Fréttablaðið - 17.08.2009, Page 34
22 17. ágúst 2009 MÁNUDAGUR
Kópavogsvöllur, áhorf.: 1.475
Breiðablik Fram
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 8–11 (5–5)
Varin skot Ingvar 3 – Hannes 2
Horn 4–7
Aukaspyrnur fengnar 12–12
Rangstöður 1–1
FRAM 4–5–1
Hannes Halldórsson 5
Daði Guðmundsson 4
Auðun Helgason 4
Kristján Hauksson 4
Sam Tillen 6
Ingvar Ólafsson 2
(46. Jón Guðni F. 7)
Almarr Ormarsson 6
Halldór H. Jónsson 6
Joe Tillen 5
Hjálmar Þórarinsson 3
(46. Guðm. Magn. 6)
*Maður leiksins
BREIÐAB. 4–3–3
Ingvar Þór Kale 5
Árni Kr. Gunnarsson 5
Guðmann Þórisson 4
Elfar Freyr Helgason 5
Kristinn Jónsson 7
(26. Arnór Sveinn 5)
Finnur O. Margeirss. 6
Arnar Grétarsson 5
(85. Olgeir Sigurg. -)
*Guðm. Kristjánss. 8
Alfreð Finnbogason 6
Guðm. Pétursson 6
Kristinn Steindórss. 5
1-0 Guðmundur Kristjánsson (6.)
2-0 Guðmundur Kristjánsson (33.)
3-0 Guðmundur Kr., víti (45.)
3-1 Sam Tillen, víti (74.)
3-2 Heiðar Geir Júlíusson (86.)
3-3 Jón Guðni Fjóluson (92.)
3-3
Eyjólfur M. Kristinss. (5)
sport@frettabladid.is
Undankeppni HM 2011
Ísland - Serbía 5-0
1-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (32.), 2-0 Margrét
Lára (49.), 3-0 Margrét Lára (71.), 4-0 Katrín
Jónsdóttir (80.), 5-0 Margrét Lára (84.).
Pepsi-deild karla
Fjölnir - FH 1-4
0-1 Atli Viðar Björnsson (15.), 0-2 Tryggvi Guð-
mundsson, víti (18.), 1-2 Aron Jóhannsson (51.),
1-3 Björn D. Sverrisson (83.), 1-4 Atli Viðar (90.).
Breiðablik - Fram 3-3
Enska úrvalsdeildin
Chelsea - Hull 2-1
0-1 Hunt (28.), 1-1 Drogba (37.), 2-1 Drogba (90.)
Bolton - Sunderland 0-1
0-1 Darren Bent (5.). Grétar Rafn Steinsson var
ekki í leikmannahópi Bolton.
Aston Villa - Wigan 0-2
0-1 Rodallega (31.), 0-2 Koumas (56.).
Stoke - Burnley 2-0
1-0 Shawcross (19.), 2-0 Jordan, sjálfsm. (33.).
Portsmouth - Fulham 0-1
0-1 Bobby Zamora (13.).
Blackburn - Manchester City 0-2
0-1 Adebayor (3.), 0-2 Ireland (90.).
Wolves - West Ham 0-2
0-1 Noble (22.), 0-2 Upson (69.).
Everton - Arsenal 1-6
0-1 Denilson (26.), 0-2 Vermaelen (37.), 0-3 Gall-
as (41.), 0-4 Fabregas (48.), 0-5 Fabregas (70.),
0-6 Eduardo (89.), 1-6 Saha (90.).
Manchester United - Birmingham 1-0
1-0 Wayne Rooney (34.).
Tottenham - Liverpool 2-1
1-0 Assou-Ekotto (44.), 1-1 Gerrard, víti (56.), 2-1
Bassong (59.).
Norska úrvalsdeildin
Sandefjord - Lyn 2-1
Kjartan Henry Finnbogason kom inn á sem vara-
maður í leiknum og skoraði sigurmark Sandefj.
Start - Fredrikstad 1-0
Garðar Jóhannsson var í byrjunarliði Fredrikstad
en var tekinn af velli í síðari hálfleik.
Álasund - Odd Grenland 1-2
Árni Gautur Arason lék allan leikinn fyrir Odd Gr.
Brann - Strömsgodset 4-2
Kristján Örn Sigurðsson, Ólafur Örn Bjarnason,
Gylfi Einarsson og Birkir Már Sævarsson voru í
byrjunarliði Brann. Kristján og Gylfi voru teknir af
velli í síðari hálfleik. Ármann Smári Björnsson var
á bekknum og kom ekki við sögu.
Vålerenga - Lilleström 0-1
Stefán Logi Magnússon lék allan leikinn í liði
Lilleström og þótti eiga stórleik.
ÚRSLIT
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, segir 5-0
sigur Íslands á Serbíu á laugardaginn gott veganesti í lokakeppni
EM í Finnlandi sem hefst í næstu viku. Leikurinn var sá fyrsti
í undankeppni HM 2011 og var því um mikilvægan sigur hjá
Íslandi að ræða.
„Ég er mjög ánægður með úrslitin og seinni hálfleikinn
þegar það var meira flæði í okkar leik. Í fyrri hálfleik vorum
við nokkuð ryðgaðar og leyfðum þeim að draga okkur niður
á þeirra leikhraða. Þær reyndu að hægja eins mikið á leikn-
um og þær gátu. Ég var því ekki alveg sáttur í hálfleiknum
en sá síðari var mun betri. Það var mjög jákvætt
að skora fimm mörk og halda hreinu.
Það er gott veganesti í lokakeppni
EM,” segir Sigurður Ragnar.
Hann segir ástæðuna fyrir því
hvað liðið var seint í gang að það
hafi verið langt síðan það hafi
verið með slíka yfirburði eins og
í leiknum í gær.
„Við höfum spilað sjö leiki á þessu ári þar sem við höfðum lagt
höfuðáherslu á varnarleikinn. Nú vorum við að stjórna leiknum
og það er langt síðan við spiluðum þannig leik – það var á
móti Írlandi í október sem við gerðum það síðast.”
Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fjögur mörk í leiknum í
gær en hafði aðeins skorað eitt mark í hinum landsleikjum
ársins.
„Það er gríðarlega jákvætt að hún sé komin í frábært
form enda mjög mikilvægur leikmaður í okkar liði. Hún
átti frábæran leik í dag.”
Sigurður segir þó erfitt að dæma liðið út frá þessum leik.
„Við munum koma til með að spila allt öðruvísi á EM. Það
er ekki hægt að líkja því saman því þar munum við mæta
mun sterkari andstæðingum. En það þarf líka að klára
lakari andstæðingana og það gæti skipt miklu máli í
lokin hver markatalan er. Við stefnum á að vera með
betri markatölu en Frakkar þegar undankeppni
HM lýkur því það eykur líkurnar á því að vinnum
riðilinn.”
SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON: ÁNÆGÐUR MEÐ 5-0 SIGUR Á SERBÍU Á LAUGARDAGINN
Gott að Margrét Lára sé í frábæru formi
> Íslendingarnir náðu sér ekki á strik
Hvorki Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari né Bergur Ingi
Pétursson sleggjukastari náðu sínu besta fram á
heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum sem fer fram í
Berlín í Þýskalandi. Á laugardaginn keppti Bergur Ingi og
kastaði lengst 68,82 metra, tæpum sex metrum styttra
en Íslandsmet hans er. Ásdís Hjálmsdóttir kastaði svo í
gær spjótinu 55,86 metra en Íslandsmet hennar er 61,37
metrar sem í gær hefði dugað til að komast í úrslitin. Ekki
eru fleiri Íslendingar meðal keppenda á HM
í Berlín.
FÓTBOLTI Gianfranco Zola, knatt-
spyrnustjóri West Ham, greindi
frá því um helgina að Eiður
Smári Guðjohnsen hefði átt í við-
ræðum við West Ham undanfarn-
ar vikur. Frá þessu var greint í
enskum fjölmiðlum um helgina.
Zola sagði erfitt að lokka Eið frá
Barcelona. „Þó svo að hann spili
ekki reglulega er hann hjá Barce-
lona sem spilar í Meistaradeild-
inni. West Ham er minna félag og
skil ég hans áhyggjur vel,“ sagði
Zola.
Eiður Smári var á bekknum
hjá Barcelona sem vann 2-1 sigur
á Athletic Bilbao í fyrri leik lið-
anna um spænska ofurbikarinn í
gær. - esá
Eiður Smári Guðjohnsen:
Í viðræðum við
West Ham
FÓTBOLTI Nýtt keppnistímabil hófst
um helgina í ensku úrvalsdeildinni
er heil umferð fór fram. Átta leikir
fóru fram á laugardaginn þar sem
hæst bar ótrúlegur 6-1 sigur Ars-
enal á Everton á útivelli. Chelsea,
Manchester United og Manchest-
er City unnu einnig sína leiki en
margir reikna með því að þessi lið
munu berjast um titilinn í vetur.
Liverpool er einnig eitt þeirra en
liðið tapaði í gær fyrir Tottenham
á útivelli, 2-1. Liðið tapaði aðeins
tveimur leikjum allt síðasta tíma-
bil en annað tapið var reyndar
einnig á White Hart Lane.
Rafael Benítez, stjóri Liverpool,
var óhress með úrslit leiksins. „Við
spiluðum ekki vel í fyrri hálfleik
og lentum í vandræðum með mið-
verðina okkar,“ sagði hann en
þeir Jamie Carragher og Martin
Skrtel skullu saman í fyrri hálf-
leik. Carragher fékk stóran skurð
og Skrtel fór af velli í síðari hálf-
leik.
„Við sköpuðum þó hættu í síð-
ari hálfleik en við lögðum meira
á okkur þá. Við þurfum þó að
bæta okkur og reyna að spila
betur í næsta leik.“
„Við vorum miklu
betra liðið í fyrri
hálfleik og hefð-
um átt að gera
út um leik-
i n n þ á ,“
sagði Harry
Redknapp,
stjóri
Tottenham.
„Liverpool reyndi að
berjast fyrir sínu undir
lokin en mér fannst
við heilt yfir betri.“
Wayne Rooney
skoraði eina mark
United í 1-0 sigri á
Birmingham á heimavelli í
gær. „Þetta var dæmigerð-
ur leikur í upphafi tímabils
gegn liði eins og Birming-
ham. Leikmönnum liðsins
finnst eins og þeir þurfi
að sanna eitthvað enda
nýkomnir upp í deild-
ina. Þeir voru því
afar einbeittir í
dag og voru með
alla sína menn
fyrir aftan bolt-
ann,“ sagði Alex
Ferguson, stjóri
United, eftir
leikinn.
- esá
Tímabilið í ensku úrvalsdeildinni hófst um helgina með heilli umferð:
Stórsigur Arsenal og tap Liverpool
FABREGAS
Átti stórleik með Arsenal gegn
Everton og skoraði tvö mörk.
NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Framarar sýndu mikinn
karakter þegar þeir stálu stigi
gegn Breiðabliki í gærkvöld þegar
liðin gerðu 3-3 jafntefli á Kópa-
vogsvelli.
Breiðablik fékk óskabyrjun á 6.
mínútu þegar Guðmundur Kristj-
ánsson skoraði með skalla. Guð-
mundur bætti tveimur mörkum
við fyrir leikhlé og virtist sem
dagskrá kvöldsins væri lokið.
Svo var ekki því Breiðablik
féll í þá gryfju í síðari hálfleik að
verja forskotið í stað þess að halda
áfram að sækja.
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari
Fram, gerði tvöfalda skiptingu
í hálfleik sem hressti upp á leik
liðsins þó að liðið hafi ekki sýnt
sinn besta leik í hálfleiknum. Þess
þurfti ekki því liðið náði að skora
þrjú mörk í og ná þar með jafntefli
með frábærum endaspretti.
Minnisstæðustu atvik leiks-
ins, fyrir utan mörkin, snérust
að umdeildum dómara leiksins.
„Auðvitað var ekki réttur litur á
því. Ég sá ekki betur en að hann
hafi tekið Arnar hálstaki og það er
með ólíkindum að hann hafi fengið
að vera inni á vellinum eftir það,“
sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari
Breiðabliks, um það atvik í leikn-
um þegar Auðun Helgason, mið-
vörður Fram, veittist að Arnari
Grétarssyni, leikmanni Breiða-
bliks, og fékk gult spjald að laun-
um.
Blikar misstu niður gott forskot
í leiknum og að sjálfsögðu var
Ólafur ósáttur við það. „Það ger-
ist eitthvað í undirmeðvitundinni
að menn gerðu ekki það sem þeir
ætluðu að gera. Við vorum með
góða stöðu og áttum að láta kné
fylgja kviði í seinni hálfleik. Það
var deyfð í leiknum og mér fannst
dapurt að við skyldum ekki nýta
okkur það,“ sagði Ólafur að lokum
sem vildi ekki tjá sig um það þegar
allt sauð upp úr eftir leik frekar en
kollegi hans hjá Fram.
„Menn voru greinilega ekki til-
búnir í byrjun leiks. Við fengum
léleg mörk á okkur í fyrri hálfleik.
Við vorum þungir og hálf lemstr-
aðir en leikurinn er 90 mínútur og
við komum sterkir til baka,“ sagði
Þorvaldur Örlygsson í leikslok.
„Við fórum út í seinni hálfleik-
inn með það að spila með stoltinu.
Leika boltanum, finna næsta mann
og sjá hvort við næðum að skapa
okkur færi.“
„Við spiluðum við lið á útivelli
sem hefur verið að spila vel og
unnið tvo góða sigra. Leikurinn
spilast þannig að þeir eiga góðan
fyrri hálfleik og við góðan seinni
hálfeik. Þú átt þína góða daga og
slæma. Við komum hér í fyrra
og vorum arfaslakir í 90 mínút-
ur. Núna spiluðum við 45 mínút-
ur slakar og það er vonandi að við
getum komið hérna næst og spil-
að 90 góðar mínútur,“ sagði léttur
Þorvaldur að lokum.
Eftir leikinn mátti sjá að Guð-
mann Þórisson og Þorvaldur,
þjálfari Fram, hnakkrifust. Ólafur
Kristjánsson, þjálfari Blika, leyfði
leikmönnum ekki að ræða við fjöl-
miðla eftir leikinn. -gmi
Stolið stig hjá Frömurum
Breiðablik og Fram skildu jöfn í sex marka leik, 3-3, í Pepsi-deild karla í gær.
Blikar komust 3-0 yfir með þrennu Guðmundar Kristjánssonar en Framarar
jöfnuðu metin í uppbótartíma leiksins þegar allt ætlaði að sjóða upp úr.
HEITT Í KOLUNUM Guðmann Þórisson og Heiðar Geir Júlíusson skiptast á vel völdum
orðum í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL