Fréttablaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé 4.25 13.34 22.41 3.51 13.19 22.44 Í dag er miðvikudagurinn 29. júlí 2009, 210. dagur ársins. Í þann tíð er þunglyndi var bara orð sem rímaði við pungbindi og fólk eyddi dögum sínum í annað en tal um efnahagshrun og ábyrgð og enginn, utan nokkrir hagfræðing- ar, hafði hugmynd um hvað verg landsframleiðsla var; þá var þó stundum rætt um stjórnmál á skeri einu í Atlantshafi. Líf áhuga- mannsins um þjóðmál var tiltölu- lega einfalt; hann var annaðhvort til vinstri eða hægri og eftir því skilgreindust lífsgildi hans. ÞÁ GERÐIST það dag einn að nútíminn bankaði á dyrnar og reyndist aufúsugestur, enda hafði enginn séð hvað hann geymdi í skjatta sínum. Nútíminn kenndi mönnum að vinstri og hægri væru úrelt, að það væri gamaldags að vilja ekki markaðnum allt, að félagsleg gildi jöfnuðar, réttlæt- is og bræðralags væru hallæris- leg og ekki sæmandi hinum nýja hugsunarhætti. OG NÝJUM tímum fylgdu ný slag orð (af hverju einhver þarf ný slagorð eftir afrek Páls Vil- hjálmssonar: Lakkrís lækki, lýsið hækki, er reyndar óskiljanlegt) og ný hugtök. Einkavæðing varð útvistun eða einkarekstur og þeir sem minntu á að samfélagsgerð okkar hefði orðið til í sveita and- lits genginna forfeðra okkar voru ekki húsum hæfir. Nei, nú skyldi út með það gamla og inn með hið nýja. HÉR skal á engan hátt amast við hinu nýja, þótt pistillinn hafi hing- að til hljómað eins og höfundi þyki síðasta notadrjúga nýjungin hafa verið gúmmístígvél. Nei, hér skal ekki nöldrað yfir nútímanum, enda nóg komið af nöldri og naggi. Hér skal heldur lagt til að menn nýti sér það úr reynslu síðustu áratuga sem kemur þeim áfram til manns. Jafnt hinu nýja sem því gamla. KANNSKI lærum við af þessu öllu að tala skýrt um meining- ar okkar en fela þær ekki í fram- andi orðum. Kannski lærum við að heimta það að þeir sem við velj- um til að fara með okkar mál tali enn skýrar. Og kannski, en bara kannski, við lærum að hafna þeim sem annaðhvort tala ekki skýrt eða standa ekki við orð sín, skýr eða óskýr. Og það er ekkert erfitt að tala skýrt. Til þess þurfum við bara að vera sammála um að hvítt þýði hvítt og svart svart. ORÐ eru dýr og geta læknað marga undina. Orðagjálfur er hins vegar aðeins til ama. Orð eru dýr E N N E M M / S ÍA / N M 38 70 9 Það er Þú getur talað fyrir12.000kr.1.000 kr. inneign á mánuði í eitt ár fylgir.Frábær * Á meðan birgðir endast. Flottur svefnpoki fylgir SONY ERICS SON G502 Símalán – ú tborgun: 90 0 kr. Aðeins 2.00 0 kr. á mán uði í 12 má nuði. 24.900 kr. Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.