Fréttablaðið - 17.08.2009, Side 4

Fréttablaðið - 17.08.2009, Side 4
4 17. ágúst 2009 MÁNUDAGUR ALVÖRU SÁLFRÆÐITRYLLIR D Y N A M O R E Y K JA V ÍK www.bjartur.is Ný stjarna á himni reyfarahöfunda Þýðandi: Bjarni Jónsson BEINT Í 3. SÆTI METSÖLULISTA EYMUNDSSON D Y N A M O D Y N A M O M R E Y K J R E Y K JA V A V AA ÍKÍ IÐNAÐUR Álverð er komið í 2.028 dollara á tonnið og hefur ekki verið hærra síðan í byrjun nóv- ember á síðasta ári. Eftir að álverð náði hámarki í júlí á síð- asta ári í um 3.300 dollurum á tonnið hrapaði það töluvert í kjöl- far alþjóðlegu fjármálakreppunn- ar síðasta haust. Fór álverð niður í tæplega 1.300 dollara á tonnið í mars síðastliðnum og hefur verið að skríða upp síðan. Sérfræðingar segja að þetta gæti verið skammgóður vermir, enda sé markaðurinn einungis að leiðrétta það gríðarlega fall sem varð á álverðinu á síðustu mánuðum. - vsp Álverð hækkar og hækkar: Ekki hærra frá því í nóvember VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 23° 19° 20° 19° 21° 24° 29° 29° 29° 29° 29° 33° 30° 23° 28° 32° 33° 20° 12 13 10 12 12 13 14 Á MORGUN 10-15 m/s syðst, annars 5-10 m/s MIÐVIKUDAGUR 5-13 m/s 12 13 13 13 8 6 3 1 1 3 1 3 5 3 5 2 12 12 12 1315 13 13 1215 BREYTINGAR SÍÐDEGIS Á MORGUN Seinni partinn á morgun fer að gæta breytinga á veðrinu þegar vindur vex og úrkoma nálgast, fyrst sunnan til á landinu. Aðfaranótt miðviku- dags gengur svo úrkomusvæðið yfi r landið og fyrir hádegi á miðvikudag verður víða rigning. Með komu lægðarinnar fylgja ágæt hlýindi. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur STJÓRNMÁL Fjallað er ítarlega um bankahrunið á Íslandi í breska dag- blaðinu Daily Telegraph, bæði um aðdragandann og eftirmál þess. Farið er yfir Icesave- málið og gremju íslensku þjóðarinnar yfir því að þurfa að borga brúsann vegna óhófs nokkurra ríkra manna. Rætt er við Jón Daníelsson, hag- fræðiprófessor í London, og Ólaf Ísleifsson, prófessor við Háskól- ann í Reykjavík. Ólafur segir bankakerfið á batavegi en Jón er ekki á sama máli. „Hlutirnir hafa ekki gengið sem skyldi og ástandið er orðið verra en áður,“ segir Jón. „Stjórnvöld verða að finna þá sem báru sökina og refsa þeim. Það er mikilvægt ef þjóðin á að geta jafnað sig.“ - fb Bresk grein um bankahrunið: Ósammála um bankakerfið JÓN DANÍELSSON GENGIÐ 14.08.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 233,4663 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,89 126,49 208,17 209,19 179,63 180,63 24,125 24,267 20,819 20,941 17,645 17,749 1,3241 1,3319 196,30 197,46 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR KÚVÆT, AP 35 konur og sex börn fór- ust og 58 manns til viðbótar voru flutt á sjúkrahús eftir að eldur braust út í tjaldi í brúðkaupi rétt fyrir utan Kúvætborg. Aðeins einar útgöngudyr voru á tjaldinu og er talið að margir hafi troðist undir þegar þeir reyndu að flýja eldinn. Búist er við því að reglur um veislur í tjöldum sem þessum verði hertar eftir eldsvoðann, sem er talinn einn sá mesti í Kúvætborg í fjörutíu ár. Rannsókn á upptökum eldsins stendur yfir. Á meðal lík- legra orsaka er bilun í rafmagns- snúrum eða vandræði með búnað sem var notaður til að halda hlað- borðinu í tjaldinu heitu. - fb Skæður eldsvoði í Kúvæt: Tugir fórust í brúðkaupi Á SLYSSTAÐ 35 konur og sex börn fórust í eldsvoðanum í Kúvæt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP MENNTAMÁL Menntamálaráðu- neytið hefur auglýst eftir umsóknum í Æskulýðssjóð. Umsóknarfresturinn rennur út 1. september. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka, til dæmis í sérstök verkefni fyrir börn og ungmenni og þjálfun leiðbein- enda. Frekari upplýsingar er að finna á vef menntamálaráðuneytisins. - þeb Æskulýðssjóður: Auglýst eftir umsóknum Fólk fast í lyftu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um eittleytið aðfaranótt sunnudagsnótt eftir að fólk festist í lyftu á Kleppsvegi. Greiðlega gekk að ná því út úr lyftunni. Olíuleki í Mjódd Olíuleki varð í Mjódd um tíuleytið í gærmorgun eftir að mótorhjól fór á hliðina. Slökkvilið höfuðborgarsvæð- isins var kallað á svæðið til að hreinsa olíuna. Rúta út af veginum Rúta með erlendum ferðamönnum fór út af veginum við afleggjarann að Kerlingarfjöllum laust fyrir klukkan þrjú í gær. Einn farþegi slasaðist á öxl en aðrir sluppu ómeiddir. 28 manns voru í rútunni, sem er ónýt eftir slysið. LÖGREGLUFRÉTTIR BANGKOK, AP Bandaríkjamannin- um John Yettaw, sem sat í fang- elsi í Búrma fyrir að heimsækja lýðræðissinnann Aung San Suu Kyi, hefur verið sleppt lausum og honum vísað úr landi. Bandarísk yfirvöld fóru fram á að honum yrði sleppt lausum vegna veikinda sem hann stríðir við og urðu yfirvöld í Búrma við þeim óskum. Flaug hann til heimalands síns í gær. Yettaw var í síðustu viku fund- inn sekur um að hafa í maí síð- astliðnum heimsótt Suu Kyi þrátt fyrir stofufangelsi hennar. Synti hann að heimili hennar og dvaldi hjá henni í tvo daga. Þegar Yettaw, sem er 53 ára, var handtekinn í vor sagðist hann hafa verið sendur af Guði til að vara Suu Kyi við því að til stæði að myrða hana. „Ég ætla ekki að verja það sem hann gerði en ég tel að stjórnvöld hafi sýnt góða viðleitni með því að leyfa honum að snúa heim til fjölskyldu sinnar af mannúðar- ástæðum,“ sagði þingmaðurinn Jim Webb, sem samdi um lausn hans. „Vonandi eiga samskipti Bandaríkjanna og Búrma eftir að batna í framhaldinu.“ Á meðan Webb dvaldi í Búrma bað hann stjórnvöld í landinu um að íhuga að aflétta stofufangelsi Suu Kyi og leyfa henni að taka þátt í undirbúningnum fyrir næstu kosningar í landinu sem verða haldnar á næsta ári. - fb Bandaríkjamaðurinn John Yettaw laus úr fangelsi í Búrma: Sleppt af mannúðarástæðum JOHN YETTAW Yettaw, sem á við veikindi að stríða, hefur verið sleppt lausum úr fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÚTIVIST Margaret Mann, lausamað- ur í leikhúsum frá New York, er á síðustu metrunum á rúmlega 2.300 kílómetra kajaksiglingu sinni umhverfis Ísland. Ferðalagið hófst í Reykjavík fyrir 10 vikum og er hún stödd í Vestmannaeyjum sem stendur, eftir tæplega 11 klukku- stunda róður frá Vík í Mýrdal. Margaret hefur ekki einung- is verið að sigla heldur hefur hún tekið sér tíma til að fara í göngu- ferðir, heimsótt menningartengda staði og hitt Íslendinga. Á sumum stöðum er hún í nokkra daga og gistir hún aðallega í tjaldi. Þakkar hún þó Íslendingum fyrir gestrisni þeirra en nokkrir hafa veitt henni húsaskjól á ferðum hennar. En hver hefur verið erfiðasti kaflinn? „Ég hef oftast lent í góðu veðri en á Norðurlandi var þetta erfitt. Ég veit ekki hvort það var vegna veðursins eða hvort það var sálfræðilegt, þar sem ferð- in var þá hálfnuð,“ segir Marg- aret en henni þótti Jökulsárlón einnig erfitt. Kajakróður hefur verið áhugamál hennar frá árinu 2002 og stundar hún kajakróður í Hudson-ánni í New York. En hver er ástæðan fyrir því að hún kom til Íslands? „Það var manneskja sem bað mig um að koma og róa með sér kringum Ísland. Hún ákvað í mars að hætta við. Ég vildi hins vegar ekki sleppa þessu því ég var búin að undirbúa ferðina mikið,“ segir Margaret. Hún segir einveruna ekki endilega erfiða þar sem hún sé að eðlisfari einfari og Íslendingar hafi reynst vinalegir. Margaret leggur af stað til Þor- lákshafnar í dag og mun vera þar í nokkra daga. Segist hún eiga þrjá daga eftir af róðri og hafi því nægan tíma þar sem hún á ekki pantað flug heim til New York fyrr en 27. ágúst. vidir@frettabladid.is Tíu vikna kajakferð umhverfis Ísland Margaret Mann frá New York er á síðustu metrunum á 2.300 kílómetra kajak- siglingu umhverfis Ísland. Norðurland og Jökulsárlón voru erfiðir staðir, að mati New York-búans sem á þrjá daga eftir af kajakróðri frá Vestmannaeyjum. STÓR OG LÍTILL Kajak Margaretar virðist ekki stór miðað við fjölveiðiskipið Gæfu VE11 sem var í Vestmannaeyjahöfn þegar Margaret kom þangað í gær. MYNDIR/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.