Fréttablaðið - 05.08.2009, Side 14

Fréttablaðið - 05.08.2009, Side 14
14 5. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Þar sem stjórnarkynning frá 25. september 2008, með yfir- liti yfir helstu skuldunauta Kaup- þings lak á netið og í framhaldi af æsingarkenndum viðbrögðum fjölmiðla og stjórnmálamanna við efni hennar, finn ég mig knúinn til að útskýra hvað þarna er á ferð. Þeir sem hafa haft fyrir því að kynna sér efni þessarar skýrslu sjá að Kaupþing stóð ágætlega í lok september síðastliðinn. Raun- ar betur en margir evrópskir bankar á þessum tíma. Veð bank- ans og tryggingar voru enn vel rúm sem er athyglisvert í ljósi þess að markaðir höfðu verið í nær frjálsu falli mánuðina á undan. Enda er bókað í fundar- gerð stjórnar að eftir yfirferð skýrslunnar væri staða bankans betri en menn höfðu þorað að vona miðað við aðstæður. Tilefni skýrslunnar var að upp- lýsa stjórnina um helstu útlán og áhættu bankans. Þar kom fram að heildarútlán og áhætta gagn- vart stærstu viðskiptavinum bankans, að teknu tilliti til lögboð- ins frádráttar vegna veðtrygg- inga í formi reiðufjár, verðbréfa og fasteigna, var undir lögboðnu hámarki, sem nemur 25% af eigin- fjárgrunni. Yfirlýsingar um annað eru rangar og geri ég ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið rannsaki þenn- an þátt sérstaklega, en skýrslur vegna þessa voru sendar ársfjórð- ungslega til FME. Jafnframt er það rangt sem fram hefur komið í fjölmiðlum að stór lán hafi verið veitt viðskiptavinum bankans rétt fyrir hrun. Sú mynd sem dregin hefur verið upp af fjölmiðlum að ákveðnum viðskiptavinum eða hluthöfum hafi verið veitt lán frá bankanum til að koma fjármunum undan í aðdraganda hrunsins, á sér enga stoð í raunveruleikanum. Engar slíkar lánveitingar áttu sér stað síðustu vikur eða mánuði fyrir fall Kaupþings. Þar sem fjölmiðlar umreikna öll lán Kaupþings miðað við gengi krónunnar eins og það er nú hafa þeir nær tvöfaldað þær upphæðir sem koma fram í stjórnarkynn- ingunni. Sé sá háttur hafður á er sanngjarnt að umreikna einnig stærð Kaupþings eins og bankinn var fyrir hrun. Þá sést að þrátt fyrir að þetta séu háar upphæðir, þá verður að skoða þær í sam- hengi við 10 þúsund milljarða króna efnahagsreikning bankans. 100 milljarða króna útlán til eins viðskiptavinar nam einungis 1% af heildarefnahag bankans. Það er mér mikið umhugsunar- efni hvernig þeir sem láku skýrsl- unni komust yfir hana. Einungis örfáir einstaklingar innan bank- ans höfðu þessa skýrslu í rafrænu formi. Ljóst er því að skýrslan hefur verið sótt inn í gagnagrunna bankans eftir fall hans og kemur það undirrituðum ekki á óvart. Rétt er einnig að það komi fram að skýrslan er bókuð í fundargerð stjórnar og er þar með aðgengi- leg Fjármálaeftirlitinu, auk þess sem skýrslan hefur verið aðgengi- leg öllum þeim aðilum öðrum sem hafa með höndum rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna haustið 2008. Allt tal um leyniskýrslu er því rangt, en hins vegar bar eftirlits- aðilum að meðhöndla hana sem trúnaðargagn, vegna hagsmuna viðskiptavina bankans. Fyrir utan umfangið er fátt nýtt sem kemur fram í þessari skýrslu um til dæmis lánveiting- ar til Exista og Robert Tchenguiz. Búið var fyrir nokkrum mánuð- um að leka þeim upplýsingum í Morgunblaðið. Stærstu lán bank- ans til Exista tengjast Lýsingu, sem fyrir sölu var fjármagnað beint af Kaupþingi. Hefur sú stað- reynd verið öllum markaðsaðilum, Fjármálaeftirlitinu og lánshæfis- matsaðilum, lengi kunnug. Þá er rétt að geta þess, sem reyndar er alkunna, að Exista er og hefur verið fjármagnað líkt og fjár- málafyrirtæki, þar sem almenna reglan er sú að lánveitingar eru án sérstakra veðtrygginga. Kaup- þing var einn margra tuga alþjóð- legra banka sem lánuðu Exista án veða. Jafnframt er rétt að geta þess að heildarútlán til viðskipta- vina þýðir ekki heildaráhætta samkvæmt þeim reglum sem um útlánaáhættu gilda. Víða var búið að gera afleiðusamninga við aðra banka til að draga úr áhættu, jafn- framt því sem að sumir helstu við- skiptavina bankans voru með tugi milljarða króna á innstæðum og drógust þær vitaskuld frá þegar raunveruleg áhætta var metin. Rétt er svo í lokin að árétta að bankaleynd er ekki hugsuð fyrir bankana. Hún er hugsuð fyrir viðskiptavinina. Hvers eiga til dæmis dönsk fyrirtæki að gjalda sem hafa verið áratugum saman í viðskiptum við FIH bankann í Danmörku þegar upplýsingar um þeirra lánamál eru nú öllum aðgengileg á netinu? Fyrirsjáan- legt tjón sem ætla má að það geti haft í för með sér fyrir FIH, hefur bein áhrif á hag Seðlabanka Íslands og þar með íslensku þjóð- arinnar. Stjórnmálamenn í leit að stundarfrægð verða að gera sér grein fyrir því að afnám banka- leyndar þýðir vitaskuld ekkert annað en fjöldaflótta íslenskra viðskiptavina til erlendra fjár- málafyrirtækja um leið og færi gefast, með tilheyrandi og viðvar- andi skaða fyrir íslenskt efna- hagslíf. Höfundur er fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings. Staðreyndir úr lánabók Skiptar skoðanir Kristján Kristjánsson, upplýsingafull- trúi forsætisráðuneytisins, útskýrði í kvöldfréttum Sjónvarps á mánudag hvers vegna íslensk stjórnvöld hefðu ekki fylgt málstað Íslendinga og stefnu betur eftir á erlendum vett- vangi. Kristján sagði að Íslendingar væru rúmlega þrjú hundruð þúsund manns og allir hefði mismun- andi skoðun, jafnvel ráðherrar ríkisstjórnarinnar. „Við erum alls ekki sammála um það innbyrð- is, Íslendingar, hvernig við eigum að ljúka Icesave-málinu. Þess vegna er erfitt að fara út í heim og hamra inn einhvern einn boðskap,“ sagði Kristján. Varla svo skiptar Er það svo? Hvað með: „Rétt eins og sparifjáreigendur í Hollandi og Bretlandi varð íslenskur almenningur fyrir barðinu á óprúttnum kaupsýslu- mönnum. Lífskjör á Íslandi munu rýrna mjög vegna þess. Íslendingar vilja standa við sínar skuldbinding- ar en það eru takmörk fyrir því hversu miklar byrðar ríki getur tekið á sig. Hollendingar og Bretar hafa hins vegar reynst óbilgjarnir í samningaviðræð- um og álit eru uppi um hvort ríkið geti staðið við fyrirliggj- andi samninga.“ Hvort sem menn telja að við verðum að semja um Icesave eða ekki, ættu flestir að geta verið sammála um ofangreind atriði. Hefði ekki mátt hamra á þeim? Skiptir kannski engu Ef Kristján hefur á hinn bóginn rétt fyrir sér, að Ísland getur ekki sett fram einn boðskap í Icesave-málinu því það eru svo skiptar skoðanir á málinu heima fyrir, vaknar sú spurn- ing hvort Ísland geti haft skoðun á nokkrum sköpuðum hlut á erlendum vettvangi. Það var kannski eins gott að við fengum ekki sæti í Öryggisráðinu í fyrra. bergsteinn@frettabladid.is SIGURÐUR EINARSSON Í DAG | Lánabók Kaupþings NOTAÐU FREKAR VISA TÖFRASTUNDIR VISA Í SUMAR ÞÚ GÆTIR UNNIÐ Á HVERJUM DEGI! 100 stórglæsilegir ferðavinningar að verðmæti yfir 4.000.000 kr. UMRÆÐAN Ingvar Gíslason skrifar um Icesave Um það þarf ekki að fara í neinar grafgötur nú á þessu stigi málsins að hin svonefnda „dómstóla- leið“ í Icesave-málinu er ófær. Það fyrirfinnst eng- inn dómstóll sem samkomulag yrði um að leita til. Og gerðardómur er út í hött. Íslendingar eiga bara eina völ: Samningaleið. Ekki geri ég lítið úr lögfræðilegum rökum til stuðnings dómstólaleiðinni. Og þó svo að nafntogaðir fræðimenn standi á bak við þessi rök verður að segja sem er að vegvísar kenningasmiða hafa ekki alltaf fótfestu í raunveruleikanum. Og hver er raunveru- leikinn? Hann er sá að Icesave-málið hefur færst inn á hið pólitíska svið. Og ekki getur neinn maður neitað því að pólitíska sviðið er fullgildur vettvangur úrlausna í vissum deilumálum. Það er því rangt að pólitískt mál sé endilega leyst fyrir dómstólum, ekki síst ef um er að ræða milliríkjadeilur. Þær ganga sjaldnast dómstólaleiðina. Íslendingar hafa hingað til ekki verið áfjáðir í að leggja brýn hagsmunamál undir dóm alþjóðadómstóla. Og hvað er það annað en júridísk þráhyggja að ímynda sér að Bretar eða Hol- lendingar standi í því að sækja Icesave-málið fyrir íslenskum dómstóli eins og málum er komið? Ofan á það að vera andstæðingur aðildar Íslands að ESB er ég líka gamall og gróinn framsóknarmað- ur. Mig furðar á fyrirgangi forystumanna Fram- sóknarflokksins gegn Icesave-samningunum. Fram- sókn hefur alltaf sýnt raunsæi að því er tekur til lausnar á málefnaágreiningi. Dómstólaleið er vita- skuld hin rétta leið í flestum almennum málum. En samningaleiðin hentar oftast betur þegar leysa á pólitísk mál og milliríkjadeilur. Fyrir þeirri skoð- un verða færð gild lagarök ef út í það er farið. En á stjórnmálasviði má styðja stefnu og úrlausnir öðrum rökum en hreinlögfræðilegum, bæði heimspekileg- um og félagsfræðilegum. Í Icesave-umræðunni er auk þess beitt tölfræði- og stærðfræðirökum eins og eðlilegt er og ber þá mest á gamalkunnum fram- reikningskúnstum, þó reynslan af þeim sé umdeilan- leg í hagsögu Íslands fram að þessu. Niðurstaða mín er sú að Icesave-málið er pólitískt og verður aðeins leyst með samningum. Höfundur er fv. alþm. Framsóknarflokksins. Icesave-deilan er samningsmál Þ ó að landsmenn séu kannski ekki almennt vel stemmdir fyrir ábendingum Sigurðar Einarssonar, stjórnarfor- manns Kaupþings sáluga, er vert að benda á það sem hann segir um bankaleynd í grein hér í blaðinu í dag. „Bankaleynd er ekki hugsuð fyrir bankana. Hún er hugsuð fyrir viðskiptavinina,“ segir Sigurður. Eins er það með trúnað á sjúkraskýrslum; hann er fyrir sjúk- linga en ekki spítalana. Í bönkum liggja margvíslegar upplýsingar sem ekki eiga erindi við almenning. Venjulegt fólk, til að mynda, verður að fá að hafa sín bankamál út af fyrir sig. En það er líka margt í bönkunum sem þarf að koma fyrir almennings sjónir. Helstu lánveitingar eru þar á meðal. Landsmenn eiga skilyrðislausa heimtingu á að vita hvers vegna fjármálakerfið hrundi. Bankaleyndin er í hámæli í samfélaginu, eina ferðina enn, eftir ótrúlega atburðarás helgarinnar. Upplýsingum er lekið á vefinn, RÚV ætlar að segja frá þeim, Kaupþing og skilanefndin fá lögbannsúrskurð en draga í land eftir hávær mótmæli, meðal annars ráðherra. Í framhaldi af þessu ætlar ríkisstjórnin að breyta lögum um bankaleynd. Það er vel. Núgildandi lagaákvæði er einfalt. Starfsmenn banka eru bundn- ir þagnarskyldu um allt það sem þeir fá vitneskju um í vinnunni og varðar viðskipta- eða einkamálefni viðskiptavinar. Önnur lög, til dæmis um fjármálaeftirlit og starfsemi rann- sóknarnefndar Alþingis, víkja svo þagnarskylduákvæðinu til hliðar. Þó að nokkrir stjórnmálamenn hafi tekið stórt upp í sig um helgina og gefið þeim sem svo kjósa tilefni til að ætla að banka- leynd verði afnumin með öllu er ekkert slíkt í farvatninu. Áform- aðar breytingar á bankaleynd miða að aukinni upplýsingagjöf fjármálafyrirtækja til Fjármálaeftirlitsins. Það þýðir ekki að allir hafi aðgang að öllu. Áformaðar breytingar þýða heldur ekki að upplýsingarnar úr skjalasafni Kaupþings hefðu komið fyrir almenningssjónir með þeim hætti sem þær gerðu. Listi yfir helstu skuldunauta Kaupþings er auðvitað merkileg og fróðleg lesning. Hann staðfestir það sem áður var almennt talið, nefnilega að helstu eigendur bankans voru jafnframt helstu lántakendur. Jafnframt að tryggingum fyrir lánum var áfátt. Þetta er þekkt stef úr íslenskum bankarekstri 21. aldarinnar. Þó að upplýsingarnar séu kærkomnar og veiti almenningi tiltekna sýn á starfsemi Kaupþings má ekki gera of mikið úr formlegu gildi lekans. Fjármálaeftirlitið, sérstakur saksóknari og rannsóknarnefnd Alþingis höfðu aðgang að þessum upplýsingum og það er, jú, það sem öllu máli skiptir. Eflaust verður drjúgu plássi varið í umfjöllun um þessar og sambærilegar lánveitingar annarra banka í skýrslu rannsóknarnefndarinnar og hugsanlega - en bara hugsanlega - verða þær fóður í ákærum saksóknarans. Hið fyrrnefnda skýrist með haustinu þegar skýrslan kemur út. Óvíst er með öllu hver framvinda starfa saksóknarans verður. Draumar um afnám bankaleyndar rætast ekki. Bankaleyndin á sér tvær hliðar BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.