Fréttablaðið - 29.07.2009, Síða 32
20 29. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
Þau stórtíðindi berast að Jó-
hann G. Jóhannsson, lifandi
þjóðsögn í íslenskri dægur-
tónlist, ætli loksins að senda
frá sér sólóplötu. Útgáfa er
fyrirhuguð á hausti kom-
anda.
„Það er skrítið að halda á svona
grip. Dýrasta hljóðfæri sem ég hef
komist í snertingu við. Eða notað í
mína tónlist. Sem þýðir þá væntan-
lega að þetta er dýrasta lagið á ferl-
inum. Dýrasta sólóið,“ segir tónlist-
armaðurinn Jóhann G. Jóhannsson
í léttum dúr. Hann er að tala um
fiðluna sem Hjörleifur Valsson
leikur alla jafna á. Hún kemur
við sögu á væntanlegri sólóplötu
Jóhanns. Fiðlan, sem er Stradivari-
us frá 1732, var keypt árið 2006 af
Ingunni Wernersdóttur fyrir Hjör-
leif að spila á og var þá talað um
að hún væri metin á 210 milljón-
ir íslenskra króna. Sú tala er nú
komin upp í 378 milljónir á núvirði
og má tala um óðaverðbólgu á
þeim bænum. „Við Pétur [Hjalte-
sted] vorum að grínast með það að
við gætum keypt upp alla götuna
fyrir þennan grip,“ segir Jóhann.
En þetta er útúrdúr. Jóhann hefur
komið sér fyrir í stúdíói Péturs í
Hveragerði. Og þar eru þeir félag-
ar að taka upp efni á plötuna. „Ég
er ánægður með þá leið sem við
erum að feta. Gerum „blueprint“
af lögunum, prófum hin og þessi
hljóðfæri, mótum hugmyndina og
þá hóum við í músíkanta og hand-
spilum þetta inn.“
Jóhann G. Jóhannsson vakti
fyrst verulega athygli með hljóm-
sveitinni Óðmönnum á hippatíma-
bilinu. Sjálfur miðar hann upphaf-
ið við það þegar hann gekk til liðs
við skólahljómsveitina á Bifröst á
sínum tíma. „Ég hef lengi ætlað
að fara af stað með gerð sólóplötu.
Árið 2004 stóð það til, í tilefni af
fjörutíu ára tónlistarferli. Þá stóðu
Sölvi Blöndal og Kári Sturluson
fyrir því að safna saman helstu
„hitturunum“, nítján lög voru gefin
út í samvinnu við Skífuna og köll-
uð Gullkorn. Þá þótti mér við hæfi
að koma með nýtt efni. Í tilefni
af sextugsafmælinu ætlaði ég að
gera plötu en þetta er áhættusamt
og dýrt. Og fann ekki grundvöll til
að gera þetta fyrr en núna. Orðinn
þetta gamall og ekki er óendanleg-
ur tími. Eins gott að stökkva frek-
ar en hrökkva.“ Jóhann er ótrú-
lega frjósamur lagahöfundur og á
hundruð laga til að velja úr. Hann
segir lög í raun ný þar til þau komi
út. Einn lagbútur er frá árinu 1969,
þegar hann var í Óðmönnum, en
svo var það ekki fyrr en árið 2002
sem hann samdi restina. „Ég kemst
náttúrulega aldrei yfir að gefa
nema hluta út af þessu efni. Ég hef
gert, það sem ýmsir aðrir hafa ekki
gert, tekið niður ýmsar klikkaðar
hugmyndir, prógressívar, og ekki
fyrr en nú að ég ræð við að vinna
sumt af þessu efni. Sem mótast þá
af tíðarandanum.“ Og eitt lag er
tilbúið, sem reyndar er ekki eftir
Jóhann heldur bróður hans Guð-
mund Reynisson. Gamalt lag sem
heitir „Taktu þér tíma“ – heldur
betur viðeigandi titill.
„Við fengum okkur oft aðeins
úr pela fyrir tónleika í Glaumbæ
og settum niður hugmyndir. Hann
samdi þetta lag og bað mig að
senda demó út til Bandaríkjanna í
stóra söngvakeppni þar: American
Song Festival. Þetta var þegar ég
var í Póker. Og þetta náði að kom-
ast í úrslit. Lagið hefur alltaf verið
að hringla í hausnum á mér síðan.
Samdi texta við það fyrir fjórtán
árum. Hæggengur og langur „pró-
sess“ sem ég er sáttur við,“ segir
Jóhann G. Jóhannsson.
jakob@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 29. júlí 2009
➜ Tónleikar
12.00 Kammerkór Hallgrímskirkju,
Schola cantorum, flytur íslenskar og
erlendar kórperlur á hádegistónleikum í
Hallgrímskirkju við Skólavörðuholt.
20.00 Hljómsveitirnar Seabear
og Amiina ásamt Kippa Kanínus og
Magga, verða með tónleika í Bæjarbíói
við Strandgötu í Hafnarfirði.
21.00 Björg Þórhallsdóttir
sópransöngkona og Elísa-
bet Waage hörpuleikari flytja
íslensk þjóðlög ásamt söng-
lögum eftir m.a. Árna Thor-
steinsson og Sigvalda S.
Kaldalóns á tónleikum
í Reykjahlíðarkirkju í
Mývatnssveit.
21.00 The Foghorns
halda útgáfutónleika
á Grand Rokk við
Smiðjustíg. Einnig
kemur fram á tónleik-
unum Benni Hemm
Hemm.
➜ Síðustu Forvöð
Á Café Rót við Hafnarstræti 17 eru til
sýnis myndverk eftir Wolfram. Sýningu
lýkur á föstudag. Opið kl. 12-23.30.
Arna Óttarsdóttir og Erla Silfá Hor-
dvik Þorgrímsdóttir sýna verk í Gallerí
Sykri í Molanum, menningar- og tóm-
stundamiðstöð ungs fólks í Kópavogi.
Sýningu lýkur 31. júlí. Opið virka daga
kl. 9 til 17.
Sýningu Jón Balvinssonar í Perlunni
við Öskjuhlíð, lýkur 31. júlí. Opið alla
daga kl. 10-21.
➜ Leikrit
18.00 Leikhópurinn Lotta sýnir Rauð-
hettu, nýtt íslenskt leikrit með söngvum
þar sem blandast saman ævintýrin
Rauðhetta, Grísirnir þrír og Hans og
Gréta. Sýningin fer fram í dag í Elliðaár-
dal í Indíánagili.
➜ Leiðsögn
15.30 Anna Þorbjörg Þorgríms-
dóttir safnstjóri verður með leið-
sögn um Nesstofu þar sem hún
segir frá húsinu og fyrirhugaðri upp-
byggingu safnasvæðis í Nesi. Nesstofa
er opin alla daga í sumar kl. 13-17 og
aðgangur er ókeypis.
Nískupúkinn verður haldinn
hátíðlegur á ölhúsinu Bakkusi nú
um verslunarmannahelgina. Jón
Pálmar Sigurðs-
son, einn eigenda
skemmtistaðar-
ins, segir Nísku-
púkann vera fyrir
alla þá sem ekki
fara út á land um
helgina. „Það er
ekki beint föst
dagskrá hjá okkur
en hljómsveit-
in DLX ATX mun leika og einnig
mun Krakkbot taka nokkur lög,“
segir Jón Pálmar og bætir við að
enn eigi fleiri hljómsveitir eftir að
bætast við. „Það verður ókeypis
inn og ódýrar veigar í boði fyrir
gesti. Annars vona ég bara að sem
flestir láti sjá sig og að stemningin
verði góð,“ segir Jón Pálmar. - sm
Nískupúkar
um helgina
Hljómsveitin Jeff Who? hefur bæst
við dagskrá Innipúkans um versl-
unarmannahelgina í ár, en dagskrá-
in er sífellt að taka á sig nýja mynd.
Þá hefur Amiina ásamt Kippa Kan-
ínus og Magnúsi Trygvasyni Eli-
assen, Swords of Chaos og For a
Minor Reflection einnig staðfest
að þau muni spila á hátíðinni.
Eins og áður hefur komið fram
skiptist dagskráin niður á tvo
staði, Batteríið og Sódómu. Sing
for me Sandra opnar hátíðina á
Batteríinu á föstudagskvöld en
þeim fylgja Morðingjarnir, Me,
the Slumbering Napoleon ásamt
Svanhvíti, Sin Fang Bous og Sudd-
en Weather Change. Dagskrá Batt-
erísins endar á Jeff Who?
Á Sódómu sama dag spila Báru-
járn, Bróðir Svartúlfs, Benni
Hemm Hemm, Sykur og Agent
Fresco lýkur kvöldinu með tón-
leikum klukkan hálf tvö.
Á laugardeginum fylla Dikta,
Seabear, Gylfi Ægis og Jóhanna
og Stórsveit Nix Noltes Sódómu.
Á Batteríinu sama kvöld eru hins
vegar K-Tríó, Swords of Chaos,
Borko, Singapore Sling, Retron og
loks FM Belfast. Kvöldin enda því
með miklum dansi, hvorum megin
sem dvalið er.
Á sunnudag er því svo tekið
rólega, Amiina og félagar hefja
kvöldið á Sódómu. Sigríður Thorl-
acius & Heiðurspiltar taka svo við
en Megas & Ólöf Arnalds slá botn-
inn í dagskrána. Á Batteríinu er
stemningin ekki alveg eins lág-
stemmd, Pascal Pinon, For a Minor
Reflection, Hjaltalín og loks hip-
hop-sveitin dularfulla, Fallegir
menn, sjá um skemmtunina þar.
Dagskrá hátíðarinnar er birt með
fyrirvara um breytingar. - kbs
Jeff Who? á Innipúkanum
LÍKA INNIPÚKAR Jeff Who? rífur þakið af
Batteríinu á föstudagskvöldið.
JÓN PÁLMAR
SIGURÐSSON.
DÝRASTA LAG JÓA G.
JÓHANN OG HJÖRLEIFUR MEÐ STRADIVARIUSINN Ferill Jóhanns er orðinn langur,
hæggengur á stundum sem Jóhanni líkar vel, og nú er að hrökkva eða stökkva.
KYNNTU ÞÉR SÝNINGARTÍMA Á SELFOSSI
OG Í KEFLAVÍK Á WWW.SAMBIO.IS
T.V. KVIKMYNDIR.IS
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA!
STÆRSTA BÍÓOPNUN ÁRSINS, YFIR 35.000 GESTIR
„Dazzlingly well made...“
Variety - 90/100 „Hún var FRÁBÆR!“
New York Magazine – 90/100
58.000 GESTIR!
SANDRA BULLOCK RYAN REYNOLDS
TRYGGÐU
ÞÉR MIÐA
Í TÍMA Á
FYNDNUSTU
RÓMANTÍSKU
GAMANMYND
ÁRSINS!
ANDREW ÞOLIR EKKI YFIRMANN SINN. EN TIL AÐ FÁ STÖÐUHÆKKUN
ÞARF HANN AÐ TAKA BÓNORÐI HENNAR
BÓNORÐIÐ
„
“
HERE COMES THE BRIBE...
HYSTERICAL!
H
RIOTOUSLY FUNNY!
THE PROPOSAL kl. 8 - 10 L
HARRY POTTER 6 kl. 7 10- 7
THE PROPOSAL kl. 3:15D - 5:30D - 8D - 10:30D L
THE PROPOSAL kl. 3:15 - 5:30 - 8 - 10:30 VIP
HARRY POTTER 6 kl. 4 - 5 - 7 - 8 - 10:10 10
BRUNO kl. 8 - 10:30 14
THE HANGOVER kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30 12
TRANSFORMERS 2 kl. 5 10
THE PROPOSAL kl. 3:20D - 5:40D - 8D - 10:20D L
HARRY POTTER 6 kl. 5:30D - 8:30D 10
BRUNO kl. 8 - 10:10 14
THE HANGOVER kl. 4 - 6 12
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
14
14
16
16
12
L
L
10
EXTREME MOVIE kl. 4 - 6 - 8 - 10
EXTREME MOVIE LÚXUS kl. 4 - 6
KARLAR SEM HATA KONUR kl. 5 - 8 - 10.50
KARLAR SEM HATA KONUR LÚX kl. 8 - 10.50
BALLS OUT kl. 8 - 10.10
ÍSÖLD 3 3D ÍSLENSKT TAL kl. 3.30 - 5.45 D
ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 3.30 - 5.45
TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 10.50
SÍMI 462 3500
KARLAR SEM HATA KONUR kl. 6 - 9
ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 6
MY SISTERS KEEPER kl. 8
LESBIAN VAMPIRE KILLERS kl. 10
16
L
12
16
16
14
12
L
L
KARLAR SEM HATA KONUR kl. 6 - 7.30 - 9 - 10.30
B13 - ULTIMATUM kl. 8 - 10.10
MY SISTERS KEEPER kl. 8 - 10.20
ÍSÖLD 3 ÍSLENSKT TAL kl. 5.50
BJÖRK: VOLTAIC kl. 6
SÍMI 530 1919
16
12
16
L
14
KARLAR SEM HATA KONUR kl. 5.30 - 7 - 8.30 - 10
MY SISTERS KEEPER kl. 5.40 - 8
THE HURT LOCKER kl. 10.20
ICE AGE 3 ENSKT TAL M/ÍSL. TEXTA kl. 5.50 - 8
ANGELS & DEMONS kl. 10.10
SÍMI 551 9000
S.V. MBLÓ.H.T., Rás 2Heimir og Gulli
Bítið á Bylgjunni.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
EXTREME MOVIE kl. 6, 8 og 10 14
FIGHTING kl. 8 og 10.10 14
HARRY POTTER kl. 4, 7 og 10 10
ÍSÖLD 3 - Íslenskt tal kl. 4 og 6 L
ÍSÖLD 3 - 3D - Íslenskt tal kl. 4 L
„Í Fighting er alvöru
harka og frábærir
leikarar.“
- Boston globe
STÆRSTA KVIKMYNDASERÍA ALLRA TÍMA ER KOMIN Í BÍÓ!
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI