Samvinnan - 01.04.1948, Page 22
••Illllllllllllllllllllllllll
FORELDRAR og BORN
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
lllUllilllLill
1111111111111111 III 1111111 II IP Ihl
lllllllllllllllll llllllllllllllll 1 'lllll,,. . “trr*
PÉTUR LITLI, sem er 5 ára og
móðir hans leika veizlu-undir-
búning.
Móðirin segir: „Ó, það er hringt,“
og þrífur upp barnasíma Péturs. —
Hún heldur áfram talinu: „Halló, já,
þetta er frú Kristín. Það var leiðinlegt
að heyra að Sigga skuli vera lasin og
ekki geta komið. Eg vona að hún
hressist sem fyrst.“
Pétur læzt heyra hringingu; hann
tekur símann og svarar: „Halló, Jón.
Og þú getur ekki komið? Jæja, það
verður að hafa það.“
Síðan ræða þau saman, Pétur og
móðir hans.
Mamma: „Hver var þetta í síman-
um?“
Pétur: „Það var Jón. Hann getur
ekki komið.“
Mamma: „Heldurðu ekki að Jón
hefði orðið glaður, ef þú hefðir sagt
að þér þætti leiðinlegt að hann skyldi
ekki geta komið og að þú myndir
bráðum heimsækja hann, eða eitthvað
slíkt?“
Pétur: „Eg hefði átt að þakka hon-
um fyrir kortið, sem hann sendi mér.
Því gleymdi eg alveg.“
Þetta litla dæmi sýnir aðferð, sem
ýmsir uppeldisfræðingar telja heppi-
lega til að fá ýms atriði daglegrar um-
gengni inn í barnið á sem auðveldast-
an og eðlilegastan hátt.
Þessi óbeina kennsluaðferð er talin
miklu heppilegri heldur en ef barn-
inu er kennt bókstaflega hvernig það
eigi að hegða sér og hvað það eigi að
segja undir ýmsum kringumstæðum.
Þar sem þetta hefur verið reynt er
upp á ýmsu fundið:
Með því að leika kött eða kanínu
lítils snáða, er auðvelt að kenna hon-
um ýmislegt um dýr og hvernig fara
eigi með þau.
Með því að leika slys og að barnið
slasist og þurfi að liggja og ná sér o. s.
frv. er því gert auðveldara með að
skilja bæklað barn eða sjúkt.
Ef barnið, einhverra hluta vegna,
verður æst eða hrætt, þegar ferðalag,
með bíl, flugvél eða skipi, stendur fyr-
ir dyrum, er hægt að létta undir með
því og undirbúa það með því að leika
þetta atriði. — Sama er að segja um
heimsókn til læknis, tannlæknis o. s.
frv.
Að leika heimsóknir og að taka á
móti gestum hjálpar barninu og losar
við ýmis konar vandræðanlegheit og
feimni þegar gesti ber að garði.
Nú á að hjálpa Gunnu litlu, sem er
2ja ára, hvernig bregðast eigi við sí-
endurtekinni beiðni um að heilsa —
rétta hendina. — (Spurningar: „Hvað
heitirðu?“ „Hvað ertu gömul?“ eru
einnig mjög algengar og þessi litlu
skinn vita oft ekki hverju þau eiga að
svara).
.s>
Mamma: „Jæja, Pétur og Gunna,
nú eigið þið og og amma að koma í
heimsókn til mín. — Þið eigið að fara
út og hringja dyrabjöllunni. Eg mun
koma til dyra og bjóða ykkur inn. —
Fyrst heilsa eg ömmu með handa-
bandi, síðan heilsa eg Pétri og rétti
honum höndina ftekur í hönd Péturs
svo að Gunna sjái). Þá sný eg mér að
Gunnu og tek í hönd hennar og heilsa
(tekur í hönd Gunnu og heilsar henni
brosandi) og svo spyr eg, hvernig hef-
ur þú það, og þá segir þú: „Eg hef það
ágætt, þakka þér fyrir,“ og svo mun eg
bjóða ykkur inn og bjóða ykkur að fá
ykkur sæti, og við munum tala um
það, sem við höfum gert í dag.“
Amma fer nú út með börnin og þau
hringja bjöllunni.
Mamma opnar hurðina: „Nei kom-
ið þið blessuð og sæl og velkomin!“
(heilsar ömmu með handabandi). Og
þetta er Pétur. Komdu sæll, Pétur
minn.“
Pétur „Komdu sæl.“ fHeilsar með
handabandi).
Mamma: „Hvernig hefur þú það,
litli vinur?“
Pétur: „Alveg ágætt, en hvernig líð-
ur þér?“
Mamma: „Prýðilega, þakka þér fyr-
ir.“
Mamma snýr sér að Gunnu:
„Komdu sæl, Gunna mín.“
Gunna :„Komdu sæl.“
Mamma: „Hvernig hefur þú það,
dúfan mín?“ — Hún réttir Gunnu
höndina, sem tekur í hana brosandi út
undir eyru: „Alveg ágætt,“ segir
Gunna himinglöð yfir þessum
skemmtilega leik.
Nú fara þau inn í stofu og samræð-
urnar halda áfram.
Áherzla er lögð á við aðferð þessa,
að hafa allar aðstæður og háttu
margbreytilegast, svo að framkoma
barnsins verði ekki „föst“ — lærð —
og þar með glatist eðlileg viðbrögð og
náttúrleg framkoma.
Gunna litla heldur áfram þrep úr
þrepi, hvernig eigi að koma fram við
ókunnugt og á frjálsmannlegan hátt,
eins og allt væri aðeins skemmtilegur
leikur, í stað þess að áður var haldið
;ilIIIIIIIIMIIIIIIMIIIIIIHIIIIII"l"ll|lll»l|ll,l,l,il"l ""l•"MIII•l•llllll"l""••ll•llllllllll■lllllllllllllllllllllllllllllllllllll
IIIIIMIIIIII! 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
22