Samvinnan - 01.04.1948, Page 21
11111111111111111111111111111
iiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiimiiiiiimiiiimii •
Lestrarsalur bama í ríkisbókasafninu í Tannerfors í Finnlandi.
Barnabókasöfn
MÁLSHÁTTURINN, „Segðu mér
með hverjum þú ert, og eg skal
segja þér, hver þú ert“, hei'ur að geyma
mikil sannindi.
Fjölmörg dæmi úr lífinu sýna okk-
ur, hve óendanlega miklu máli það
skiptir, sérstaklega fyrir ungt fólk, að
lenda í góðum félagsskap
Það ætti því að vera mikið áhugamál
foreldra að börn þeirra eignist góða
félaga, þegar á unga aldri, og styrkja
og hlúa að hverjum góðum félagsskap,
en vera á verði gagnvart hinum slæma.
En félagsskapur er fleira en liinir
holdi og blóði klæddu félagar. Maö-
urinn getur átt félagsskap við ótal
margt annað.
Sjálfa náttúruna er þar kannske
fyrst að nefna í allri dásemd sinni og
margbreytileik. Hinar ýmsu greinar
listarinnar munu og mörgurn dýrmæt-
ur félagsskapur og loks eru það bœk-
urnar sem eru geysilega stór aðili og
mikilvægur í þessu sambandi.
Víða erlendis eru starfrækt sérstök
barnabókasöfn og mörg hinna al-
rnennu bókasafna hafa einnig sérstak-
ar deildir og lestrarsali fyrir börn.
Þetta er gert til þess að venja börnin
á unga aldri að umgangast bækur og
kenna þeim að nota bókasafn.
í barnabókasafninu er vandað til
alls. Salurinn sjálfur er fallegur og
bjartur, smekklega innréttaður og lit-
irnir þægilegir. — Bókunum er komið
fyrir á sem allra haganlegastan hátt og
í öllu er miðað við þarfir hins unga
manns. Bækurnar eru flokkaðar eftir
efni, eins og gerist á venjulegu bóka-
safni, en þar sem hægt er, er sérstök
deild fyrir yngstu lesendur, þar sem
mikið úrval er af lesefni og jafnframt
mynda-söfn af hinu og öðru, bæði
límd í þar til gerð hefti eða á laus-
um spjöldum. — Alger þögn ríkir hér
eins og í safni hinna stóru, það var
fyrstu gestunum kennt, þegar safnið
var opnað, og nú eru það óskráð lög,
sem aldrei þarf að minna á, nema þeg-
ar einhver ærslabelgur gleymir sér í
skemmtilestrinum og skellir upp úr!
En góðlátlegt augnaráð eftirlitsmanns-
ins minnir á hin óskráðu lög, og svo
er haldið áfram að lesa.
Sum barnna koma til að sækja sér
bók — önnur til að skila, og þá venju-
lega ná sér í nýja. Þau ganga hljóðlega
um, færa inn í spjaldskrána, kveðja og
halda leiðar sinnar.
Það er eitthvað töfrandi við að koma
inn í barnabókasafn, og það er dásam-
'egt hve vel er búið að börnum sums
staðar í þessum efnum, og hve skiln-
ingur á málinu verður rneiri og betri
með hverju ári sem líður.
Félagsskapur sá, sem börn eiga á
grðu bókasafni, þar sem tiker vandað,
j dýtur að verða því dýrmætur og eiga
! .rjúgan þátt í að búa það sem bezt
undir það sem koma skal.
Vonandi verða íslenzkir forráða-
menn svo framsýnir að hugsa fyrir
jörfum barnanna þegar reist eru ný
bókasöfn.
Vor í Parts.
Það vorar snémma í tízkuhúsum
Parísar. Löngu áður en nokkrum dett- i
ur vor í liug og vetrarríki ræður í land- 1
inu, eru tízkuhúsin í óðaönn að und- |
irbúa komu vorsins, og oft hefir vor [
tízkuhúsanna orðið á undan hinu É
raunverulega vori.
Það fór svo í ár — voriðkom snemma. i
Vortízkan er óvenju kvenleg segja í
þeir, sem mest og bezt vit hafa á mál j
unum. \
Smárúðóttar dragtir og dökkbláar j
eru mikið notaðar og við þær hand- i
saumaðar blúsur. Christian Dior, sem i
nú er konungur allra tízkukonunga, i
sendir frá sér marga útsaumaða kjóla. i
Sniðin eru mjög einföld: Þröng mitti, i
hringsniðin pils og sléttar ermar með i
uppslagi. Litimir eru mjög ljósir og |
einnig notaðir hvítir, og síðan eru i
saumuð út smá-Móm um allan kjólinn. [
Stungin pils og smá fellt eru mjög í i
tízku.
Yfirhafnir eru víðar og síðar og pils- i
in oft hringsniðin. Ulster-snið eru }
einnig notuð með víðu baki. Eftir [
myndum að dæma af Parísar-tízkunni |
í vor, hefir heldur dregið úr því allra [
„síðasta“, en þó er síddin meiri en við i
þekkjum hér enn. Sumir segja: „Kven- [
legt“. — Aðrir „Kauðalegt".
II11111IIIIIIIIIIIIIKII*
21
^"iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
1111111111111111111111111 11111111111111iii11111111111111111111iiiiii111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
1111111111111111111111111111111111111111111111111