Fréttablaðið - 29.07.2009, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 29. júlí 2009 17
timamot@frettabladid.is
Kotmót Hvítasunnumanna er nú hald-
ið í sextugasta skipti að Kirkjulækj-
arkoti í Fljótshlíð en upphaf mótanna
má rekja til þess að hvítasunnumenn
í Vestmannaeyjum vildu komast burt
á meðan Þjóðhátíðin stóð yfir. Þeir
höfðu samband við Guðna Markús-
son, bónda í Kirkjulækjarkoti, sumar-
ið 1949 og báðu um leyfi til að efna til
móts í Kirkjulækjarkoti um verslunar-
mannahelgina. Um tuttugu Eyjamenn
komu þarna saman og var ákveðið að
endurtaka leikinn að ári. Það mót sóttu
um 70 manns og síðan hafa mótin orðið
að árlegum viðburði sem sífellt fleiri
sækja.
„Aðstaðan var í upphafi fábrotin og
sátu menn á plönkum á milli olíubrúsa
og sváfu í hlöðunni en í dag eru þarna
heljarinnar mannvirki,“ segir móts-
stjórinn Stefán Garðarsson. „Þarna
er fjögur þúsund fermetra samkomu-
hús sem áður hýsti hluta af tívolíinu í
Hveragerði, gistiskáli með rúmstæð-
um fyrir 120 manns, 200 manna matsal
og hreinlætisaðstöðu og tjaldsvæði.“
Í dag sækja á fjórða þúsund manns
hátíðina á hverju ári en þar af eru
um 1.000 hvítasunnumenn. „Hátíð-
in er öllum opin og hentar þeim sem
sækjast eftir heilbrigðri skemmtun án
áfengis. Þetta er útihátíð með kristi-
legu ívafi en fólki er í sjálfsvald sett
hvort það mætir á samkomur.“ Stefán
segir fjölskyldufólk sækja hátíðina í
miklum mæli enda er þéttskipuð dag-
skrá fyrir börn og unglinga. „Á barna-
mótinu styðjumst við meðal annars við
minningarvers úr Biblíunni sem fjalla
um að við eigum að vera góð hvert við
annað og önnur undirstöðuatriði. Þá
verða útisamverur, kvöldvökur, karn-
ival og fleira skemmtilegt í boði fyrir
börnin og fjölskyldur þeirra en á staðn-
um er auk þess sjoppa, hamborgara-
staður og önnur þjónusta.
Í tilefni af sextíu ára mótsafmæl-
inu mun bandaríski gospel-söngvar-
inn André Crouch heiðra hátíðargesti
með nærveru sinni en Stefán segir
mikla stemningu jafnan myndast í
samkomuhúsinu enda sé öllu tjaldað
til hvað varðar flytjendur, ljósabúnað
og hljómgæði.
vera@frettabladid.is
KOTMÓT HVÍTASUNNUMANNA: HALDIÐ Í SEXTUGASTA SKIPTI
Heilbrigð skemmtun fyrir alla
GÓÐ STEMNING Stefán segir mikla stemningu skapast á Kotmótunum enda sé öllu tjaldað til.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Karl Bóasson
fyrrverandi lögreglumaður,
Rjúpnasölum 14, Kópavogi,
lést á líknardeild Landakotsspítala 25. júlí sl. Útförin
fer fram frá Neskirkju föstudaginn 14. ágúst nk. kl.
13.00.
Halldóra Jóna Stefánsdóttir
Emil Brynjar Karlsson Sigrún Sigtryggsdóttir
Anna Sigríður Karlsdóttir Bjarni Rúnar Þórðarson
Örn Karlsson Siriworraluck Boonsart
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Hekla Gestsdóttir
Garðabraut 45, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 26. júlí. Útför
hennar fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 30.
júlí kl. 15.00.
Hörður Júlíusson
Sigurlaug Jensey Skúladóttir Guðmundur Sigurdórsson
Sigurbjörg Helga Skúladóttir Kjartan Aðalsteinsson
Skúli Kristinn Skúlason Dagbjört Hannesdóttir
Ásgrímur Harðarson
Trausti Harðarson Elva Hrund Þórisdóttir
og barnabörn.
Ástkær fósturmóðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Halldóra Ingimundardóttir
Hornbrekku, Ólafsfirði,
lést föstudaginn 24. júlí. Jarðarför fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 8. ágúst kl. 14.00.
Marý Baldursdóttir Jón Sæmundsson
Gunnar Þorvaldsson Halldóra Bjarnadóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir, tengdamóðir og amma,
Alda Þórðardóttir
áður til heimilis að Reynilundi 15,
Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi sunnudaginn
26. júlí. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ
miðvikudaginn 5. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknardeildina í Kópavogi.
Helen Ingibjörg Agnarsdóttir Magnús Haukur Norðdahl
Sigurlaug Hrönn Agnarsdóttir Magnús Magnússon
Þórður Bragason Ragnhildur Sophusdóttir
og barnabörn.
Yndislegi eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, bróðir og afi,
Karl Gíslason
Bessastöðum, Norðurhúsi, Álftanesi,
lést mánudaginn 20. júlí á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í
Garðabæ í dag, 29. júlí, kl. 13.00.
Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir
Sigríður Líndal Karlsdóttir Veturliði Þór Stefánsson
Heiðrún Líndal Karlsdóttir Jón Arnar Jónsson
Unnur Líndal Karlsdóttir
Guðmunda Eiríksdóttir
Súsanna Gísladóttir Einar Gunnarsson
Sigríður Gísladóttir
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við missi
hjartkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Stellu Stefánsdóttur
Engihjalla 19, Kópavogi,
sem lést fimmtudaginn 2. júlí. Sérstakar þakkir eru til
þeirra sem önnuðust hana á gjörgæslu Landspítalans
við Hringbraut.
Jóna Karlsdóttir
Stefanía Karlsdóttir Jóhannes G. Pétursson
Stefán Þ. Karlsson Þóra Vilhjálmsdóttir
Guðbjörg Edda Karlsdóttir Gunnar Sigurðsson
Sólveig Gyða Guðmundsdóttir Gunnar Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Haukur Júlíusson
Klapparhlíð 1, Mosfellsbæ,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans sunnudaginn
26. júlí sl. Útförin verður gerð frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 31. júlí kl. 13.00.
Lára I. Ágústsdóttir
Ingibjörg Hauksdóttir Sverrir Ólafsson
Þór Hauksson Guðný María Jónsdóttir
Ásgerður Hauksdóttir Þorsteinn Bjarnason
barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóð-
ir, amma og langamma,
Guðrún Finnbogadóttir
lést mánudaginn 27. júlí að Hrafnistu Hafnarfirði.
Útförin verður auglýst síðar.
Helgi Elíasson
Finnbogi Helgason Elísabeth Snorradóttir
Guðbjörg Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Júlíus Jónsson bóndi
Norðurhjáleigu Álftaveri,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum laug-
ardaginn 25. júlí sl. Útförin fer fram frá Þykkvabæjar-
klausturskirkju föstudaginn 7. ágúst nk. kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir
sem vilja minnast hans er bent á velunnarasjóð
Klausturhóla, reikningsnúmer 0317-13-771176, kt.
700399-2739.
Arndís Salvarsdóttir
Salvar Júlíusson
Jón Júlíusson Helga Gunnarsdóttir
Gísli Þórörn Júlíusson Rakel Þórisdóttir
Ragnheiður Guðrún Júlíusdóttir Kári Gunnarsson
Ólafur Elvar Júlíusson Ingibjörg Einarsdóttir
Jóhanna Sólveig Júlíusdóttir Birgir Arnar Steingrímsson
barnabörn og barnabarnabörn.
LEIKARINN STEPHEN DORFF
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ
1973.
„Frægðin virðist spennandi
en hún getur líka verið al-
gjör martröð.“
Stephen er bandarískur kvik-
myndaleikari. Meðal mynda
sem hann hefur leikið í eru
Backbeat og Blade.
Friðrik VIII. Danakonungur sté
á land á Íslandi þennan dag
árið 1907 ásamt Haraldi prins
og fríðu föruneyti. Konungur-
inn og fylgdarlið hans dvaldi
til 15. ágúst á landinu og ferð-
aðist víða. Eftir móttökuat-
höfn og viðdvöl í Reykjavík
var farið ríðandi frá borginni á
Þingvöll og þaðan að Gullfossi
og Geysi, sem þá eins og nú
þóttu meðal okkar skærustu
náttúruperlna. Í bakaleiðinni
var komið við í Þjórsártúni og
á Selfossi. Eftir það var stigið
aftur á skipsfjöl og siglt norð-
ur til Ísafjarðar, Akureyrar og
austur til Seyðisfjarðar.
Alls staðar voru haldnar
veislur kóngafólkinu til heið-
urs og háfleygar ræður fluttar
enda ekki algengt að svo tignir
gestir væru á ferð.
ÞETTA GERÐIST: 29. JÚLÍ 1907
Danakonungur
heimsækir Ísland
Starfsfólk Árbæjarsafns minntist
konungskomunnar árið 2007.