Fréttablaðið - 11.07.2009, Page 27
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Á laugardagsmorgun ætla ég að
hefja daginn á því að búa til lumm-
ur handa dóttur minni í tilefni þess
að þetta er fyrsti dagurinn í sumar-
fríi okkar beggja,“ segir Þuríður
Helga Kristjánsdóttir, verkefna-
stjóri hjá Norræna húsinu og eig-
andi kaffihússins Tíu dropa.
Næst á helgardagskrá Þuríðar er
að kíkja á matjurtagarð sem hún
og systir hennar rækta í Skamma-
dal í Mosfellssveit. „Þetta er fyrsta
sumarið sem við erum með slíkan
garð,“ segir hún glaðlega. Kærasti
systur hennar var með slíkan garð
í fyrra, sem varð til þess að Þuríð-
ur ræktar nú kartöflur, grænkál,
rófur og fleira á um hundrað fer-
metra spildu. „Salatið sprettur
svo vel að við höfum varla undan
að borða það. Við höfum til dæmis
tvisvar í þessari viku haft aðeins
salat í matinn,“ segir hún hlæj-
andi. Mikið verk er fyrir höndum
í dag því að sögn Þuríðar er allt á
kafi í arfa.
Til að slaka á eftir átök garð-
yrkjustarfanna ætlar Þuríður
Helga að hitta systur sínar í
gróðurhúsi Norræna hússins og
gæða sér á jarðarberjum, súkku-
laði og kampavíni á pallinum.
Gróðurhúsið er rekið sem kaffi-
hús og ber heitið Kaffi Hvönn.
„Útsýnið er alveg frábært úr
gróðurhúsinu enda sést til allra
átta. Hér er útsýni yfir mýrina og
Þingholtin og hægt er að fylgjast
með fuglalífinu í mýrinni,“ segir
Þuríður dreymin. Í Kaffi Hvönn
er boðið upp á ljúffengan ís frá
Holtaseli, tertur, sörur og makk-
arónur. Auk þess má nefna að þar
fæst ýmislegt úr matjurtagarði
Norræna hússins, þar sem rækt-
aðar eru íslenskar matjurtir og
kryddplöntur.
Um kvöldið heldur Þuríður í
matarboð hjá systur sinni Sól-
veigu. „Hún er mjög frumlegur
og skemmtilegur kokkur. Þar
sem hún er grænmetisæta verður
örugglega hráefni úr Skammadal
á boðstólum,“ segir Þuríður og
hlakkar til.
Sunnudagurinn fer að stórum
hluta í bílferð norður á Akur-
eyri en Þuríður er ættuð þaðan.
„Mér finnst rosalega gaman að
keyra norður. Við erum dugleg
að stoppa á leiðinni og fá okkur
nesti,“ segir hún. Tveir nestisstað-
ir eru í uppáhaldi, annar í Paradís
í Borgarfirði sem er fallegt rjóður
í skóginum og hinn í fallegu rjóðri
í Vatnsfirði sem er að finna rétt
utan við þjóðveginn. Þannig reyn-
ir fjölskyldan eftir fremsta megni
að komast hjá því að stoppa í yfir-
fullum vegasjoppum.
„Svo býst ég við nokkurs konar
smáu ættarmóti á sunnudags-
kvöldið þegar við komum norð-
ur,“ segir Þuríður, sem ætlar að
eiga góðar stundir með sínu fólki í
sumarhúsi fjölskyldunnar á Hjalt-
eyri við Eyjafjörð.
solveig@frettabladid.is
Reytir arfa í Skammadal
Þuríður Helga Kristjánsdóttir verkefnastjóri hjá Norræna húsinu hefur sumarfrí sitt í dag en hefur margt
á prjónunum. Helst ber að nefna matjurtarækt, slökun í gróðurhúsi og bílferð á Norðurland.
Þuríður Helga í gróðurhúsi Norræna hússins þar sem rekið er kaffihúsið Kaffi Hvönn. Þar má til dæmis gæða sér á glænýjum
radísum sem ræktaðar eru í Vatnsmýrinni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GÖNGUVIKA stendur yfir á Akureyri og í Eyjafirði
fram á sunnudag. Þar eru í boði göngur bæði fyrir
meðaljóninn og einnig þá sem hafa krafta í lengri og
erfiðari göngur. www.visitakureyri.is
•
•
•
•
•
•
Austurhrauni 3
210 Garðabær
S. 533 3805
Mikið úrval af
Seafolly sundfatnaði
í stærðum 8 - 18
Dúnmjúkar
BRÚÐARGJAFIR
Laugavegi 176
Sími 533 2220
www.lindesign.is
Við hjá Lín Design erum í essinu þegar kemur
að brúðkaupsgjöfum. Vörulína okkar er hönnuð
á Íslandi þar sem íslensk náttúra spilar stórt
hlutverk. Allt okkar efni er sérvalið svo úr verð-
ur vara sem gefur mýkt og hlýju.
Brúðhjón sem eru með gjafalista hjá
Lín Design fá gjöf frá versluninni
ef keypt er af listanum.
Hlý og persónuleg þjónusta