Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.08.2009, Qupperneq 38

Fréttablaðið - 17.08.2009, Qupperneq 38
26 17. ágúst 2009 MÁNUDAGUR „Þetta var það fyrsta sem okkur datt í hug,“ segir Hilmar Haraldsson um þættina Sig- mar og félagar. „Þetta eru teiknimynda- þættir á Netinu sem ég byrjaði að gera fyrir svona, fjórum fimm, árum. Mig hefur alltaf langað til að gera svona þætti, eins og Simp- sons eða eitthvað.“ Hann segir Sigmar þó líkari Peter úr Family Guy en Homer. „Sig- mar var bara eitthvað „random“ nafn. Hann hagar sér eins og einhver brjálæðingur. Hann er móðursjúkur.“ Handritsgerðin minnir óneitanlega á útskýringu South Park á því hvernig Family Guy verður til, en þar sjá skjaldbökur um að velja hluti í þættina. Þá er húmorinn súr- realískur. „Við skrifum hugmyndir á blað, setjum í hatt og drögum út nokkra miða. Úr því verður söguþráðurinn. Við erum enn þá með fullt af hugmyndum í hattinum.“ Þætt- irnir eru svo gerðir í Flash. „Það vantar íslenskar teiknimyndir. Við höfum talað við allar sjónvarpsstöðvarnar, en það hefur enginn áhuga á að sýna þetta. Einn sagði að þetta væri ekki nógu fag- mannlega gert. En maður verður að byrja einhvers staðar.“ Ásamt Hilmari sjá Árni Guðjónsson tón- smíðanemi og Guðjón Henning um þátta- gerðina. Nýr þáttur er í vinnslu, en fjórir eru nú þegar á Netinu. „Við vorum að hugsa um að gera DVD-disk og gefa hann út um jólin, það er allavega markmiðið.“ Þá er Hilmar að fara í nám í Margmiðlunar- skólanum. „Þetta er aðallega vinsælt hjá ungu fólki. Pabbi minn horfir samt á þetta. Honum finnst þetta mjög fyndið, en mömmu finnst þetta allt í lagi, þetta er kannski aðeins of gróft fyrir hana,“ segir Hilmar. Þættina er að finna á Youtube. - kbs 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ SEGIR MAMMA? LÁRÉTT 2. fituskán, 6. í röð, 8. siða, 9. hljóma, 11. hvort, 12. mæling, 14. gáleysi, 16. skammstöfun, 17. eyrir, 18. kk nafn, 20. holskrúfa, 21. hróp. LÓÐRÉTT 1. botnfall, 3. guð, 4. ýtinn, 5. kóf, 7. örvera, 10. óhreinka, 13. líða vel, 15. ármynni, 16. ris, 19. 49. LAUSN LÁRÉTT: 2. brák, 6. rs, 8. aga, 9. óma, 11. ef, 12. mátun, 14. vangá, 16. þe, 17. aur, 18. ari, 20. ró, 21. kall. LÓÐRÉTT: 1. gróm, 3. ra, 4. ágengur, 5. kaf, 7. smávera, 10. ata, 13. una, 15. árós, 16. þak, 19. il. „Þetta er bók um litla eyju lengst úti í heimi sem fyrir mörgum árum var skógi vaxin milli fjalls og fjöru,“ segir Jón Gunnar Bergs rekstrarhagfræðingur um Litlu prumpueyjuna, barnabók sem hann sendi á alla þingmenn. „Svo gerist það að eyjaskeggjar ganga töluvert nærri auðlindum eyjunnar, eiga orðið mjög gott líf en eru dálítið skuldugir undir stjórn Guðbjarnar kóngs. Síðan dettur eyjarráðinu það snjallræði í hug að selja prumpubankann til athafnamannanna Gríspers, Bjór- spers og Bakkatans. Í fyrstu batnar lífið enn á eyj- unni en síðan hrannast upp óveðurský og bankinn fer á hausinn. Þá kemur til sögunnar Fjölnir litli sem er tíu ára og með aðstoð Gáttaþefs sannfærir hann söguhetjuna Bjart að standa í lappirnar og samþykkja ekki allt sem Svartur segir, en Svartur hefur nýverið tekið við forystu eyjarráðsins af Guðbirni kóngi.“ „Ég sendi þetta á alla þingmenn í von um að þeir reyndust þegar upp er staðið vera fyrirmynd aðal- söguhetjunnar, það er Bjartur. Ég er búinn að fá svör frá mörgum þeirra sem eru mjög uppörvandi og margir eru greinilega búnir að lesa hana því þeir vitna í hana.“ Í bókinni verða lítil fyrirtæki til þess að vænka hag þjóðarinnar þegar kreppir að. Jón Gunnar hefur unnið sem rekstrarráðgjafi hjá McKinsey & Co. og fleiri stórfyrirtækjum í Banda- ríkjunum sem og aðilum hérna heima. „Ég vildi leggja mitt af mörkum til þess að vernda framtíð Íslands og hvetja ráðamenn til að standa í fæturna og muna hverju við höfum þurft að berjast fyrir í gegn- um aldirnar.“ Sögunni er hægt að hlaða frítt niður á www.litla-prumpueyjan.blog.is. - kbs Prumpueyjan til þingmanna TILEINKUÐ SONUNUM Bók Jóns Gunnars er tileinkuð sonum hans, Gunnari, Tómasi og Árna, en Árna vantar á myndina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LEGGUR ÞETTA FYRIR SIG Hilmar gerir teiknaða grín- þætti fyrir Netið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Þetta var ótrúlega gaman en nátt- úrlega strembið nám,“ segir Bene- dikt Karl Gröndal um The Comm- edia School í Danmörku. Þar lagði hann stund á leiklist að hætti Jacques Lecoq í tvö ár. „Kennar- arnir í skólanum eru gamlir nem- endur hans. Þetta er mjög líkam- legt leiklistarnám. Við fórum í gegnum mismunandi leikhússtíla, trúðaleik, melódrama, buffoun, commedia dell‘arte, tveggja mán- aða grímuvinnu, kabarett. Í gegn- um þessa stíla kynntumst við aðferðum leikhússins. Að vísu má segja að þetta séu allt útdauð leik- húsform, eins og melódrama, það sýnir það enginn lengur, en maður fær rosalega mikið út úr því.“ Hann segir grímuleikinn heilla hvað mest þessara listforma. „Upphaflega var ég að leita að trúðanámi. Þegar ég lít til baka þá var það kannski ekki trúðleik- urinn sem heillaði mig mest, en það er margt í tækni trúðsins sem kemur manni vel.“ Hann segir þó þann hluta námsins erfiðastan. „Á fyrstu æfingunni sagði skólastjór- inn okkur að fara upp á svið og bara „vertu fyndinn“. Þegar maður er svona algjörlega opinn er svo auð- velt að negla mann niður. Maður fær endalaust frá kennurunum nei, þú ert ekki fyndinn, þú ert ömur- legur. Svo allt í einu virkar eitthvað og maður er ógeðslega fyndinn.“ Á sama tíma bjó Benedikt í búninga- geymslu skólans, sem hjálpaði ekki að hans mati. En nú er hann kominn heim. Hvað tekur við? „Eftir skólann gekk ég í leikhóp sem einn kennarinn minn safnaði saman. Við gerðum sýningu og sýndum úti í Danmörku og erum kannski að fara með hana til Brasil- íu, ef allt gengur eftir. Svo er ég að vinna að sólósýningu fyrir GRAL. Sú sýning er alveg á byrjunarstigi, maður er bara nýfluttur heim. En það er á borðinu og undir mér komið að kýla því í framkvæmd.“ kbs@frettabladid.is BENEDIKT KARL GRÖNDAL: UNDIRBÝR EINLEIK EFTIR TRÚÐANÁM Tækni trúðsins nýtist vel GRÍMUKLÆDDUR Benedikt er hrifnastur af grímuleik og Commedia dell‘Arte. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR „Það eru til dásamleg viðtöl sem hún tók upp á vídeóvél afa síns þegar hún var pínulítil og mér finnst skemmtilegt að hún hafi gert eitthvað við þetta. Ég var viss um að ég yrði ánægð með myndina og finnst hún eiga sterkt og feminískt erindi við þjóðina í dag.“ Guðrún Jónsdóttir, móðir Þóru Tómas- dóttur kvikmyndagerðarkonu, sem frum- sýndi Stelpurnar okkar í síðustu viku. Söguþráðurinn dreginn úr hatti Mat á umhverfi sáhrifum rannsókna- borana í Gjástykki - frummatsskýrsla Kynningarfundur að Breiðumýri í Reykjadal í Þingeyjarsveit Opið hús verður haldið þriðjudaginn 18. ágúst nk. frá kl. 16:00 til 22:00. Kynnt verður mat á umhverfi sáhrifum fyrirhugaðra rannsóknaborana í Gjástykki. Sérfræðingar frá Landsvirkjun og verkfræðistofunni Mannviti verða á staðnum til að svara fyrirspurnum. Landsvirkjun Langt er liðið á laxveiðitímabilið og enn hefur ekki frést af þekktum útlendingi hér við veiðar. Frétta- blaðinu er bæði ljúft og skylt að bæta úr því. Stórpopparinn Eric Clapton sat að snæðingi fyrir utan Café París við Austurvöll á laugar- dag og er að öllum líkindum bókaður í Laxá á Ásum eins og svo oft áður. Sjaldgæfara er að Clapton láti mikið sjá sig í höfuðborginni en það kann að hafa breyst eftir að hann kom hingað til tón- leika- halds fyrir ári. Það var fríður hópur poppara sem lék saman golf á Hvaleyr- arvelli á fimmtudag. Þar voru Sigurjón Brink, Gunni Óla í Skítamóral, Hreimur Heimisson í Landi og sonum, Matti í Pöpun- um og Friðrik Sturluson úr Sálinni. Með í för voru svo útvarpsmennirnir Bragi Guðmunds á Bylgjunni og Svali á FM957. Hópurinn vakti að vonum talsverða athygli annarra golfara, ekki síst fyrir þá sök að sumir voru á golfbílum en aðrir ekki og göntuðust viðstaddir með að á því mætti meta stöðu þeirra í poppheimum. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1 Friðrik Þór Friðriksson og Lars Von Trier. 2 Til Afríku. 3 5-0 fyrir Ísland.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.