Fréttablaðið - 05.08.2009, Síða 16
5. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR2
„Þetta var alveg ótrúlega gaman
og ég mæli með þessu fyrir alla
sem hafa gaman af annarri menn-
ingu, öðrum tungumálum og þá
sem vilja bara gera eitthvað öðru-
vísi,“ segir Anna Kristín Gunn-
arsdóttir, sem stundaði nám við
fjárhirðaskóla í Baskalandi á Norð-
ur-Spáni fyrir þremur árum.
„Í Baskalandi er mikil hefð fyrir
sauðfjárbúskap og þar eru kind-
urnar mjólkaðar. Þær hafa ekki
mikla ull en gefa góða mjólk sem
notuð er til að búa til osta en osta-
gerð er þekktasta búgrein Baska-
lands. Tilgangurinn með skólan-
um er að viðhalda þessari hefð
og kenna umönnun sauðfjár og
allt sem tengist því,“ segir Anna.
„Baskar eru mjög skemmtilegir
og sauðfjár- og sjávarútvegsfólk
eins og við. Þeir eru mun líkari
Íslendingum en fólk annars stað-
ar á Spáni.“
Námið í skólanum tók sjö mán-
uði, þar af tíu vikur í bóklegu námi
og svo verklegu námi þar sem
farið var á bændabýli til að læra
réttu handtökin.
„Skólinn var upprunalega stofn-
aður af munkum og er staðsettur
uppi í fjalli í sveit í klukkutíma
akstursfjarlægð frá borginni San
Sebastian. Hann er nú rekinn af
ríkinu en þar eru enn munkar sem
kenna; þarna er klaustur og gríðar-
leg náttúrufegurð,“ segir Anna og
bætir við að hún hafi verið eini
útlendingurinn af sautján nemend-
um í skólanum það árið. Oft sæki
Chile-menn á námsstyrkjum nám,
þar sem mikill samgangur sé milli
þeirra og Baska.
Ostagerð var í mestu uppáhaldi
hjá Önnu sem segir fögin hafa
verið miserfið. „Bóklega námið
var ekkert erfitt en það verklega
tók á bæði andlega og líkamlega.
Þetta var mikil verkleg vinna og
maður varð að fylgjast vel með,
vera vakandi allan tímann og
spyrja mikið. Svo tók sérstaklega
á að tala tungumálið ekki fullkom-
lega en Baskarnir voru alveg til-
búnir að tala við mig á spænsku,“
segir Anna, sem er nú við nám í
Landbúnaðarháskólanum á Hvann-
eyri.
„Ég er búin með eitt ár og
útskrifast eftir tvö með BS-gráðu
í búvísindum. Ég gæti hugsað mér
að gera ýmislegt við gráðuna, jafn-
vel blanda ostagerðinni þar inn.
Svo er kennsla líka möguleiki eða
rannsóknarstörf. Það væri nátt-
úrulega draumurinn ef ég gæti
eignast jörð og gerst bóndi.“
heidur@frettabladid.is
Sauðfjárbúskapur í
fjallshlíðum Baskalands
Anna Kristín Gunnarsdóttir stundaði nám við fjárhirðaskóla í Baskalandi á Norður-Spáni og segist hafa
lært margt nytsamlegt af dvölinni. Nú dreymir hana um að verða bóndi og eignast jörð á Íslandi.
DRAUGAFERÐ Þjóðsagnapersónur og draugar eru
meginþema ferðar þar sem ekið er austur fyrir fjall, gegnum
Selfoss og komið við í Gaulverjabæjarhreppi og á Stokkseyri.
Síðan er ekið til baka á Selfoss. Sjá www.draugasetrid.is.
Bærinn sem Anna bjó á meðan hún var í verklega náminu, en staðurinn heitir Zumarraga. Anna fyrir miðri mynd og vinnu-
veitandi hennar Marijosé Jauregi til vinstri. MYND/GUNNAR H. GUÐMUNDSSON
Kind af fjárkyninu Latxa í skjóli fyrir
vindinum í hlíðum Txindoki fjalls.
,
MISTY
Gó jónusta - fagleg rá gjöf
Laugavegi 178, 105 R
sími 551-3366 - www.misty.is
teg. 5209 - fl ottur og heldur vel að í
DE skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl kr.
1.950,-
teg. 810858 - glæsilegur og létt fylltur
í BC skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á
kr. 1.950,-
Opið mán-fös kl. 10-18
Lokað á laugardögum í sumar
gtv@gtv.is - www.gtv.is
Rauðhellu 1 - 221 Hafnarfjörður - Sími 580 16 00 Fax 580 16 01