Fréttablaðið - 29.07.2009, Page 30
18 29. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég er mikið gefin fyrir ævintýri og hvers lags töfra. Ég, líkt og Íslending-ar margir, sé ekkert að pínulítilli hjá-
trú um nokkra góða steina sem ekki má
færa eða jafnvel drauga, óskir eftir að hafa
velt sér upp úr dögginni og annað slíkt. Það
fegrar lífið að mínu viti og særir engan.
Skiptar skoðanir eru um hvort spámiðlar
eins og Þórhallur miðill eða sjáandinn Lára
Ólafsdóttir séu álíka meinlaus og okkar
ágæta þjóðarhjátrú. Jú, jú, ef draugar eru
til, af hverju ekki að hafa samband við hina
látnu, fá þá til að hringja heim eins og ET
forðum? Spádómar hafa fylgt mannkyn-
inu frá örófi alda. Hver er munurinn
á litlum skjálfta-spádómi og
heimsendaspá
sem dregin er af
dagatali Maja?
Spádómur er spádómur. Inn í
framtíðina hefur verið séð.
Flestir eru þó ekki með hjartað í buxun-
um vegna yfirvofandi heimsenda í desem-
ber 2012, en einhverra hluta vegna náðu
orð fyrrnefndrar Láru að skjóta rótum í
huga fólks og ekki var laust við að spenna
fyndist í loftinu um það leyti sem spádóm-
urinn átti að rætast. Persónulega leit ég
til himins og upplifði mig sem í einhverri
fantasíunni þar sem aðalpersónan finnur á
eigin skinni að stormurinn er aðvífandi.
Íslendingar eru með hálfgert náttúru-
hamfarablæti. Ekkert er betra en gott gos
í Grímsvötnum til að fá blóðið til að renna.
Best væri að sjálfsögðu ef við gætum
fylgst með snjóflóðum eða staðsett okkur
með prýðisútsýni yfir Heklugos. Eyðilegg-
ingin er vissulega hræðileg en tilfinning-
in stórkostleg meðan jörðin skelfur undan
fótum okkar. Því var þessi spádómur full-
kominn. Hann sagði nákvæmlega það sem
við vildum heyra.
Náttúruhamfarablæti þjóðarinnar
NOKKUR ORÐ
Kolbrún Björt
Sigfúsdóttir
Beygið til hægri
þarna niðri, svo
fyrsta beygja til
vinstri, yfir götuna
þegar þið komið að
pósthúsinu, og þá
ætti hótelið að vera
þar á horninu...
Leiðsögu-
hundurinn
Og sögnin
beygist með.
Sjáið blaðsíðu
23! Markmiðið er
að ná...
Forlagið er í þriðju
persónu fleirtölu!
Eru allir með? Í raun
og veru...
... ertu sofandi
Maggi?
Skil ég þetta rétt?
Þér leiddist svo í
tímanum að þú
dast á haus-
inn?
Klassískt!
Skrifa
Skrifa
Skrifa
Skrifa Skrifa
SkrifaSkrifa
SkrifaSkrifa
SkrifaSkrifa
SkrifaSkrifa
SkrifaSkrifa
SkrifaSkrifa
SkrifaSkrifa
Skrifa
Skrifa
Þú náðir
að vinna
smá tíma.
Ég
þrífst á
stressi.
Lalli! Ég hitti
afkvæmi
jólahrein-
dýrsins!
Af
hverju er
afkvæmi
hans
köttur
Halló! Jóli vakir heilu
næturnar og þiggur mat frá
ókunnugum!
Hann er einn
af okkur!
Ég heiti Solla, þetta
er Hannes bróðir
minn og þetta er
Lóa, litla systir okkar.
Ánægju-
legt að
hitta ykkur.
Og þið hljótið að vera
stoltir foreldrarnir!
Við viljum frekar láta
kalla okkur: „Stolt að hafa
þolað þetta svo lengi“.
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Fréttablaðið
stendur upp úr
Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað
landsins með glæsilegt forskot á samkeppnis-
aðila sinn eins og síðasta könnun Capacent
Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi
stolt af þessum góða árangri og bendum
auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar
þegar þeir velja auglýsingamiðil.
Allt sem þú þarft...
34%
74%