Fréttablaðið - 29.07.2009, Blaðsíða 38
26 29. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. mælieining, 6. komast, 8. fram-
koma, 9. espa, 11. átt, 12. tími, 14.
skýli, 16. tveir eins, 17. sakka, 18.
hamfletta, 20. tvíhljóði, 21. óskerta.
LÓÐRÉTT
1. hvæs, 3. hvort, 4. fugl, 5. kæla, 7.
vinsæll, 10. umfram, 13. til sauma,
15. innyfli, 16. þjálfa, 19. málmur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. desí, 6. ná, 8. fas, 9. æsa,
11. na, 12. stund, 14. skáli, 16. ææ,
17. lóð, 18. flá, 20. au, 21. alla.
LÓÐRÉTT: 1. fnæs, 3. ef, 4. sandlóa,
5. ísa, 7. ástsæll, 10. auk, 13. nál, 15.
iður, 16. æfa, 19. ál.
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Norðaustanátt býður upp á himneska blíðu
í Eyjum,“ segir Einar Sveinbjörnsson veð-
urfræðingur um veðrið um verslun-
armannahelgina. Ekkert í kortun-
um gefur tilefni til að túlka veðrið
á margvíslegan máta. „Venjulegt
veður sem fylgir hægri vindátt
milli norðurs og austurs. Blæs
úr þeim geiranum. Þessi vindátt
er heppileg fyrir Vestmanna-
eyjar. Þá er skjól af Mýrdals- og
Eyjafjallajökli.“ Einhver
lægðartrunta er að
vesenast fyrir sunn-
an og suðaustan land en virðist ætla að strauja
fram hjá landinu. Má litlu muna að hún sendi
úrkomusvæði inn á landið en það gæti sloppið.
Einar treystir sér ekki til að spá fyrir um
veður næstu helgar á þriðjudegi – hvað
þá fyrir einstaka landshluta og svæði.
Áhættusæknari veðurfræðingur er
Sigurður Þ. Ragnarsson – Siggi storm-
ur – enda hópur á Facebook sem skorar
á hann að hafa gott veður um verslun-
armannahelgi. Siggi segir veðurhorf-
ur hagstæðar og vind í lágmarki á
meginhluta landsins. Helst að
blási norðvestanlands. „Á
norðurhluta lands-
ins verður frem-
ur skýjað en
þegar líður á
helgina vaxa
úrkomulík-
ur á öllum norðurhluta landsins. Suðurland-
ið verður sólríkt, ýmist hálfskýj-
að eða léttskýjað meginhluta
helgarinnar og hitinn þar
12-16 stig að deginum. Rétt
er að nefna að fallið geta
síðdegisskúrir sunnan-
lands á föstudag.“
- jbg
Blíða í Eyjum um verslunarmannahelgi
SIGGI STORMUR
Veðurhorfur
hagstæðar
fyrir landið
allt.
EINAR SVEIN-
BJÖRNSSON
Norðaustan átt
er hagstæð
fyrir Vesta-
„Það var eitt nektaratriði í mynd-
bandinu þar sem sést óljóst í liminn
á Daníel Ágústi og það fór eitthvað
fyrir brjóstið á þýsku sjónvarps-
stöðvunum,“ segir Heimir Sverr-
isson kvikmyndagerðarmaður.
Heimir leikstýrir nýju myndbandi
hljómsveitarinnar Gusgus ásamt
Jóni Atla Helgasyni. Þjóðverj-
ar hafa verið þekktir fyrir margt
annað en tepruskap en þrátt fyrir
það þótti þýskum sjónvarpsstöðvum
myndbandið of gróft fyrir áhorfend-
ur sína. „Mér finnst það mjög skrít-
ið því ég hef oft heimsótt Þýskaland
og horft á þýskt sjónvarpsefni sem
er mun grófara en myndbandið
okkar,“ segir Heimir undrandi.
Umrætt myndband er við lagið Ad
this song, sem er jafnframt fyrsta
smáskífan af væntanlegri plötu
Gusgus. Heimir Sverrisson segir
útgáfufyrirtæki hljómsveitarinnar
hafa verið mjög ánægt með mynd-
bandið en þegar verið var að kynna
það fyrir yfirmönnum þýsku sjón-
varpsstöðvanna þótti þeim mynd-
bandið of gróft og neituðu að taka
það til sýningar. Vandinn hefur þó
verið leystur, því Heimir lét klippa
atriðið úr myndbandinu og hefur
nú þegar sent nýja og barnvænni
útgáfu til Þýskalands.
„Við ætlum að setja upprunalegu
útgáfuna á netið, þannig að fólk
getur nálgast hana á heimasíðu
hljómsveitarinnar eða á youtube.
com. Ég vona bara að myndbandið
fái að vera í friði þar.“
Heimir segist nú vera að undir-
búa tökur á myndbandi fyrir aðra
smáskífu Gusgus. „Það er engin
nekt í því myndbandi þannig að það
ætti ekki að valda okkur of mikl-
um vandræðum,“ segir Heimir að
lokum. Myndbandið við Ad this song
verður frumsýnt 31. ágúst.
sara@frettabladid.is
HEIMIR SVERRISSON: MYNDBAND GUSGUS OF GRÓFT FYRIR ÞÝSKALAND
Typpið á Daníel Ágústi fer
fyrir brjóstið á Þjóðverjum
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
SVEKKTIR LEIKSTJÓRAR Viðbrögð Þjóðverja komu leikstjórum myndbandsins, þeim
Heimi Sverrissyni og Jóni Atla Helgasyni, mjög á óvart.
OF GRÓFIR Nýtt tónlistarmyndband
hljómsveitarinnar Gusgus þótti of gróft
fyrir þýskar sjónvarpsstöðvar.
„Hinsegin-hátíðin er önnur stærsta hátíðin í
Reykjavík. Fyrst er menningarnótt og svo er Gay
Pride, en 17. júní er í þriðja sæti,“ segir Ásdís Þór-
hallsdóttir, sviðsstjóri Hinsegindaga. Hátíðin fer
fram í ellefta sinn í Reykjavík dagana 6.-9. ágúst
með fjölbreyttu úrvali atburða og gleðigöngu laug-
ardaginn 8. ágúst.
Aðspurður segir Heimir Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Hinsegin daga, útlit vera fyrir að
fleiri útlendingar muni sækja hátíðina nú en und-
anfarin ár. „Fyrirspurnum að utan sem okkur
berast í gegnum heimasíðuna hefur fjölgað og
fólk virðist vera að koma alls staðar að, svo sem
frá Ástralíu, Bretlandi, Bandaríkjunum og Norð-
urlöndunum. Sumir hafa lengi viljað heimsækja
Ísland en margir koma sérstaklega útaf hátíð-
inni,“ segir Heimir sem býst við mikilli aðsókn. „Í
fyrra voru alls um 70 til 80 þúsund manns á Hins-
egin dögum. Það hafa aldrei verið fleiri en þá og
við verðum ánægð ef við höldum sama fjölda í ár,“
segir hann.
Lítil búð hefur verið opnuð í kjallaranum á
Laugavegi 28 þar sem seldir eru aðgangsmiðar og
ýmis varningur í tengslum við hátíðina. „Nokkr-
ir ráðherrar ætla svo að selja svokölluð húlabönd
í gleðigöngunni, en sala á þeim er aðal fjáröflunin
til að standa undir þessu,“ segir Ásdís. „Þótt það
sé kreppa er engin kreppa í gleðinni og við hvetj-
um sem flesta til að koma niður í bæ og vera „gay
for a day“. - ag
Fleiri útlendingar á Gay Pride
GLEÐI Á GAY PRIDE Heimir Már Pétursson og félagar kynna
Gay Pride í fyrrasumar. Í ár er búist við fleiri útlendingum en
áður. 70-80 þúsund gestir sækja hátíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Árni Páll Árna-
son félagsmála-
ráðherra hefur
verið óvenjulega
óheppinn með dýr
sín að undanförnu.
Þannig fengu
hross hans
illyrmislega
pest og
drápust
eins og
frá var
greint í
fréttum. Þá veiktist ástkær heimilis-
hundur hans, labradortík til sex ára,
af krabbameini. Og svo pirruð varð
hún á veikindunum að hún, þessi
vinalega tík sem hún annars alltaf
var, glefsaði í vin sinn, nágranna-
konu, og var aflífuð í kjölfarið.
Baltasar Kormákur dvelur nú um
stundir á sveitasetri sínu norður í
landi og safnar kröftum fyrir stór-
átökin sem fram undan eru – þau
að hefja tökur á stórmyndinni
Víkingr. Hann gaf sér þó tíma til að
taka á móti tónlistarstjóra myndar
sinnar Inhale sem býður frumsýn-
ingar. James Newton Howard hefur
verið staddur á Íslandi undanfarna
daga, dvaldi á 101 hótel og skoðaði
sig um á Íslandi – en flaug af landi
brott í gær. Howard þessi er enginn
aukvisi, hefur hlotið ótal verðlaun
fyrir kvikmyndatónlist sína við
myndir svo sem My Best
Friends Wedding, The
Village, Interpreter
og Batman Begins
svo dæmi séu
nefnd auk tónlistar
við ER-sjónvarps-
þættina. Þá hefur
Howard átta
sinnum verið
tilnefndur til
Óskarsverð-
launa.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Mér finnst besti bitinn vera
kjúklingaborgarinn á veitinga-
staðnum Saffran.
Sigríður Torfadóttir Tulinius listanemi.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1. Jón Gnarr og Sigurjón
Kjartansson.
2. Paul Krugman.
3. Á Spáni, 18,7 prósent.
Tilvalið í ferðalagið
Án viðbætts salts!Án viðbætts sykurs!
Kjarngóð næring í þægilegum umbúðum barnamatur.is