Fréttablaðið - 05.08.2009, Síða 4
4 5. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR
Vegna fréttar af lánveitingum
Kaupþings til Skúla Þorvaldssonar
athafnamanns skal tekið fram að
Skúli tengist ekki rekstri Hótels Holts
og hefur ekki gert frá árinu 2003.
ATHUGASEMD
WWW.SVAR.IS
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000
SKÓLATILBOÐ!
ALLT AÐ 8 KLST
RAFHLÖÐUENDING
FÁST Í ÖLLUM
REGNBOGANS LITUM
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
30°
25°
27°
26°
25°
27°
28°
25°
23°
25°
31°
24°
32°
34°
24°
29°
31°
24°
Á MORGUN
5-13 m/s
FÖSTUDAGUR
3-10 m/s
15
15
16
16
18
1614
14 18
17
VÆTUTÍÐ
Eftir afar þurran
júlímánuð og það
víða á landinu er
nú viðsnúningur að
verða, einkum sunnan
til. Það má búast við
rigningu eða skúrum
sunnan- og vestan-
lands með hléum
vikuna á enda. Norð-
anlands verður hins
vegar úrkomuminna
þó ekki verði alþurrt.
Hlýtt verður í veðri
næstu daga og um
næstu helgi.
5
5
9
5
3
6
3
5
6
15
5
20
17
13
20 17
14
17
15
18
15
14
16
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
Þrjár á neyðarmóttöku
Þrjár ungar stúlkur leituðu sér aðstoð-
ar á neyðarmóttöku nauðgana um og
eftir verslunarmannahelgina vegna
nauðgunar eða tilraunar til nauðgun-
ar. Tvö tilfellanna áttu sér stað innan
borgarmarkanna en eitt úti á landi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL Mál Jónasar Inga Ragn-
arssonar og Tinds Jónssonar,
sem ákærðir eru fyrir að ætla
að framleiða amfetamín í iðn-
aðarhúsnæði í Hafnarfirði, var
tekið fyrir í Héraðsdómi Reykja-
ness í gær. Þar skiluðu verjendur
greinargerðum þar sem afstaða
sakborninganna tveggja til
sakarefnisins var skýrð.
Verksmiðjan í Hafnarfirði var
ein sú fullkomnasta sem sér-
fræðingur Interpol hefur komist
í kynni við. Þar fundust upphafs-
efni sem dugað hefðu til að fram-
leiða ríflega 350 kíló af amfetam-
íni. Báðir mennirnir neita hins
vegar að hafa ætlað að framleiða
í verksmiðjunni amfetamín. - sh
Neita fíkniefnaframleiðslu:
Verjendur skila
greinargerðum
TEKINN Jónas Ingi hlaut fyrir fjórum
árum dóm í líkfundarmálinu svokallaða.
SVISS, AP Dalaí Lama, leiðtogi
Tíbeta, segist hafa orðið var við
það að meðal Kínverja fari stuðn-
ingur við málstað Tíbeta vaxandi.
Hann segir bæði menntafólk og
alþýðu í Kína sýna meiri skilning
gagnvart stöðu Tíbeta og í einka-
samtölum hafi jafnvel kínverskir
embættismenn sagt sér að þeir
hefðu áhyggjur af Tíbet.
Þetta sagði hann á blaða-
mannafundi í Sviss þar sem hann
heldur tveggja daga fyrirlestr-
anámskeið um búddisma. Hann
segir að senda þurfi alþjóðlegt
rannsóknarlið til Tíbets vegna
átakanna þar á síðasta ári. - gb
Dalaí Lama bjartsýnn:
Segir stuðning í
Kína vaxandi
DALAÍ LAMA Finnur fyrir meiri skilningi í
Kína á málstað Tíbeta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
25 fíkniefnamál í Eyjum
Alls komu um 25 fíkniefnamál upp
á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um
helgina. Í flestum tilfellum var lagt
hald á amfetamín í þessum málum.
Tíu líkamsárásir voru kærðar.
MENNING Stjórn menningarmála-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, bætti handritasafni
Árna Magnússonar, auk 34 ann-
arra menningarminja á sérstaka
varðveisluskrá sína á föstudag.
Handritasafnið var tilnefnt í varð-
veisluskrána af hálfu ríkisstjórn-
ar Íslands og Danmerkur í fyrra,
þar sem hluti safnsins er varðveitt
í Danmörku.
Í rökstuðningi UNESCO segir
að safnið geymi ómetanleg hand-
rit um sögu og menningu Norður-
landa, og raunar stórs hluta Evr-
ópu, allt frá miðöldum til nýaldar.
Guðrún Nordal, forstöðumað-
ur Stofnunar Árna Magnússonar,
segir þetta gleðileg tíðindi sem
staðfesti mikilvægi safnsins og
veki á því athygli á erlendum vett-
vangi.
„Með þessu er UNESCO að segja
að handritin séu minjar sem ber
að hlúa sérstaklega vel að og séu
verðmæti á heimsvísu en ekki bara
á afmörkuðu svæði,“ segir Guðrún.
„Þessi viðurkenning skapar okkur
sóknarfæri til að kynna safnið með
mun markvissari hætti erlendis en
setur okkur líka skyldur á herðar
að búa eins vel að handritunum og
við getum, eins og við höfum reynt
að gera, og miðla þeim og varð-
veita eins og best er á kosið.“
Guðrún segir að næsta verk-
efni verði að bæta húsakost Árna-
stofnunar, sem hefur verið á víð og
dreif hingað til.
„Það eru áform að byggja yfir
Árnastofnun og koma henni í betra
húsnæði sem gerir okkur kleift að
sýna handritin með veglegri og
nútímalegri hætti en húsakost-
ur hefur leyft okkur hingað til og
auka þannig aðgengið að þessum
mikla menningararfi.“ Þá er unnið
að því að koma handritunum yfir
á stafrænt form svo hægt verði að
skoða þau á netinu í framtíðinni.
„Í kjölfarið verðum við síðan að
fylgja þessari viðurkenningu eftir
og það verður spennandi verkefni,“
segir Guðrún. Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra lýsti í gær
yfir sérstakri ánægju með þessi
tíðindi. bergsteinn@frettabladid.is
Handritin með merk-
ustu minjum heims
Handrit Árna Magnússonar hafa verið skráð á heimslista UNESCO yfir verð-
mætustu menningarminjar heims. Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússon-
ar segir þetta staðfesta mikilvægi safnsins og vekja á því athygli um allan heim.
ÁRNAGARÐUR Forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar segir viðurkenningu
UNESCO staðfesta að handritin séu verðmæti á heimsvísu, sem beri að hlúa að,
varðveita og miðla af kostgæfni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Menningarmálastofnun Sameinuðu
þjóðanna, UNESCO, hefur frá 1997
haldið skrá yfir minjar sem þykja
hafa sérstakt varðveislugildi fyrir
andlegan menningararf mannkyns
og nefnist „Memory of the World“,
eða „Minni heimsins“. Nú eru 193
minjar í skránni. Handritasafn Árna
Magnússonar er fyrstu íslensku
minjarnar til að komast í varðveislu-
skrána.
Handritasafn Árna Magnússonar
geymir um þrjú þúsund handrit
frá miðöldum og síðari öldum.
Það er varðveitt hjá Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum í
Reykjavík og í Árnasafni í Kaup-
mannahöfn.
Meðal verka sem bætt var í varð-
veisluskrá UNESCO á föstudag voru
dagbækur Önnu Frank og enski
lagabálkurinn Magna Carta.
HANDRITIN Á HEIMSLISTA UNESCO
RÚSSLAND, AP Rússneskir her-
menn voru í gær í viðbragðs-
stöðu í héraðinu Suður-Ossetíu
við landamæri Georgíu. Vax-
andi spenna er á landamærun-
um.
Undanfarna daga hafa aðskiln-
aðarsinnar í Suður-Ossetíu og
stjórnvöld í Georgíu skipst á
ásökunum um að hafa hleypt af
byssum og skotið sprengjum.
Á föstudaginn verður ár liðið
frá því að nokkurra vikna stríð
Georgíu og Rússlands hófst í
fyrra. Rússar komu þá Suður-
Ossetíu til aðstoðar og náðu hér-
aðinu á vald sitt. - gb
Spenna í Suður-Ossetíu:
Rússlandsher í
viðbragðsstöðu
FLÓTTAMANNABÚÐIR Í TSKHINVALÍ Enn búa flóttamenn í tjöldum í höfuðborg
Suður-Ossetíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Á fimmta tug inn-
brota og þjófnaða voru kærð til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu um helgina. Er það talsvert
meira en undanfarnar verslunar-
mannahelgar. Meðal annars var
brotist inn í fyrirtæki, íbúðarhús-
næði, sumarhús og bíla.
Ekki liggur fyrir hversu mikl-
um verðmætum var stolið né
hversu miklu tjóni þjófar ollu
við að brjótast inn. Lögregla var
fáliðaðri á höfuðborgarsvæðinu
en verið hefur um verslunar-
mannahelgar undanfarin ár.
Nokkrir hafa verið handteknir,
grunaðir um aðild að innbrotum.
- kg
Reykjavík um helgina:
Á fimmta tug
innbrota kærð
GENGIÐ 04.08.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,0354
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,19 125,79
212,03 213,07
180,18 181,18
24,196 24,338
20,687 20,809
17,481 17,583
1,3209 1,3287
196,37 197,55
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR