestur á staðn-
um. Hann segir að eftir að bjallan
hafi hringt öðru sinni hafi húsið
loks verið rýmt.
Að minnsta kosti 30 mínútur
liðu frá því húsið var rýmt þar
til slökkvilið kom á svæðið. Sam-
kvæmt upplýsingum frá slökkviliði
er sjaldnast hægt að ráða við eld
í timburhúsi eftir að hann fær að
geisa óheftur í svo langan tíma.
Stór málverk eftir Gunnlaug
Scheving og Jóhannes Kjarval
prýddu eitt sinn veggi hótelsins.
Þau voru hins vegar ekki seld
með húsinu þegar nýir eigendur
tóku við því nýverið. Starfsmönn-
um tókst að bjarga einu málverki
eftir Svein Björnsson og öðru eftir
óþekktan málara, segir Úlfar.
Hótel Valhöll var byggt árið
1898 og var árið 1929 flutt á þann
stað þar sem það stóð til loka. Að
flutningum loknum var hafist
handa við stórfelldar breytingar
á húsinu eftir teikningum Guð-
jóns Samúelssonar, húsameistara
ríkisins. Byggt var við það og því
breytt fyrir Alþingishátíðina á
Þing völlum árið 1930. Í upphaf-
legri mynd var Valhöll bárujárns-
klætt timburhús, um 136 fermetrar
að grunnfleti. Húsið hefur verið í
eigu ríkisins frá árinu 2002.
Örstutt frá hótelinu var áður
bústaður Bjarna Benediktssonar,
þáverandi forsætisráðherra. Það
hús brann 10. júlí 1970, nákvæm-
lega 39 árum fyrir brunann í Val-
höll í gær. Bjarni lést í eldsvoð-
anum ásamt konu sinni Sigríði
Björnsdóttur og barnabarni.
vidirp@frettabladid.is
fyrir alla sem
www.gottimatinn.is
góðir með grillmatnum
– Tilbúnir til notkunar! Þarf í mesta lagi að setja þá í skál.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
0
9
7
fituminnstagrillsósan!
loksins fáanlegiraftur!
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Ósló
París
Róm
Stokkhólmur
30°
21°
21°
19°
20°
23°
20°
21°
20°
21°
27°
21°
27°
31°
18°
22°
29°
20°
16
17
15
17
17
14
16
14
14
13
14
Á MORGUN
8-13 m/s NV- og austan
Vatnajökuls annars hægari
Á MORGUN
3-10 m/s, stífastur austan til
21
193
2
3
3
3
4
2
3
5
6
2
1119
12 12
8
14
10 10
8
12
GÓÐVIÐRI
Í dag verður hæg
austlæg eða breytileg
átt. Hálfskýjað eða
léttskýjað og hætt við
þokulofti með strönd-
um norðan og austan
til. Hitinn í dag verður
á bilinu 14-21 stig,
hlýjast til landsins á
Suður- og Vesturlandi.
Á morgun verður skýj-
að austan til á landinu
með kólnandi veðri
en vestan til verður
bjartviðri með hiti um
eða yfi r 20 stigum til
landsins.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Valhöll brann til grunna
Hótel Valhöll varð alelda í gær. Húsið hefur staðið á þessum stað frá Alþingishátíðinni 1930. Hótelið var
slysagildra, að sögn arkitekts. Lagt var til að húsið yrði rifið vegna lélegs ástands þess í skýrslu frá 2006.
STÓRBRUNI Á ÞINGVÖLLUM
HRIKALEG EYÐILEGGING Slökkviliðsmenn athafna sig í rústun-
um. Í bakgrunni stendur Þingvallabærinn. FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR
VERÐMÆTUM BJARGAÐ Hótelstarfsmenn bera málverk eftir
Svein Björnsson á brott. FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR
EINBEITTIR AÐ STÖRFUM Slökkviliðsmenn unnu hörðum
höndum en fengu engum vörnum við komið.FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR
RÚSTIR EINAR Skelfileg sjón blasir við þar sem Hótel Valhöll stóð áður eftir eldsvoða í gær. Eldur varð laus í húsinu síð-
degis í gær og varð húsið alelda á um hálfri klukkustund. Eldurinn kviknaði á fimmta tímanum og sat fólk að snæðingi í
borðsalnum þegar eldurinn kom upp í eldhúsi hótelsins. FRÉTTABLAÐIÐ ARNÞÓR
GENGIÐ 10.07.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
232,9003
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
129,08 129,7
209,27 210,29
179,39 180,39
24,087 24,227
19,755 19,871
118,29 118,95
1,3912 1,3994
199,56 200,74
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
„Þetta lítur hrikalega út. Húsið
er brunnið til ösku,“ sagði Helgi
Björnsson tónlistarmaður þegar
blaðamaður
talaði við hann
síðdegis í gær.
Helgi átti
ásamt hljóm-
sveit að halda
tónleika á
föstudögum í
allt sumar.
„Þetta leit
rosalega vel út.
Hér streymdi
fólk að og það var æðislegt veður.
Allt stefndi í yndislegt kvöld,“ segir
Helgi en hljómsveitin átti að spila á
tónleikum um kvöldið.
„Þetta var eins og bálköstur
þegar ég kom um hálffimm. Mjög
sorglegt er að missa þetta frábæra
hús.“ .
V ISTU SVARIÐ?
ÁTTI AÐ SPILA Á TÓN-
LEIKUM UM KVÖLDIÐ
„Það skortir enn töluvert upp á
að húsnæðið uppfylli gildandi
kröfur um brunavarnir og gera
þyrfti brunatæknilega hönnun á
húsnæðinu sem og úttektir á öllum
kerfum ef rekstur þess á að halda
áfram í núverandi mynd.“
Þetta sagði í skýrslu sem unnin
var af Þorsteini Gunnarssyni
arkitekt og Ríkharði Kristjánssyni
verkfræðingi árið 2006.
Þar kemur fram að nýjustu hlutar
hússins séu um aldarfjórðungs
gamlir og standist ekki lengur
nútímakröfur. Lagt var til að ann-
aðhvort yrði húsið rifið og nýtt hús
byggt eða framhúsið yrði varðveitt
og restin rifin. Ekkert var hins vegar
gert og allar aðgerðir sem grípa átti
til dagaði uppi.
„Það kemur fram í skýrslunni
að þetta er slysagildra þannig að
fyrst eldur varð laus var ég ekki
hissa á þessum endalokum,“ segir
Þorsteinn Gunnarsson arkitekt.
SVÖRT SKÝRSLA UM
HÓTEL VALHÖLL
HELGI
BJÖRNSSON