Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1948, Síða 11

Samvinnan - 01.04.1948, Síða 11
Minnzt Einars Árnasonar EGAR VIÐ HEFJUM hér £und að þessu sinni, finn ég, að helgi minninganna fyllir þennan sal, og fer það að vonum. Liðið starfsár hefir reynst Iíaupfélagi Ey- firðinga meira mannskaðaár á starfsliði fé- lagsins en nokkurt annað ár í sögu þess, svo mér sé kunnugt. í einu höggi féllu fyrir sigð dauðaus þrír ungir starfsmenn félagsins, í flugslysinu mikla 29. maí s.l. Starfsmenn, sem <u>.'st gegndu eða voru að taka við trúnaðarstirii, og félagið hafði rniklar vonir við tengt. Við hörmum ótímabæran dauða þessa unga fólks og við minnumst þess nú með þakklæti fyrir vel unnin störf og trygga fylgd. Við höfðum vonað að félagið hefði goldið dauðanum fullan skatt og bikarinn væri nú barmafylltur. Svo átti þó ekki að reynast. Hér skyldi meira afhroð goldið. Þann 14. nóv. s.l. flutti sími og útvarp þá döpru frétt út um byggðir þessa lands, að Einar Arnason frá Eyrarlandi, formaður Kaupfélags Eyfirðinga og formaður Sam- bands íslenzkra samvinnufélaga, væri dáinn. Sá vábrestur lieyrðist um land allt, og þótti mikill. Skarð var orðið fyrir skildi, er erfitt yrði að fylla, og mun svo reynast. Þá frá er tekið ættlið Einars og nánustu ástvinir, var næst höggvið Kaupfélagi Eyfirð- inga, sem notið hafði þessa mæta manns sem formanns síns óslitið um fast að 30 ára skeið, og skipað hafði það sæti með þeirri sæmd og ágætum ,sem bezt getur. Eyfirðingar bæði elskuðu og virtu Einar Árnason. Treystu honum umfram aðra menn og beittu honum fyrir sig umfram aðra menn. Og hann brást aldrei traustinu. Hvorki á sviði landsmála, samvinnumála eða vináttu- mála. TTI EG AÐ EINKENNA Einar Árna- son og lífsstarf hans með einhverju sér- stöku, mundi ég hiklaust svara hversu ham- ingjudrjúgur hann var. Þó ég viti, að hver er sinnar eigin gæfu smiður og þá Einar, sem aðrir menn, get ég ekki varizt þeirri hugsun, að honum hafi hamingjan í vöggugjöf gefin verið, svo trygg sem hún reyndist honum í lífinu og síðast á banastundu. Þessa óbrigðulu hamingju flutti hann með sér yfir á Kaupfélag Eyfirðinga. Félagið, sem hann elskaði, og trúði á umfram allan annan félagsskap. Enda seitlaði hún í gegn um öll hans störf, kom alls staðar fram, en ekki hvað sízt í því, sem var svo örlagaríkt fyrir félagið. Hamingjusamt val hans á forystumönnum fyrir framkvæmdum í félaginu. Og hvað var svo eðlilegra en að samvinnufélag, sem Einar veitti forstöðu sem formaður, blómgaðist eins og Kaupfélag Eyíirðinga vissulega hefir gert. Því fái ég skilið hugsjón samvinnufé- lagsskaparins rétt, fæ ég ekki betur séð, eri Einar hafi verið samvinnufélagshugsjómn Þegar aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga var settur, hinn 19. apríl s.l., minntist formaður fé- lagsins, Þorarinn Kr. Eldjárn, hins látna forustumanns sam- vinnumála í Eyjafirði, og raun- ar alls landsins, Einars Árnason- ar á Eyrarlandi, er lézt í nóvem- ber 1947. Aðalfundurinn sam- þykkti einróma þá ákvörðun stjórnarinnar, að stofna sjóð til minningar um Einar. Var stjórn félagsins falið að setja sjóðnum reglugerð. Orð Þórarins Kr. Eld- járn fara hér á eftir: lioldi og lífi gædd. Háttvís, prúður og hógvær. En þó öruggur, fastur og ákveðinn, leitandi í hverju máli þess, sem hann taldi rétt og drengilegt. Unnandi hverjum manni og máli fulls réttlætis. Svona var Einar Árnason, og svona voru öll hans vinnubrögð hvar sem hann kom að málum, og það var víða. Þessa staðreynd ját- uðu skoðanalegir andstæðingar hans, og hvað þarf þá frekari vitna við? VIÐ MINNUMST því í dag óvenjulega glæsilegs foringja og góðvinar. Við finn- um glöggt og sárlega hvað mikils við höfum misst við fráfall hans. En við beygjum okkur í þögn fyrir því lögmáli alls lífs, að „eitt sinn skal hver deyja“. En við gleðjumst og erum stoltir af að hafa átt hann, slíkur sem hann var. Það er vissulega ætíð tregaléttir að trega góðan dreng og minningarnar um slíka menn eru perlurnar í lífsins festi. En svo minnumst við þá Einars Árnason- ar bezt og helzt við hæfi, að við horfum ör- uggir fram á leið, glaðir og reifir. Að við höldum merki Kaupfélags Eyfirðinga hátt á lofti, hreinu og drengilegu. Að við höldum tryggan vörð uin samvinnufélagshugsjónina í þessu landi. Gerum við svo, mun gifta fylgja starfi. Það væri óhæfa frá minni hendi ef ég gerðist svo djarfur að leiða fram dæmi úr lífi Einars til sönnunar því, sem ég hefi hér sagt. Það væri ókurteisi við ykkur, félagar góðir. Þið þekktuð hann allir og vitið því, að hér er ekki eitt orð ofsagt, en flest ósagt af öllu því, sem maklegt hefði verið að benda á í hinu margþætta, hamingjuríka lífsstarfi Einars, en hér skal þó staðar numið. Aðeins einu vil ég við bæta. Einar Árnason kunni þá list, sem ei list allra lista, að lifa lífi sínu svo, að hann „látinn lifir.“ Hann lifir í Kaupfélagi Eyfirðinga og mun lifa um langt skeið. Andi hans mun svífa þar á Eyrarlandi yfir vötnunum og hans verða minnst er fél- aginu ríður mest á, og þá er bent skal á glæsi- lega merkisbera þessa félagsskapar. Ætti ég því á þessari stundu að biðja Kaupfélagi Eyfirðinga einhverrar hollbænar, mundi ég óska þess, að sú hamingja, sem fylgdi Einari Árnasyni í formannssæti, mætti arfgeng verða til hvers þess manns í nútíð og framtíð, sem fer með formennsku þessa félagsskapar. Og ég trúi því, að sú bæn verði heyrð. Nafn Einars Árnasonar er letrað logaletri í sögu Kaupfélags Eyfirðinga og íslenzkra samvinnumála. Hans verður því minnzt á meðan sú saga verður lesin. Hlýr og þakklátur hugur okkar fylgir hon- um því út yfir landamæri lífs og dauða. Vörpum því þakklæti okkar á vængjum hugans á öldur Ijósvakans í þeirri trú, að sá reginmáttur, sem þakklátur góðhugur á yfir að ráða, megni að brjóta því þakklæti leið til þeirra burtförnu vina okkar, hvar sem þá kann að vera að hitta í ríki Drottins og kann- ske eru þeir nær en við hyggjum, og væri gott til þess að hugsa. Eg bið ykkur að minnast þeirra á hljóðan en táknrænan hátt, með því að rísa úr sæt- um.“ Verður fundi ICA í Prag frestað? Ákveðið hafði verið að næsti fundur Al- þjóðasambands samvinnumanna skyldi hald- inn í Prag á þessu sumri, til heiðurs \’ið sam- vinnuhreyfinguna í Tékkóslóvakíu, sem á 100 ára afmæli um þessar mundir. Nokkur vafi mun nú leika á því, að úr þessu verði. Málgagn norsku samvinnuhreyfingarinnar, „Kooperatören" skýrir þannig frá nú nýiega: „Samvinnustefnan grundvallast á lýð- ræði og stjórn fólksins og er andstæ5 hvers konar einræði. Aí þessum ástæðum hötum vér með hryggo hlustað á fréttirnar aí atburðunum i Tékkóslót akíu nú fyrir skömmu, sem dauði Masaryks varpaði skæru Ijósi á. Tékkóslóvakía hefur lengi átt öfluga og vaxandi samvinnuhreyfingu Hún getur minnzt 100 ára afmælis síns, a þessu ári og í tilefni þess var ákveðið að næsta þing Alþjóðasambands samvinnu- manna skyldi haldið í Prag í haust. Það má nú teljast mjög vafasamt, að úr þessu verði. Það fer eftir því, hvort samvinnu- hreyfingin hefur haldið frelsi sínu og sjálfstæði, en það er lífsskilyrði fyrir allt samvinnustarf. Við bíðum sannra fregna um þessi atriði.“ LJÓSMYNDIR í ÞESSU HEFTI: Forsíðumynd og myndir frá Skriðu og Fornhaga eftir Mark Watson. Myndin frá Fljótsdalshéraði eftir Baldvin Þ. Krist- jánsson. Aðrar myndir lánaðar af ýmsum aðilum. 11

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.