Fréttablaðið - 05.08.2009, Qupperneq 8
8 5. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR
1 Hvað heitir kajakræðarinn
sem lauk hringferð sinni á kaj-
ak um landið á mánudag?
2 Á hverri Kanaríeyjanna er nú
barist við mikla skógarelda?
3 Hversu margir gestir eru
taldir hafa verið á þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
ársávöxtun
13,9%
Íslandssjóðir hf. er sjálfstætt fjármálafyrirtæki í eigu Íslandsbanka. Íslandssjóðir reka verðbréfa- og
fjárfestingarsjóði fyrir einstaklinga og fagfjárfesta. Nánari upplýsingar er að finna á www.islandssjodir.is
3 ár
11,3% 5 ár
ársávöxtun
Sjóður 5Ríkisskuldabréf – Sjóður 7Löng ríkisskuldabréf –
12,8% 3 ár
10,3% 5 ár
*
*Skv. sjodir.is - þann 30. júní 2009
* Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. Hafa ber í huga að eign í verðbréfasjóði eða fjárfestingarsjóði getur bæði hækkað eða lækkað, allt eftir þróun á markaðsverði þeirra. Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 og Löng ríkisskuldabréf - Sjóður 7, eru verðbréfasjóðir skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og
fjárfestingarsjóði. Íslandssjóðir hf. er rekstrarfélag sjóðanna. Útboðslýsingu og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu Íslandsbanka hf., www.islandsbanki.is. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðanna og þá sérstaklega umfjöllun um áhættuþætti.
JÓ
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
FERÐAÞJÓNUSTA Ferðamenn eyddu
um 90 prósentum meira að meðal-
tali á Íslandi frá janúar til júlí,
en á sama tímabili í fyrra. Mest
er aukningin hjá Dönum, um 150
prósent, og skipa þeir sér nú í efsta
sæti listans sem Bandaríkjamenn
hafa lengst af verið í.
„Mynstrið á ferðamönnum virð-
ist vera að breytast. Áður var þetta
mikið af fólki sem kom til að skoða
náttúruna en nú virðast þeir vera
tilbúnir að kaupa meira,“ segir
Helgi Hrannarr Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Global Refund, sem
sér um umsýslu fyrir Tax Free á
Íslandi. „Íslenskir verslunareig-
endur eiga hrós skilið fyrir að
bjóða upp á öflugt vöruúrval þrátt
fyrir stöðuna,“ segir Helgi.
Þótt aukning sé um 90 prósent
má gera ráð fyrir að 30 til 40 pró-
sent stafi af verðhækkunum, að
sögn Helga. Sagt var frá því í
Fréttablaðinu að aukning í ferð-
um frá Frakklandi er um 55 pró-
sent hjá Icelandair. Helgi hefur
svipaða sögu að segja. „Ef horft
er á Frakka, Þjóðverja, Ítali og
Hollendinga er aukningin í eyðslu
í kringum 110 til 125 prósent“.
Lengst af hafa Bandaríkjamenn
verið í fyrsta sæti yfir þá ferða-
menn sem eyða mestu á Íslandi.
Í fyrra komust Norðmenn í efsta
sætið, en nú hafa danskir ferða-
menn skotist upp á toppinn, að
sögn Helga. Norðmenn eru næst-
flestir, með aukningu um rúm-
lega 100 prósent frá því í fyrra og
Bandaríkjamenn eru í þriðja sæti
með svipaða aukningu.
Aukningin hjá þjóðum á borð
við Kanada, Kína og Rússlandi er
minni, en Kandamenn hafa eytt 67
prósent meira í ár en í fyrra.
Meðaltals endurgreiðsla til
ferðamanna í gegnum Tax Free
hefur aukist um 20 prósent og er
meðaltalsávísun nú 14.500 krón-
ur, að sögn Helga. Þjóð sem sker
sig úr eru til dæmis Rússar, þar
sem meðaltalið er vel yfir 16 þús-
und krónum. Bretar eru hins vegar
með tæplega 12 þúsund krónur.
Þrátt fyrir þessa aukningu í
sölutölum frá janúar til júlí fækk-
aði ferðamönnum um þrjú prósent
á tímabilinu janúar til júní. „Ég
er viss um að við munum ná sama
heildarfjölda á árinu og í fyrra því
það kemur gríðarlegur fjöldi í júlí,
ágúst og september,“ segir Helgi.
vidir@frettabladid.is
Eyðsla ferðamanna
hefur tvöfaldast í ár
Ferðamenn eyða um 90 prósentum meira að meðaltali í ár en í fyrra. Fram-
kvæmdastjóri Global Refund segir íslenska verslunareigendur eiga hrós skilið.
Endurgreiðsla til ferðamanna í gegnum Tax Free hefur aukist um 20 prósent.
FERÐAMENN Þeir ferðamenn sem eyða mestu á Íslandi eru Danir en eyðsla þeirra
hefur aukist um 150 prósent milli ára. Bandaríkjamenn, sem héldu titlinum þar til í
fyrra, eru nú í þriðja sæti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Skóli fær nafn
Ný skólastofnun í Dalabyggð tekur til
starfa um mánaðamótin. Hún hefur
fengið nafnið Auðarskóli. Auðarskóli
varð til við sameiningu grunnskólans
í Búðardal, tónlistarskóla Dalasýslu,
leikskólans Vinabæjar og grunnskól-
ans í Tjarnarlundi.
DALABYGGÐ
HERNAÐUR Samtök hernaðarand-
stæðinga á Norðurlandi lýsa
furðu sinni á því að utanrík-
isráðherra þjóðarinnar skuli
heimila aðflugsæfingar orrustu-
flugvéla Atlantshafsbandalags-
ins og vörslu hergagna þess á
Akureyrarflugvelli undir yfir-
skini loftrýmiseftirlits.
Samtökin krefjast þess að her-
afli bandalagsins yfirgefi Akur-
eyri án tafar og að utanríkis-
ráðherra biðji þjóðina afsökunar
á þeirri fylgisspekt hans við
Bandaríkjaher sem hér birtist.
Slíkur stuðningur við núverandi
útþenslustefnu Bandaríkjanna
og NATO, í Norðurhöfum sem
öðrum heimshlutum, þjóni ekki
hagsmunum íslensku þjóðarinnar
og sé neyðarleg uppákoma fyrir
sitjandi vinstri stjórn. - kg
Hernaðarandstæðingar:
Undrast að flugs-
æfingarnar
SÚDAN, AP Lögreglan í Súdan
beitti í gær táragasi og barefl-
um á tugi kvenna, sem höfðu
efnt til mótmæla fyrir utan
dómstól í höfuðborginni Kart-
úm.
Réttarhöld voru að hefjast
yfir blaðakonunni Lubnu Huss-
ein, sem hafði unnið sér það
til saka að klæðast buxum á
almannafæri. Ströng íslömsk
lög þar í landi leyfa ekki slíkt.
Hún á yfir höfði sér fjörutíu
vandarhögg.
Sumar kvennanna, sem sýndu
henni stuðning með mótmælun-
um í gær, klæddust buxum, en
aðrar hefðbundnari fatnaði. - gb
Buxnadeila í Súdan:
Mótmælendur
barðir kylfum
LUBNA HUSSEIN Fær rembingskoss
frá stuðningsmanni sínum við upphaf
réttarhalda í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍÞRÓTTIR Golfklúbbur Ísafjarðar
býður upp á sex holu golfvöll í
Tungudal þar sem hægt er að æfa
sig ókeypis í golfi.
Sagt var frá því fyrir helgi að
Golfklúbbur Akureyrar hefði
tekið sex holu völl til notkunar
þar sem ókeypis væri í golf. Hall-
dór Rafnsson hjá Golfklúbbi
Akureyrar vissi þá ekki til þess
að á fleiri stöðum en Akureyri
væri hægt að spila golf frítt.
Hins vegar er greint frá því
á vestfirska fréttavefnum bb.is
að boðið sé upp á slíkt hið sama
í Tungudal, og þannig hafi það
verið frá opnun vallarins.
- þeb
Sex holu völlur á Vestfjörðum:
Líka ókeypis í
golf í Tungudal
VEÐUR „Í rauninni má segja að
þessi þurrkur hafi haft merki-
lega lítil áhrif því sprettan í
túnunum er almennt mjög góð,“
segir Valdimar Guðjónsson,
bóndi á Gaulverjabæ í Flóa-
hreppi. Nýafstaðinn júlímánuð-
ur var óvenju þurr víða um vest-
an- og suðvestanvert landið. Fara
þarf aftur til ársins 1889 til að
finna jafn litla úrkomu í júlí,
eftir því sem kemur fram á vef
Veðurstofu Íslands.
Að sögn Valdimars var sprett-
an komin vel af stað í byrj-
un júlímánaðar. „Við fengum
mikla úrkomu í vor þegar mesti
sprettutíminn var og það bjarg-
aði alveg málunum. Ég hefði ekki
boðið í ástandið annars, því þetta
var mjög lítil úrkoma sem við
fengum í júlí. Núna nýtist dögg-
in á næturnar til þess að þetta
spretti.“
Júlímánuður var hlýr og þurr
um mikinn hluta landsins. Meðal-
hiti í Reykjavík var 12,8 stig, og
er það 2,2 stigum yfir meðallagi.
Mánuðurinn er í 3. til 4. sæti
hlýrra júlímánaða frá því sam-
felldar mælingar hófust, en ívið
hlýrra var árin 1991 og 2007 og
jafnhlýtt í júlí árið 1936.
Meðalhitinn á Akureyri var
11,1 stig og er það 0,6 stigum yfir
meðallagi. - kg
Nýliðinn júlímánuður var með þeim hlýjustu síðan mælingar hófust í Reykjavík:
Spretta í túnum góð þrátt fyrir þurrk
BÚSÆLDARLEGT Á SUÐURLANDI Júlímánuður var hlýr og þurr um mestallt landið en
mikil úrkoma í vor gerði það að verkum að ekki varð léleg spretta í túnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
VEISTU SVARIÐ?