Fréttablaðið - 05.08.2009, Page 11
11MIÐVIKUDAGUR 5. ágúst 2009
Það er
Meira Frelsi
0 kr. innan kerfis um helgar í sumar
Fylltu á Frelsið í gegnum Mitt Frelsi og hringdu
svo eða sendu SMS innan kerfis um helgar
í mánuð á eftir án þess að borga krónu.
Þú talar auðvitað áfram við vini þína
innan eða utan kerfis – við fjölgum bara
vinunum um helgar.**
NETIÐ Í SÍMAN
UM
FYLGIR FRELS
INU!
VIÐSKIPTI Alls gefa níu kost á sér
til setu í aðalstjórn Icelandair
Group á hluthafafundi sem verð-
ur haldinn á morgun, 6. ágúst.
Þeir eru: Finnur Reyr Stefánsson,
Friðrik Á. Brekkan, Geirþrúður
Alfreðsdóttir, Hlíf Sturludóttir,
Jón Ármann Guðjónsson, Jónas
Gauti Friðþjófsson, Katrín Olga
Jóhannesdóttir, Pétur J. Eiríks-
son og Sigurður Helgason.
Stærstu hluthafar í Icelandair
Group eru Íslandsbanki, sem á
47 prósent í félaginu, skilanefnd
Landsbankans, sem á um 24 pró-
senta hlut, og Sparisjóðabankinn,
sem á um 10 prósent.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er Sigurður Helgason,
fyrrum forstjóri Icelandair, og
Katrín Olga á vegum Íslands-
banka, Pétur J. Eiríksson, fyrr-
um forstjóri Icelandair Cargo, á
vegum skilanefndar Landsbank-
ans og Jón Ármann á vegum
Sparisjóðabankans. Finnur Reyr
sækist eftir setu vegna eigin hlut-
ar í félaginu. Hann er jafnframt
eini núverandi stjórnarmaður
sem sækist eftir áframhaldandi
setu. Hlíf Sturludóttur, Friðrik Á.
Brekkan og Geirþrúður Alfreðs-
dóttir sækjast eftir stjórnarsetu
vegna eigin hlutar í félaginu, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
Geirþrúður hefur verið flugstjóri
hjá Icelandair og er dóttir Alfreðs
Elíassonar, stofnanda Loftleiða.
- bþa
Níu gefa kost á sér í aðalstjórn Icelandair á hluthafafundi:
Fyrrum forstjórar í framboði
ÞOTUR Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Stærstu
hluthafar í Icelandair eru Íslandsbanki,
skilanefnd Landsbankans og Sparisjóða-
bankinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
PÚTÍN Í TRÉNU Vladimír Pútín, forsæt-
isráðherra Rússlands, hefur verið í fríi
í bænum Kyzyl í Suður-Síberíu. Þar
fann hann þetta tignarlega tré til að
príla upp í. NORDICPHOTOS/AFP
UMFERÐ Umferð úr höfuðborginni var minni um
verslunarmannahelgina en flestar aðrar helgar í
sumar, samkvæmt tölum frá Vegagerðinni. Vega-
gerðin hefur tekið saman tölur um umferð frá
höfuðborgarsvæðinu frá því síðustu helgina í júní,
og var umferð um verslunarmannahelgina minni
en um meðalhelgi. Umferðin var mest síðustu
helgina í júní, en minnst síðustu helgina í júlí.
„Mýtan um verslunarmannahelgina virðist ekki
standast. Hún virðist ekki vera stærsta ferðahelg-
in ef marka má þessar tölur,“ segir Friðleifur Ingi
Brynjarsson, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni.
Það sé í það minnsta tilfellið í ár frá höfuðborgar-
svæðinu. Svo geti þetta verið misjafnt úti á landi.
Umferðin var mæld á fimm stöðum nálægt
höfuð-borgarsvæðinu. Til austurs var mælt á
þremur stöðum, alls staðar var töluvert meiri
umferð en um sömu helgi í fyrra. Undir Ingólfs-
fjalli jókst umferðin um tæp tíu prósent milli ára,
um Hellisheiði um rúm ellefu prósent og um Sand-
skeið um tæp sjö prósent. Til norðurs var mælt
á tveimur stöðum og var umferðin nokkru minni
á þeim báðum en á sama tíma í fyrra. Mælt var
á Árvöllum á Kjalarnesi, þar sem umferðin var
rúmum sex prósentum minni, og um Hvalfjarðar-
göng, þar sem umferðin minnkaði um níu prósent
milli ára. - þeb
Umferð frá höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina:
Minni umferð en aðrar helgar
HVALFJARÐARGÖNG Umferðin til norðurs var talsvert minni
um verslunarmannahelgina nú en í fyrra. Um Hvalfjarðargöng-
in fóru níu prósentum færri bílar en í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL Vöruskiptin í júní
voru hagstæð um 8,7 milljarða
króna. Fluttar voru inn vörur
fyrir 32 millj-
arða en út fyrir
40,7 milljarða.
Fyrstu sex mán-
uði ársins voru
fluttar út vörur
fyrir 212 millj-
arða króna en
inn fyrir 179
milljarða króna.
Á sama tíma-
bili fyrir ári
voru vöruskipti óhagstæð um 37,8
milljarða á sama gengi. Ingólfur
Bender, forstöðumaður greiningar
Íslandsbanka, segir að það sé und-
irliggjandi þróun í þá átt að það
sé meiri afgangur í vöruskipta-
og þjónustujöfnuði. Hann reiknar
með að sú þróun haldi áfram. - bþa
Afgangur nam 8,7 milljörðum
Vöruskipti já-
kvæð í júní
MENNTUN Rúmlega 100 manns
eru nú á Vestfjörðum til að
taka þátt í íslenskunámskeiði
á vegum Háskólaseturs Vest-
fjarða. Nemendurnir á nám-
skeiðinu eru flestir á leið í
skiptinám hér á landi, en þó eru
um þrjátíu þeirra einfaldlega
áhugafólk um íslensku. Íslensku-
námskeiðið hófst á mánudag og
stendur í þrjár vikur.
Íslenskukennslunni er blandað
saman við kynningar á íslenskri
menningu og sögu. Flestir nem-
endurnir gista að Núpi í Dýra-
firði en nokkrir eru á Ísafirði.
Háskólasetrið hefur hvatt
Vestfirðinga til að tala íslensku
við nemendurna, og hjálpa
þannig til við kennsluna.
- þeb
Fjölmennt íslenskunámskeið:
100 útlendingar
læra íslensku á
Vestfjörðum
SUÐUR-AFRÍKA, AP Suður-Afríku-
stjórn segir að hvorki hún né
önnur þróunarríki muni fallast
á frekari aðgerðir gegn hlýnun
jarðar nema ríku þjóðirnar borgi
brúsann.
Embættismenn í Suður-Afríku
hittust í Jóhannesarborg í gær
til að undirbúa sig fyrir næstu
loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, sem haldin verður í
Kaupmannahöfn í vetur.
Þeir sögðu að ríku þjóðirnar
yrðu að leggja til hliðar sem
svarar einu prósenti af heildar-
tekjum jarðarbúa til þess að þró-
unarlönd féllust á niðurstöðuna.
- gb
Suður-Afríka um loftslagsmál:
Ríku þjóðirnar
verða að borga
INGÓLFUR
BENDER