Fréttablaðið - 05.08.2009, Síða 28
5. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR24
Í gær tók ég kvöldið sérstaklega frá til að horfa á So You Think You
Can Dance? á Stöð 2. Þrátt fyrir að vera mikil áhugamanneskja um
dans hef ég ekki fylgst almennilega með þættinum
fyrr en núna. Ég verð að viðurkenna að þegar ég
heyrði fyrst af þættinum var ég hrædd um að hann
yrði ekki sýndur lengi hér á Íslandi. Ástæðan var
einfaldlega sú að ég taldi hann vera of sérhæfðan
fyrir svo fámenna þjóð, þar sem dansheimurinn er
tiltölulega lítill. Sem betur fer skjátlaðist mér, því
það kom fljótt í ljós að áhuginn er svo sannarlega
fyrir hendi og til marks um hversu breiðir áhorf-
endahópurinn virðist vera veit ég um heimilisfeður
sem mega ekki missa úr eitt mánudagskvöld.
Í þættinum eru dansararnir paraðir saman og
látnir læra mismunandi tegundir af dansi í hverri
viku með hjálp höfundanna. Á bak við hvern dans er saga sem oft
er tjáð á áhrifamikinn hátt af dönsurunum, líkt og nútímadans um
brjóstakrabbamein sem sýndur var fyrr í seríunni og var vægast
sagt eftirminnilegur. Tónlistin og búningarnir spila ekki síður stórt
hlutverk í heildarútkomunni.
Þegar öllu er á botninn hvolft er það hin mesta
skemmtun að sjá hvernig dönsurunum reiðir af
þegar þeir takast á við ný og krefjandi verk í hverri
viku og dansstíl sem þeir hafa jafnvel enga reynslu
af. Þá skiptir engu máli hvort áhorfendur hafa
reynslu af dansi eða kunnáttu í faginu, því atriðin
eru hin mesta skemmtun og hver og einn getur
dæmt hvort honum finnst vel til takast hverju
sinni. Dómararnir eru svo þeir sem koma með
punkta um tæknileg atriði sem hefðu betur mátt
fara, en hinn almenni áhorfandi þarf ekki að hafa
sérstakar áhyggjur af því, heldur einungis að gera
upp hug sinn um hvaða dansara hann heldur mest upp á og njóta
skemmtunarinnar.
VIÐ TÆKIÐ ALMA GUÐMUNDSDÓTTIR ER DOTTIN Í „SO YOU THINK YOU CAN DANCE?“
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
15.50 Heimsmeistaramót íslenska
hestsins (e)
16.05 Út og suður (e)
16.35 Leiðarljós
17.20 Táknmálsfréttir
17.30 Púkka (19:26)
17.55 Gurra grís (98:104)
18.00 Disneystundin Gló magnaða, Sí-
gildar teiknimyndir og Nýi skólinn keisa-
ranns.
18.54 Víkingalottó
19.00 Fréttir
19.30 Veðurfréttir
19.35 Kastljós
20.10 Ljóta Betty (Ugly Betty) Banda-
rísk þáttaröð.
20.50 EM stelpurnar okkar (1:4)
21.10 Kingdom lögmaður (Kingd-
om II) (3:6) Breskur gamanmyndaflokkur.
Aðal hlutverk: Stephen Fry, Hermione Norris,
Celia Imre, Phyllida Law og Karl Davies.
22.00 Tíufréttir
22.15 Veðurfréttir
22.25 Sögur frá Botsvana Sænsk heim-
ildarmynd þar sem farið er með skoska
metsöluhöfundinum Alexander McCall
Smith til Botsvana.
23.20 Heimsmeistaramót íslenska
hestsins Stutt samantekt frá keppni á
heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Sviss.
23.35 Mótókross Þáttur um Íslands-
mótið í mótókrossi sem er torfærukappakst-
ur á vélhjólum.
00.05 Kastljós (e)
00.35 Dagskrárlok
06.00 Pepsi MAX tónlist
08.00 Rachael Ray (e)
08.45 Pepsi MAX tónlist
17.35 Rachael Ray Spjallþáttur þar sem
Rachael Ray fær til sín góða gesti og eldar
gómsæta rétti.
18.20 Style Her Famous (14:20) (e)
18.50 Design Star (2:9) Bandarísk raun-
veruleikasería þar sem efnilegir hönnuðir fá
tækifæri til að sýna snilli sína. (e)
19.40 Psych (7:16) Bandarísk gamanþátta-
röð um ungan mann með einstaka athyglis-
gáfu sem þykist vera skyggn og aðstoðar lög-
regluna við að leysa flókin sakamál. (e)
20.30 Monitor (7:8) Skemmtiþáttur
fyrir ungt fólk sem unninn er af tímaritinu
Monitor. Kynnir þáttarins er Erna Bergmann.
21.00 Britain’s Next Top Model (6:10)
Núna þurfa stúlkurnar að leika í tónlistar-
myndbandi en ein þeirra er ekki ánægð
með fötin sem hún þarf að klæðast. Móður-
eðli stúlknanna skín í gegn í myndatökunni
og að því loknu halda stúlkurnar afmælis-
veislu þar sem ein bregður á leik í hlutverki
strippara.
21.50 How to Look Good Naked (6:8)
Carson Kressley hjálpar konum með lítið
sjálfsálit að hætta að hata líkama sinn og
læra að elska lögulegar línurnar.
22.40 Penn & Teller: Bullshit (35:59)
Penn & Teller leita sannleikans en takmark
þeirra er að afhjúpa svikahrappa og lyga-
laupa með öllum tiltækum ráðum.
23.10 Law & Order: Criminal Intent
(11:22). (e)
00.00 CSI (14:24) (e)
00.40 The Dudesons (4:8) (e)
01.10 Pepsi MAX tónlist
07.00 Barnatími Stöðvar 2 Könnuðurinn
Dóra, Stóra teiknimyndastundin og Bratz.
08.15 Oprah
08.55 Í fínu formi
09.10 Bold and the Beautiful
09.30 Doctors (3:25)
10.00 Doctors (4:25)
10.35 Tekinn 2 (5:14)
11.05 Gilmore Girls
11.50 Gossip Girl (20:25)
12.35 Nágrannar
13.00 Hollyoaks (248:260)
13.25 Creature Comforts
13.50 The Loop (1:10)
14.15 E.R. (2:22)
15.00 The O.C. 2 (7:24)
15.45 Barnatími Stöðvar 2 Leðurblöku-
maðurinn, Ben 10, Stóra teiknimyndastundin
og Dynkur smáeðla.
17.08 Nágrannar
17.33 Bold and the Beautiful
17.58 Friends (15:25)
18.23 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.47 Íþróttir
18.54 Ísland í dag
19.11 Veður
19.20 The Simpsons
19.45 Two and a Half Men (18:24)
Alan lendir í fjárhagserfiðleikum þegar hann
neyðist til að borga reikningana fyrir kær-
ustuna.
20.10 Supernanny (1:20) Ofurfóstran Jo
Frost er mætt aftur og ætlar að kenna ungu
og ráðþrota fólki að ala upp og aga litla og
óferjandi ólátabelgi.
20.55 The Summit Fyrri hluti hörku-
spennandi framhaldsmyndar.
22.25 Monarch Cove (8:14) Ung kona
snýr aftur til heimabæjar síns, Monarch Cove.
23.10 Sex and the City (18:18)
23.40 In Treatment (12:43)
00.10 Eleventh Hour (3:18)
00.55 E.R. (2:22)
01.40 Sjáðu
02.10 Sympathy For Mr. Vengeance
04.10 Supernanny (1:20)
04.55 The Simpsons
05.20 Fréttir og Ísland í dag
15.55 Gillette World Sport 2009 Fjöl-
breyttur íþróttaþáttur þar sem farið er yfir
það helsta sem er að gerast í íþróttunum út í
heimi og skyggnst á bak við tjöldin.
16.25 PGA Tour 2009 - Hápunktar
Sýnt frá hápunktunum á PGA mótaröðinni
í golfi.
17.20 Sumarmótin 2009 Sýnt frá Rey-
Cup mótinu en þangað mættu til leiks fjöldi
drengja og stúlkna á öllum aldri.
18.00 Pepsímörkin 2009 Magnús Gylfa-
son og Tómas Ingi Tómasson fara yfir alla
leiki umferðarinnar ásamt íþróttafréttamönn-
um Stöðvar 2 Sport.
19.00 Fjölnir - Þróttur Bein útsending
frá leik í Pepsi-deild karla í knattspyrnu.
21.15 Meistaradeildin - Gullleikir AC
Milan - Barcelona 1994.
23.00 The Harlem Globetrotters Þáttur
sem gerður var um þetta fræga körfuboltalið
sem ferðast um heiminn og sýnir listir sínar.
23.55 Fjölnir - Þróttur Útsending frá leik
í Pepsí-deild karla.
01.45 Poker After Dark Margir af snjöll-
ustu pókerspilurum heims mæta til leiks í
Texas Holdem.
04.54 Fjölnir - Þróttur Útsending frá leik
í Pepsí-deild karla.
MIÐVIKUDAGUR
▼
▼
▼
▼
SJÓNVARPIÐ SKJÁREINN
OMEGA
Dagskrá allan sólarhringinn.
STÖÐ 2
20.00 Borgarlíf Marta Guðjónsdóttir
ræðir um málefni borgarinnar.
20.30 Íslands safarí Akeem R. Opp-
ang ræðir er um málefni innflytjenda á Ís-
landi. (e)
21.00 Reykjavík – Akureyri – Reykja-
vík Seinni hluti. Opinber heimsókn ÍNN í
höfuðstað Norðurlands. Umsjón Árni Árna-
son og Snorri Bjarnvin Jónsson. (e)
21.30 Eldað Íslenskt Matreiðsluþáttur
með íslenskar búvörur í öndvegi.
08.00 An Inconvenient Truth
10.00 Home Alone
12.00 Flicka
14.00 Prime
16.00 An Inconvenient Truth
18.00 Home Alone
20.00 Bad Medicine Gamanmynd um
námsmann sem fær inni í læknaskóla í
Suður-Ameríku þar sem skólinn og starfslið
hans er ákaflega óvenjulegt.
22.00 Miami Vice
00.10 Flags of Our Fathers
02.20 Blow Out
04.05 Miami Vice
19.00 Fjölnir – Þróttur, beint
STÖÐ 2 SPORT
19.45 Two and a Half Men
STÖÐ 2
20.30 Monitor SKJÁREINN
21.10 Kingdom SJÓNVARPIÐ
21.40 Little Britain
STÖÐ 2 EXTRA
16.55 Lyn - Liverpool Bein útsending frá
vináttuleik sem fer fram í Noregi.
18.55 Premier League World 2009/10
Flottur þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er
skoðuð frá ýmsum hliðum.
19.25 Goals of the Season 2007 Öll
glæsilegustu mörk hverrar leiktíðar Úrvals-
deildarinnar frá upphafi til dagsins í dag.
20.20 PL Classic Matches Liverpool -
Chelsea, 1997. Hápunktarnir úr bestu og
eftirminnilegustu leikjum úrvalsdeildarinnar.
20.50 Lyn - Liverpool Útsending frá leik
sem fór fram í Noregi.
22.30 Chelsea - Bolton Útsending frá
leik í ensku úrvalsdeildinni.
> Jo Frost
„Ef börn hafa ekkert reglu-
verk til að styðjast við þá
búa þau til sínar eigin reglur
og venjast þeirri neikvæðu
athygli sem þau fá.“
Ofurfóstran Frost sýnir
hvernig á að haga upp-
eldi barna í þættinum
Supernanny sem Stöð
2 sýnir í kvöld kl.
20.10.