Fréttablaðið - 29.07.2009, Side 20
29. JÚLÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● verslunarmannahelgin
Akureyri 18 ára
Áning 20 ára
Ásgarður við Hvolsvöll 25 ára
Fossatún 20 ára
Grindavík 18 ára
Hallormsstaðaskógur 18 ára
Hellishólar 25 ára
Hrafnagil, Eyjafjarðarsveit 20 ára
Húsafell 18 ára
Langbrók, Fljótshlíð 20 ára
Laugarvatn 18 ára
T-Bær, Selvogi 25 ára
Reykholt 25 ára
Snorrastaðir 25 ára
Úthlíð 20 ára
Áður en lagt er af stað í útilegu
yfir helgina er vert að athuga með
aldurstakmörk inn á tjaldsvæðin
en þau geta verið mismunandi. Hér
til hliðar hafa verið tekin saman
helstu aldurstakmörkin og því ætti
engum að verða vísað frá sökum
aldurs. Flest þessara tjaldsvæða
vilja fjölskyldufólk með börn sem
útskýrir hátt aldurstakmark, en þó
er fjölskyldufólk undir settu ald-
urstakmarki velkomið.
Vert er að minna fólk á að fara
eftir reglum tjaldsvæðanna, en
tjaldverðir áskilja sér rétt til að
vísa fólki frá gerist það uppvíst að
broti á reglum. - hds
Brýnt að fylgja settum reglum
Aldurstakmörk inn á tjaldsvæði
Víða er boðið upp á fjöl-
skylduvæna dagskrá um
verslunarmannahelgina í ár á
skipulögðum útihátíðum. Á
Sæludögum í Vatnaskógi og
Unglingalandsmóti Íslands
á Sauðárkróki er þó líklega
ríkust áhersla lögð á vímuleysi
hátíðargesta.
„Tilefni Sæludaga er að halda eft-
irsóknarverða hátíð án allra vímu-
efna þar sem höfðað er til ólíkra
aldurshópa,“ segir sr. Jón Ómar
Gunnarsson, einn af skipuleggj-
endum Sæludaga í Vatnaskógi. Sú
hátíð er haldin nú í 19. skipti og sr.
Jón Ómar býst við 1.000 til 1.200
manns. „Margir skreppa hing-
að dagsferðir en dvelja ekki allan
tímann, enda stutt úr bænum. Það
horfir vel með veður á okkar horni
sem gæti aukið aðsóknina en við
tökum samt ekki endalaust við,“
segir hann.
Dagskráin verður fjölbreytt
og aðstaðan í Vatnaskógi nýtt á
skemmtilegan hátt, til dæmis
standa bátar og kassabílar öllum
opnir, ásamt fleiri leiktækjum og
á íþróttavellinum verða leikar iðk-
aðir. Íþróttahúsið verður vettvang-
ur margs konar dagskráatriða, svo
sem tónleika og fjölskylduguðs-
þjónustu með léttu sniði. Þar verða
einnig kvöldvökur með blönduðum
atriðum. Auk þess verður margt í
boði til að auðga andann. Verð á
hátíðina er 3.500 krónur en hægt
er að kaupa dagspassa á 2.000 og
börn undir tólf ára frá frítt inn.
Á Unglingalandsmótinu á Sauð-
árkróki stefnir í mesta fjölda á
slíku móti frá upphafi að sögn
Ómars Braga Stefánssonar, starfs-
manns UMFÍ. „Við vorum að loka
skráningu og höfum aldrei séð
aðrar eins tölur. Keppendur eru um
1.500 en í fyrra voru þeir um eitt
þúsund. Þeim fylgir svo fjöldi fólks
þannig að varlega áætlað verða hér
um 10.000 manns.“ Ómar segir að-
stöðuna á Sauðárkróki góða, nóg
pláss á tjaldstæðum, leiktækja-
garð fyrir börnin og skipulagðar
gönguferðir fyrir foreldra. „Það er
bara keppandinn sem borgar fyrir
þátttökuna en aðrir í fjölskyldunni
fá fría aðstöðu. Það fær mjög já-
kvæðar undirtektir.“ Bogfimi og
strandblak verða tvær nýjar sýn-
ingargreinar á mótinu en annað er
meira hefðbundið. Glímufólk verð-
ur áberandi á svæðinu því lands-
liðið í glímu verður með æfing-
ar meðan á mótinu stendur. For-
setahjónin mæta á mótið og verða
meðal annars viðstödd setningar-
athöfnina á föstudagskvöld.
Færeysk stórhátíð verður á
Stokkseyri alla helgina frá fimmtu-
degi fram á mánudag. Um tuttugu
listamenn frá Færeyjum munu þar
skemmta gestum í bland við frum-
byggja með færeyskri tónlist, döns-
um og landsleik án landsliðsmanna.
Meðal frænda okkar frá Færeyjum
má nefna Jógvan Hansen og Simme
sem gerði Rasmuslagið ódauðlegt.
Söfn, sýningar, töfragarður og gall-
erí verða opin alla helgina og varð-
eldur í fjörunni, fjöldasöngur með
Labba og flugeldasýning er meðal
viðburða. Ekki má gleyma tónleik-
um sem nefnast Heygar og Dreyg-
ar og Álvastakkur með færeysk-
um listamönnum né heldur atrið-
inu Föroyskur dansur sem verður
í hávegum. - gun
Á fjölskylduvænan máta
Góð stemning skapast jafnan á kvöld-
vökum sæludaga í Vatnaskógi. Hér
fylgist fólk með hæfileikakeppni.
Sjarmörinn Jógvan er meðal þeirra fær-
eysku listamanna sem taka Stokkseyri
fram yfir Ólafsvökuna þessa helgi.
● ÖLLU TJALDAÐ TIL Í ÞRASTALUNDI
„Hér verður hoppkastali og ferðaleikhús fyrir börnin.
Við vorum að stækka pallinn um 100 fermetra og verð-
um með garðskraut og fleira flott til sýnis. Svo verður
veglegt steikarhlaðborð alla daga,“ segir Mark Brink,
vert í Þrastalundi, þar sem haldin verður hátíð um
verslunarmannahelgina í annað skipti.
„Við héldum þetta fyrst í fyrra og gekk svo vel. Þá
var uppselt á dansleikinn með Milljarðamæringun-
um svo það lá beinast við að halda hátíðina aftur,“
segir Mark, en í ár munu Sigga Beinteins og
Stjórnin halda uppi fjörinu ásamt Bjarna Ara.
„Við höldum hátíðina svo fólkið á svæð-
inu í kring komist á dansleik, það er nú ekki
oft að ég held. Það var gífurlega gaman
í fyrra og við erum með frábæra skemmti-
krafta og við vonum að sem flestir mæti.“ - hds
Íslenski fáninn og hvít-
bláinn blakta við húna
á hátíðlegri setningu
unglingalandsmótsins.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
● AFTUR TIL FORTÍÐAR „Venju samkvæmt verður mikið um
að vera hérna, þar á meðal glæsilegir dansleikir, tívolí, sýningar og
svo munu Þorgeir Ástvalds og Raggi Bjarna lesa kveðjur til sjómanna,“
segir Gísli Rúnar Gylfason, framkvæmdastjóri Síldarævintýrisins á Siglu-
firði, sem fer fram dagana 31. júlí til 2. ágúst. Að sögn Gísla er tilgang-
urinn meðal annars að fá gesti til að endurupplifa stemninguna sem
ríkti þegar Siglufjörður var síldahöfuðstaður heimsins. „Við viljum að fólk
upplifi þetta að okkar hætti og
höfum fengið úrvalslið heima-
manna til að troða upp, þótt
einnig komi fram skemmtikraft-
ar að sunnan á borð við hljóm-
sveitirnar Buff og Papa,“ bendir
hann á og bætir við að hægt sé
að nálgast dagskrána á www.
sildaraevintyri.fjallabyggd.is. - rve
„Við höfum tekið eftir því að umræðan er meiri en áður. Karl-
menn virðast heldur ekki lengur vera eins viðkvæmir fyrir því
að ræða þetta,“ segir Haukur Valdimarsson, talsmaður karla-
hóps Femínistafélagsins, um ár-
angurinn sem hlotist hefur af
forvarnarstarfinu Karlmenn
segja NEI við nauðgunum.
Karlahópurinn hefur stað-
ið fyrir átakinu síðan árið 2003.
Ekki verður gerð undantekn-
ing þetta árið þar sem Reykja-
vík er fyrsti viðkomustaður.
„Við verðum fyrir utan Ríkið,
BSÍ og flugvöllinn, þar sem við
ætlum að minna á þetta málefni
og selja boli, barmmerki og lím-
miða. Tilgangurinn er að ná til
sem flestra áður en þeir fara út
úr bænum,“ segir Haukur og bætir við að stefnan sé svo sett á
Akureyri og hugsanlega Vestmannaeyjar.
„Ég vil þó ítreka að við erum fyrst og fremst í forvarnarstarfi
en erum ekki þjálfaðir í að taka á málum fórnarlamba nauðgana.
Hins vegar getum við leiðbeint þolendum til réttra aðila.“ - rve
Opnari umræða
Haukur segrir átakið Karlmenn segja
NEI við nauðgunum hafa skilað
góðum árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA