Fréttablaðið - 17.08.2009, Qupperneq 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Að sitja við gluggann í stofunni
minni í Garðabænum og horfa yfir
sjóinn er einstök upplifun,“ segir
Halla Har, gler- og myndlistar-
kona, sem þó var stödd í berjamó í
Skorradalnum þegar náðist í hana.
„Ég er nú fædd og uppalin á Siglu-
firði þannig að ég er sjávarstelpa
í mér.“
Halla segir þau hjónin oft sitja
við útsýnið á kvöldin. „Það er svo
mikið dýralíf þarna, svanir, endur
og gæsir og selir sjást líka einstöku
sinnum,“ upplýsir Halla og heldur
áfram: „Á sumrin er sólarlagið svo
fallegt hérna en það er líka mjög
vetrarfallegt,“ útskýrir Halla en í
góðu skyggni sést langt út á sjó.
Aðspurð segist Höllu finnast
gott að búa við sjóinn en þó hefur
hún ekki alltaf gert það. „Við áttum
heima í Keflavík og þar bjuggum
við ekki við sjóinn þó að við höfum
séð út á hann frá heimili okkar,“
segir Halla. Þau hjónin bjuggu
einnig í Danmörku um tíma. „Þar
bjuggum við ekki heldur við sjó-
inn og vorum dálítið lengi að skilja
hvað það var sem vantaði svona
rosalega,“ segir Halla og bætir
við að þau hafi þó oft lagt leið sína
niður að sjó.
„Ég hef alltaf verið mikið fyrir
útsýni. Þegar við áttum heima í
Keflavík voru margir hissa þegar
þeir sáu útsýnið okkar. Við höfum
alltaf valið íbúðir eftir því hvern-
ig útsýnið er,“ segir Halla, sem
eyðir miklum tíma í íbúðinni við
sjóinn í Garðabænum vegna vinnu
sinnar.
„Ég er mjög mikið heima. Ég
er með vinnustofu heima og mála
flesta daga,“ upplýsir Halla, sem
hefur sett upp sýningu í Jónshúsi
í Garðabæ og mun opna aðra sýn-
ingu á Ljósanótt í Reykjanesbæ.
„Íbúðin er þriggja ára, björt og fal-
leg. Ég er fagurkeri í mér og finnst
gaman að vera með falleg húsgögn
í kringum mig. Við höfum allt ein-
falt í kringum okkur en mér finnst
æðislegt að vera með fallega liti.“
martaf@frettabladid.is
Valdi hús eftir útsýninu
Halla Har nýtur útsýnisins frá stofuglugganum í Garðabæ og á löngum sumarkvöldum situr hún og horfir
yfir sjóinn. Dögunum eyðir hún hins vegar í vinnustofu sinni inni á heimilinu og málar flesta daga.
Halla Haraldsdóttir þreytist aldrei á útsýninu við heimili sitt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SJÓMINJASAFNIÐ VÍKIN að Grandagarði 8 er opið alla daga
vikunnar frá 11 til 17. Leiðsögn um varðskipið Óðin er klukkan 13, 14
og 15. Í safninu má bæði skoða áhugaverðar sýningar en einnig
tylla sér í Safnakaffinu sem býður upp á góðar veitingar
og einstakt útsýni yfir gömlu höfnina.
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Óseyri 2, Akureyri, 461 1150 • Opið virka daga kl. 12:00-18:00 – laugardaga kl. 12:00-16:00
www.svefn.is
Stillanleg rúm á sumartilboði
Ein besta heilsudýna í heimi
Gerið samanburð
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Þrífandi og hrífandi
gæða-ryksugur frá Siemens.
Þú finnur þá réttu hjá okkur.
Líttu inn.
s
g Mjódd
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 21. ágúst n.k.