Fréttablaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar Proppé
4.25 13.34 22.41
3.51 13.19 22.44
Í dag er miðvikudagurinn 29. júlí
2009, 210. dagur ársins.
Í þann tíð er þunglyndi var bara orð sem rímaði við pungbindi og
fólk eyddi dögum sínum í annað en
tal um efnahagshrun og ábyrgð og
enginn, utan nokkrir hagfræðing-
ar, hafði hugmynd um hvað verg
landsframleiðsla var; þá var þó
stundum rætt um stjórnmál á
skeri einu í Atlantshafi. Líf áhuga-
mannsins um þjóðmál var tiltölu-
lega einfalt; hann var annaðhvort
til vinstri eða hægri og eftir því
skilgreindust lífsgildi hans.
ÞÁ GERÐIST það dag einn að
nútíminn bankaði á dyrnar og
reyndist aufúsugestur, enda hafði
enginn séð hvað hann geymdi í
skjatta sínum. Nútíminn kenndi
mönnum að vinstri og hægri væru
úrelt, að það væri gamaldags að
vilja ekki markaðnum allt, að
félagsleg gildi jöfnuðar, réttlæt-
is og bræðralags væru hallæris-
leg og ekki sæmandi hinum nýja
hugsunarhætti.
OG NÝJUM tímum fylgdu ný
slag orð (af hverju einhver þarf
ný slagorð eftir afrek Páls Vil-
hjálmssonar: Lakkrís lækki, lýsið
hækki, er reyndar óskiljanlegt)
og ný hugtök. Einkavæðing varð
útvistun eða einkarekstur og þeir
sem minntu á að samfélagsgerð
okkar hefði orðið til í sveita and-
lits genginna forfeðra okkar voru
ekki húsum hæfir. Nei, nú skyldi
út með það gamla og inn með hið
nýja.
HÉR skal á engan hátt amast við
hinu nýja, þótt pistillinn hafi hing-
að til hljómað eins og höfundi þyki
síðasta notadrjúga nýjungin hafa
verið gúmmístígvél. Nei, hér skal
ekki nöldrað yfir nútímanum, enda
nóg komið af nöldri og naggi. Hér
skal heldur lagt til að menn nýti
sér það úr reynslu síðustu áratuga
sem kemur þeim áfram til manns.
Jafnt hinu nýja sem því gamla.
KANNSKI lærum við af þessu
öllu að tala skýrt um meining-
ar okkar en fela þær ekki í fram-
andi orðum. Kannski lærum við að
heimta það að þeir sem við velj-
um til að fara með okkar mál tali
enn skýrar. Og kannski, en bara
kannski, við lærum að hafna þeim
sem annaðhvort tala ekki skýrt
eða standa ekki við orð sín, skýr
eða óskýr. Og það er ekkert erfitt
að tala skýrt. Til þess þurfum við
bara að vera sammála um að hvítt
þýði hvítt og svart svart.
ORÐ eru dýr og geta læknað
marga undina. Orðagjálfur er hins
vegar aðeins til ama.
Orð eru dýr
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
38
70
9
Það er
Þú getur talað fyrir12.000kr.1.000 kr. inneign á mánuði í eitt ár fylgir.Frábær
* Á meðan birgðir endast.
Flottur
svefnpoki
fylgir
SONY ERICS
SON G502
Símalán – ú
tborgun: 90
0 kr.
Aðeins 2.00
0 kr. á mán
uði í 12 má
nuði.
24.900 kr.
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%