Fréttablaðið - 29.07.2009, Page 15

Fréttablaðið - 29.07.2009, Page 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 GB FERÐIR bjóða upp á ótakmarkað golf á Celtic Manor Resort á Bretlandi, þar sem Ryder Cup-keppnin verður haldin á svæðinu á næsta ári. Nánari upplýsingar á www. gbferdir.is. „Það heitir sjöþraut sem ég keppi yfirleitt í en í Finnlandi tók ég bara þátt í langstökki og kúlu- varpi,“ segir hin 17 ára Svein- björg aðspurð. Hún er nýkomin heim til Hornafjarðar eftir góða ferð til Finnlands þar sem hún upplifði meðal annars að afhjúpa ólympíuhring. „Ég gerði það fyrir Íslands hönd,“ segir hún. „Það var mikill heiður fyrir mig en ég átt- aði mig kannski ekki á því fyrr en eftir á. Þarna voru samt marg- ir tignir gestir.“ Sveinbjörg segir hringinn hafa verið einn af mörg- um í sérstökum ólympíugarði sem geymdur verður sem minnisvarði um ólympíuhátíð Evrópuæskunn- ar sem haldin var í þriðju stærstu borg Finnlands, Tampere. „Ég bjó reyndar í ólympíuþorpi og fór ekki mikið út fyrir það þannig að ég var eins og í litlum bæ en það sem ég sá af Finnlandi var flatlendi og mikill skógur, ólíkt Íslandi.“ Sveinbjörg var nýkomin frá Ítalíu þegar hún hélt til Finnlands. „Ég rétt komst heim til að setja í þvotta- vél áður en ég fór af stað aftur,“ segir hún og lýsir tildrögum Ítalíu- ferðarinnar. „Ég lenti í þriðja sæti í sjöþraut á Norðurlandameistara- mótinu sem var haldið í Kópavogi í sumar og ávann mér þar með rétt til að keppa á heimsmeistara- móti unglinga á Ítalíu. Var búin að ná lágmarki á hátíðina í Finn- landi áður og bjóst bara við að fara þangað en HM kom inn í myndina tveimur vikum fyrir mót. Móðir Sveinbjargar, Guðrún Ing- ólfsdóttir, er jafnframt þjálf- ari hennar enda frækin frjáls- íþróttakona. Hún fylgdi dótturinni til Ítalíu og faðirinn Zophonías Torfason líka sem fararstjóri. „Við vorum í Brassanone, það er álíka stór bær og Akureyri og er í Ölp- unum, rétt við svissnesku landa- mærin. Ég hef ferðast svolítið um Ítalíu áður en þetta var fallegasti staður sem ég hef komið á þar, með miklum gróðri og þægilegu veður- fari,“ lýsir Sveinbjörg. „Hitinn fór í 25 gráður á daginn og niður í 15 á kvöldin. Mér fannst þægilegt að keppa í þessum hita. Hér heima er ég vön að þurfa að vera á hreyf- ingu til að stífna ekki upp en þarna þurfti þess ekki. En auðvitað varð ég að drekka meira því ég fann að ég gat orðið orkulaus annars.“ Strax á öðrum degi eftir heimkom- una er Sveinbjörg komin til vinnu sinnar á gistiheimilinu Ásgarði og ekki sleppir hún heldur æfingu þó svo bæði heimsmeistaramót og ólympíuhátíð séu að baki. gun@frettabladid.is Afhjúpaði ólympíuhring Sveinbjörg Zophoníasdóttir er engin kyrrsetukona. Hún æfir frjálsar íþróttir með góðum árangri og var ekki fyrr komin af heimsmeistaramóti á Ítalíu en hún hélt á ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Finnlandi. „Ég hef ferðast svolítið um Ítalíu áður en þetta er fallegasti staður sem ég hef komið á þar,“ segir Sveinbjörg um Brassanone á Ítalíu. MYND/GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR , MISTY Gó jónusta - fagleg rá gjöf Laugavegi 178, 105 R sími 551-3366 - www.misty.is Teg. 10253 - mjúkur og yndislegur, svaka flottur í BCD skálar á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-” Teg. 42026 - vel fylltur og stækkar þig um númer í BC skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-” Opið mán-fös kl. 10-18 Lokað á laugardögum í sumar Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.