Fréttablaðið - 29.07.2009, Side 2

Fréttablaðið - 29.07.2009, Side 2
2 29. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR Sigurjón, eruði óttalegar Kanamellur? „Já, í þessu ástandi höfum við látið plata okkur í hórdóm af Einari Bárðarsyni.“ Tvíhöfði, skipaður Sigurjóni Kjartanssyni og Jóni Gnarr, verður á útvarpsstöðinni Kananum í vetur. Kaninn er í eigu Einars Bárðarsonar athafnamanns. „Ástandið“ var það kallað þegar ungar dömur létu ginnast af hermönnum. LÖGREGLUMÁL Tveir menn um tví- tugt voru handteknir í Leifsstöð eftir hádegi í gær við komuna frá Malaga á Spáni. Þeir eru grunað- ir um að tengjast stórfelldum fjár- svikum og skjalafalsi gagnvart fyr- irtækjaskrá og Íbúðalánasjóði. Fyrir eru tveir menn, fæddir 1989 og 1990, í haldi vegna máls- ins. Þeir voru handteknir á mið- vikudaginn fyrir viku og úrskurð- aðir í gæsluvarðhald. Þar hafa þeir setið í einangrun. Gæsluvarðhald yfir öðrum þeirra var framlengt um viku í gær, og hefur hann kært þann úrskurð. Varðhald yfir hinum rennur út á morgun. Svik mannanna voru afar úthugsuð og flókin. Þeir tóku yfir stjórn tveggja hlutafélaga með því að falsa tilkynningar um breyt- ingar á stjórnum og breytta pró- kúruhafa til fyrirtækjaskrár. Upp komst um mennina þegar þeir reyndu að leika sama leik með þriðja félagið. Í millitíðinni höfðu þeir fals- að kaupsamninga að fasteignum félaganna, tekið lán fyrir kaup- um á þeim hjá Íbúðalánasjóði og stungið fénu undan. Svikin nema minnst fimmtíu milljónum. Einar Tryggvason, fulltrúi hjá efnahagsbrotadeild Ríkislög- reglustjóra, staðfestir að menn- irnir tveir hafi verið handteknir í gær. Ákveðið verður í dag hvort krafist verði gæsluvarðhalds yfir þeim. Einar útilokar ekki frekari handtökur. - sh Tveir bætast í hóp grunaðra í stórfelldu fjársvika- og blekkingarmáli: Tveir teknir við komuna frá Malaga LEIFSSTÖÐ Setið var fyrir mönnunum í Leifsstöð og þeir teknir höndum. LÖGREGLUMÁL Lögreglan tók fimmtán ára pilt fyrir ölvunar- akstur um helgina. Hann hafði tekið bíl fjölskyldumeðlims í óleyfi og farið á rúntinn ásamt fjórum vinum sínum á svipuðu reki. Ökuferðinni lauk þegar pilt- urinn missti stjórn á bílnum á fjölfarinni umferðargötu og ók á grindverk. Meiðsli ökumannsins og farþega hans eru talin minni- háttar. Þegar lögregla tók piltinn tali eftir óhappið kom í ljós að hann var ölvaður og of ungur til að hafa öðlast ökuréttindi. - sh Ökuferð endaði illa: 15 ára ók fullur á grindverk FERÐIR „Það gengur mjög vel,“ segir Þrúður Sjöfn Sigurðardótt- ir, annar eigenda veitingastaðar- ins Caruso, um nýtt útibú stað- arins í Torrevi- eja á Spáni sem opnað var í vor. Þrúður og eig- inmaður henn- ar, José Garcia, reka Caruso og höfðu hugsað um að opna stað á Spáni frá síð- asta hausti en margir álitu þau djörf að hugsa um útrás rétt eftir að kreppan skall á hér á Íslandi. „Okkur langaði bara að prófa að opna stað þarna.“ Þrúður segir að ævintýraþráin ráði því að maður frá Hondúras, íslensk kona og veitingastaður á Spáni eigi saman. - mmf / sjá Allt Veitingahúsið Caruso í útrás: Spænski staður- inn gengur vel BANDARÍKIN, AP Lögreglan í Bandaríkjunum segir að lækn- ir Michaels Jackson hafi gefið honum í æð öflugt lyf, propof- ol, sem venjulega er notað til svæfinga á sjúkrahúsum. Þetta lyf hafi líklega orðið honum að bana. Læknirinn, Conrad Murray, hafði verið einkalæknir Jack- sons síðan í maí. Leitað var á læknastofu hans í gær. Talið er að Jackson hafi notað þetta lyf í tvö ár. Verið er að kanna hvaða aðrir læknar hafa gefið honum það. Svo virðist sem lyfið hafi verið gefið honum í æð gegn- um slöngu á kvöldin, þegar hann lagðist til svefns, en svo hafi lyfjagjöfin verið stöðvuð á morgnana þegar Jackson hafi viljað vakna. - gb Rannsókn á dauða Jacksons: Svæfingarlyf talið banamein FYRIR UTAN LÆKNASTOFU MURRAYS Lögreglan leitaði á læknastofu hans í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FÓLK Gunnlaugur Júlíusson hlaup- ari safnaði rúmlega 1,3 milljónum til styrktar Grensásdeild á hlaupi sínu frá Reykjavík til Akureyr- ar á dögunum. Hann afhenti féð í gær og voru það Hollvinasamtök Grensásdeildar og Edda Heiðrún Backman leikkona sem tóku á móti fénu. Ungmennafélag Íslands skipu- lagði hlaupið ásamt Gunnlaugi, en með því vildu þau vekja athygli á fjársöfnun Eddu Heiðrúnar fyrir deildina. Verkefnið heitir „Á rás fyrir Grensás“ og var Gunnlaugur fyrstur manna til að hlaupa fyrir átakið. Fleiri munu bætast í hópinn þegar fram líða stundir. - þeb Gunnlaugur Júlíusson hljóp frá Reykjavík til Akureyrar á sex dögum: Safnaði 1,3 milljónum í hlaupi FÉÐ AFHENT Gunnlaugur afhenti féð við athöfn í gær. Edda Heiðrún Backman leikkona, Hollvinir Grensásdeildar og Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, tóku á móti fénu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FJÁRMÁL Styrking heimilda um frystingu eigna er í skoðun og leita á eftir auknu samstarfi við erlend skattaskjól, segir Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra spurður um hvað standi til hjá ríkisstjórninni varðandi fryst- ingu eigna. En er þetta ekki fullseint í rass- inn gripið? „Auðvitað má segja það enda vildum við í VG styrkja lagaheimildirnar fyrr í vetur. Hins vegar eru einhvers staðar krónur hvort sem þær eru í skattaskjól- um eða geymdar á reikningi í nálægum löndum og að sjálfsögðu munum við reyna að endurheimta allt til þjóðarbúsins sem með réttu á að koma upp í það tjón sem varð,“ segir Steingrímur. Nýverið var sérstökum saksókn- urum fjölgað um þrjá og fjárveit- ingar auknar. Talið er að fjárveit- ingar verði á endanum um 500 milljónir til embættisins. Þetta er gert til að stórauka getuna til að rekja þær færslur sem fóru út úr landinu á síðustu dögunum fyrir hrunið, að sögn Steingríms. „Það er margt sérstakt við þetta og það sem er að koma á daginn eru þessi eignatengsl og hvernig bankar lánuðu eigendum sínum. Einnig hvernig menn færðu pen- inga á milli í stórum stíl dagana og vikur fyrir hrunið. Það bend- ir til þess að þeir hafi kannski vitað að þetta var ekki á traust- um fótum,“ segir Steingrímur og telur þetta jafnvel varða við brot á laga ákvæðum um innherjaupp- lýsingar. Brynjar Níelsson hæstaréttar- lögmaður segir ákvæði um fryst- ingu þegar vera inni. Hægt sé að kyrrsetja eigur sakborninga eftir að rökstuddur grunur hefur vakn- að um saknæma háttsemi. Í vetur var lagt fram frumvarp þar sem lagt var til að sett yrði almennt ákvæði um frystingu. „Það verður alltaf erfitt að skil- greina hvað sé auðmaður og svo var talað í frumvarpinu um að hægt væri að frysta eignir aðila sem væru tengdir þeim. Hvernig ætla menn að fara að því að skil- greina það? Eru það börn, vinir eða makar?“ spyr Brynjar. Segir hann hins vegar sjálfsagt að menn kanni hvort einhverjir hafi mis- notað innherjaupplýsingar. „Ef einhverjir þessara auð- manna fara í þrot þá mun þrota- búið elta allar eignir þeirra hvar sem þær eru. En lögfræðilega er þetta algjör ógerningur,“ segir Brynjar. vidir@frettabladid.is Margt sérstakt gerðist dagana fyrir hrun Fjármálaráðherra segir styrkingu heimilda um frystingu eigna vera í skoðun. Segir hann færslu peninga dagana fyrir hrun jafnvel geta varðað við innherjaupplýsing- ar. Lögmaður segir lögfræðilegan ógerning að setja almennt ákvæði um frystingu. GLITNIR Mikið hefur verið rætt á undanförnum dögum um endurskoðunarskýrslu þar sem kemur fram að stjórnendur Glitnis hafi flutt hundruð milljóna úr landi rétt fyrir yfirtöku ríkisins á bankanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON BRYNJAR NÍELSSON ÞRÚÐUR SJÖFN SIGURÐARDÓTTIR Vara við ólöglegum ferðum Lögreglan á Hvolsvelli og í Vest- mannaeyjum vill vara fólk við því að óprúttnir aðilar muni bjóða upp á ferðir, gegn gjaldi, á milli Landeyjar- hafnar í Bakkafjöru og Vestmannaeyja um þjóðhátíðina, þar sem allar ferðir með Herjólfi og í flugi eru að verða uppseldar. Nokkur innbrot í borginni Nokkur innbrot voru tilkynnt til höf- uðborgarlögreglunnar eftir fyrrinótt. Brotist var inn í verslunina Ranimosk við Laugaveg en engu stolið, að sögn lögreglu. Þá var brotist inn í geymslu- skúr hvalaskoðunarfyrirtækisins Eld- ingar og smáræði af peningum stolið. LÖGREGLUFRÉTTIR Sjö keyrðu fullir um helgina Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvun- arakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um síðastliðna helgi. Tveir voru stöðvaðir á laugardag og fimm á sunnudag. Fimm voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. LÖGREGLUFRÉTTIR Unglingsstúlkur stálu bíl Tvær unglingsstúlkur stálu bíl á höf- uðborgarsvæðinu á sunnudagskvöld. Þær náðu að aka nokkurn spöl áður en til þeirra náðist í austurborginni. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.