Fréttablaðið - 11.07.2009, Qupperneq 34
11. júlí 2009 LAUGARDAGUR8
DNV is unique. With us, you are
constantly given challenges in your
area of expertise and the opportunity
to make an impact beyond business.
Det Norske Veritas
Skipa- eða Véltækni/
Verkfræðingur
Det Norske Veritas (DNV) á Íslandi óskar eftir að ráða verk- eða
tæknifræðing á skipa eða vélasviði til eftirlitsstarfa.
Starfið felur aðallega í sér eftirlit með skipum, sem flokkuð eru hjá
DNV, en einnig vottun og úttektir á öðrum sviðum.
Eftirlitsmaðurinn kemur til með að starfa í afar krefjandi starfs-
umhverfi þar sem lykilatriði er fagleg vinnubrögð og þjónustulipurð.
Þjálfun fer fram innan fyrirtækisins og verður reynsla viðkomandi
starfsmanns höfð til hliðsjónar við skipulagningu þjálfunarinnar.
Þjálfunin er bæði í formi starfsþjálfunar og námskeiða. Starfinu og
þjálfuninni fylgja ferðalög og dvöl erlendis í einhvern tíma.
Umsækjandi þarf að vera menntaður verk- eða tæknifræðingur á skipa-
eða vélasviði og hafa þekkingu á skipum. Umsækjandi þarf að geta
unnið sveigjanlegan vinnutíma, geta unnið sjálfstætt og reikna með
ferðalögum bæði innanlands og erlendis. Áhersla er lögð á þjónustu-
lipurð, samstarfshæfileika, þægilega framkomu, trúnað og faglegan
metnað. Umsækjandi þarf að hafa góða ensku kunnáttu bæði í rituðu
og töluðu máli, þar sem enska er aðal tungumál innan DNV, einnig er
kostur að hafa gott vald á Norðurlandamáli.
Við bjóðum upp á spennandi starf, sem gefur mikla möguleika á
starfsframa í alþjóðlegu umhverfi hjá fyrirtæki sem er leiðandi á sínu
sviði. Upplýsingar um DNV er að finna á www.dnv.com.
Umsóknarfrestur er til og með 24. Júlí nk. Gengið verður frá ráðningu
í starfið fljótlega. Umsóknum skal skilað á ensku og verða öll gögn
meðhöndluð sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Herbert í síma 5515150 eða á herbert.bjarna-
son@dnv.com
Vinsamlegast sendið umsóknir og starfsferilskrá á herbert.bjarnason@
dnv.com eða á:
Det Norske Veritas
Fjarðargata 13-15
220 Hafnarfjörður
merkt “Starfsumsókn”
Det Norske Veritas (DNV) is a global provider of services for managing risk. Founded in 1864, DNV is an
independent foundation with the purpose of safeguarding life, property and the environment. DNV offers a
truly international environment, comprising 300 offices in 100 countries, with 8,500 employees.
www.dnv.com/careers
MÚRARAR OG PÍPULAGNINGA-
MENN ÓSKAST:
Nesbyggð ehf óskar eftir að ráða múrara og pípulagninga-
menn Þurfa að geta unnið sjálfstætt. Vinnustaður
Reykjanesbær og Snæfellsnes. Umsóknum sé skilað á
heimasíðu Nesbyggðar: www.nesbyggd.is
Sé óskað nánari upplýsinga veitir Páll þær
í síma 840-6100 milli kl 10 og 12 á virkum dögum.