Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1948, Síða 2

Samvinnan - 01.05.1948, Síða 2
DÝRMÆTUR ARFUR AÐ ER EKKI ÝKJALANGT síðan að sá tími var í landi liér að j>að var ekki sjálfsagður hlutur fyrir almenning, að ganga inn í vclbúna verzlun og kaupa jiað, sem augað girntist. Það var á þeim tíma jtegar kaupfélögin voru að rísa á legg, fyrir alda- mótin síðustu. Þá áttu fæst félaganna búðir. Þau gátu ckki boðið félagsmönnum sínum þægilega viðskiptaaðstöðu. Vöruafhendingin fór stundum fram undir berum liimni. Vöru- skorturinn var landlægur. Þessi tíð er liðin fyrir löngu. Við teljum nú ýms lilunnindi og aðstöðu sjálfsagða liluti. Við gerum ráð fyrir að þetta eða hitt falli okkur í skaut fyrir- hafnarlaust, við krefjumst margs. Við gleym- um J)ví æði oft, að okkur liefur verið feng- inn í liendur dýrmætur arfur, sem forfeður okkar sköpuðu með Jtrotlausu erfiði og mikl- um félagsþroska. Að umgangast þennan arf umhugsunarlaust, er fyrsta skrefið til Jress að glata honum. AÚTVARPSKVÖLDI samvinnumánna fyrir skemmstu var brugðið upp eftir- minnilegum myndum af starfsaðstöðu kaup- félaganna fyrr á árum. Þessar rnyndir voru lærdómsríkar fyrir börn jressarar aldar. Þeir eru margir nú á dögum, sem gera sér ekki grein fyrir þeim geysilegu framförum, sem orðið hafa á sviði verzlunarinnar á síðast lið- inni hálfri öld. Það er löng leið frá frum- stæðri afhendingu vörunnar úti undir berum himni, við hinar ófullkomnustu aðstæður, til nýtísku verzlunarhúsa með öllum jtæg- indum, en jtessi leið hefur verið farin á nokkrunt áratugum. Það er mikill munur á hópnum, sem beið langeygður eítir vöruskip- inu að afloknum hörðum vetri og köldu vori og fulltrúum samvinnumanna landsins nú, á aðalfundum kaupfélaganna og sambands- ins, sem korna saman til þess að ráðstafa arð- inum af umfangsmikilli verzlunar- og fram- leiðslustarfsemi og marka stefnu nýrra átaka á nýjum sviðum. Sagan, sem bindur jressa á- fanga, upphaf kaupfélaganna og aðstöðu þeirra í dag, er merkur þáttur jrjóðarsög- unnar, og kunnugleiki á lienni er nauðsyn fyrir vöxt samvinnustefnunnar í þjóðfélag- inu og félagsþroska meðlimanna. Ef meiri- hluti samvinnumanna í landinu fer að líta á samvinnuskipulagið sem vélrænt kerfi, sem haldi áfram að starfa fyrirhafnarlaust og án þeirra afskipta og umönnunar, þá blasir sú hætta við, að kyrrstaðan og síðan hrörnunin haldi innreið sína. EN ER ÞÁ nokkur slík hætta fyrir hendi? Svar við jjeirri spurningu fæst með því að gera sér grein fyrir því, hvaða öfl það lial'a verið, sem leitt liafa samvinnustefnuna lil þeirra sigra til heilla fyrir land og þjóð, sem hún hefur unnið á liðnum áratugum. Það var í rauninni undravert, að kaupfélögin skyldu geta hafið sig upp úr fátæktinni og umkomuleysinu, sem var hlutskipti þeirra flestra í upphafi. Þau byrjuðu með tvær hendur tómar og áttu víða í höggi við harð- snúið andstæðingalið. En j)ótt Jrau gætu ekki boðið félagsmönum sínum inngöngu í skrautlegar búðir, áttu jrau samt traust al- ntennings. Viðskiptin við þau reyndust hag- kvæmari en við andstæðingana. Þegar spara jjurfti hverja krónuna, var verzlunarskipu- lag samvinnumanna dýrmætt. Þetta skipu- lag var annar aflgjafinn, sem tryggði félög- unum sigur í fyrstu baráttu þeirra. Það hef- ur leitt þau fram á við til þess dags. En |)etta eitt liefði þó ekki nægt, hvorki á frum- bélingsárunum eða síðar. Hér J)urfti meira' til. Að baki þessa verzlunarskipulags bjó stór og voldug liugsjón um alhliða framfarir með samhjálp og samstarfi, hugsjón, sem sá fyrir sér möguleika á að leysa miklu fleiri við- fangsefni þjóðfélagsins og alþjóðamálanna en verzlunar- og viðskiptamálin, evgði rétt- látt jjjóðfélag ábyrgra, sjálfstæðra manna, sem neyttu máttar samtakanna til j)ess að hefja alla j)jóðfélagsbygginguna hærra. Þessi hugsjón var hinn aflgjafinn. Samvinnu- stefnan eignaðist á unga aldri marga eld- heita hugsjónamenn, sem sáu Jressi mark- mið framundan. Þeirn varð starfið létt og á- nægjulegt. Hver framkvæmd skilaði örlítið i áttina að því. Öll Jrróun stefndi að })essu marki. ÓTT LANGT SÉ ENN í LAND að öll- um takmörkum sé náð, hefur vissulega skilað vel áfram. Fjölmörg önnur verkefni en verzlunin ein hafa verið tekin til með- ferðar. Árangurinn hefur orðið rnikill og augsýnilegur. Samvinna í einhverri mynd grípur nú inn í marga þætti þjóðfélagsins. En J)ótt vel hafi verið unnið, erú mörg verk- efni óleyst, önnur skammt á veg komin. Til þess að þróunin hakli áfram að markmiðum frumherjanna, þarf þjóðin ekki aðeins að h'ta til kaupfélaganna og samvinnuskipulags- ins, sem liagkvæms verzlunar- og framleiðslu- skiulags, heldur sem undirstöðu réttláts J)jóð- félags, sem hornsteina mikillar og fagurrar þjóðfélagshyggingar. Unga kynslóðin þarf að skilja, að samvinnuskipulagið, eins og það er í dag, var byggt upp af nauðsyn þjóðar- innar fyrir endurbætta verzlun og fyrir hug- sjónir og eldheitan áhuga Jnisunda manna unt landið allt. Töluskýrslur geta sýnt hinn liagræna árangur, en liugsjónaeldurinn kviknar ckki af sjálfu sér. Æskan })arf að J)t*kkja söguna og kunna að meta arfinn. Þá mun henni hlotnast sú gæfa, að sjá hin miklu tækifæri til uppbyggingar og fram- fara á öllum sviðum, sem hægt er að koma á í })essu landi með samtökum og samhjálp. Nái Jtessi þekking og þessi skilningur ból- festu í hugum æsktimanna í byggðum lands- ins nú, J)á er engin hætta á ferðum. Þá munu eftirkomendur okkar líta til þess, sem við íengum áorkað á okkar starfsskeiði og telja ])að hvatningu fyrir næstu kynslóð. Þannig eiga samvinnufélögin að vaxa og })roskast í þjóðfélaginu öld eftir öld. í stuttu máli Dýrtiðarstefna brezkra samvinnuvianna: Efnahagsörðugleikar brezku þjóðarinnar og barátta hennar að því markmiði, að auka ut- flutningsframleiðsluna, hefur aukið á dýr- tíðarhættuna í landinu. Neyzla þjóðarinnar sjálfrar er mjög takmörkuð af ströngum skömmtunarráðstöfunum, en peningar í um- ferð, í höndum almennings, mun meiri en vörur í umferð á innanlandsmarkaðinum. í Jtesstt ástandi liggur jafnan falin hætta á verðbólgu. í febrúar s. 1. skoraði fjármálaráð- herrann, Sir Stafford Cripps, á stærstu hags- munasamtök almennings og samtök fram- leiðenda að spyrna gegn dýrtíðarhótuninni. Brezku kaupfélögin urðu fyrst til að svara Jressu kalli. Hinn 19. marz sam])ykkti st|orn arnefnd samvinnusambandsins áskorun tii kaupfélaganna um að hefjast handa um verðlækkanir á nauðsynjavarningi. Brezx blöð herma, að mikill meiri hluti kauprélag- anna hafi þegar tekið upp Jressa stefnu og hafi lækkað verð á ýmsum vörum í samræmi við ábendingar samvinnusambandsins. Verð- lækkanir eru þessar 1 aðalatriðum: Matvörur, pundið: sykur i/2 d., svínsflesk 2 d., sntjörlíki 1 d., ostur 2 d., smjör 2 d., niðursuðuvörur 1 d., brauð 1/4 d,—1 d. á brauðið eftir stærð. Ýmsar vörur, svo sem skófatnaður, fatnaður, húsgögn, búsáhöld og vefnaðarvara, verð- lækkun 2/2%. Þessar aðgerðir brezku kaup- félaganna þýða raunverulega það, að arð- urinn sem félagsmönnum er greiddur eftir á, er nú greiddur við afhendmgu vörunnar, með verðlækkuninni niður fyrir markaðsverð En vegna })ess hve kaupfélögin eru stór aðili í verzlun landsins, hljóta [)ær að hafa þær al- leiðingar, að J)rýsta öllu verðiagi í landiii'. niður og minnka ágóða einkarekstursins. Ella horfir einkareksturinn fram á að missa mikið af verzluninni til samvinnufélaganna. Þannig mun þessi aðgerð brezku kaupfélaganua hafa veruleg áhrif á verðlagsmálin í landinu >g (Framhald á bls. 21) SAMVINNAN Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga. Ritstjóri: Haukur Snorrason Afgreiðsla: Hafnarstræti 87, Akureyri. Sími 166. Prentverk Odds Bjömssonar Kemur út einu sinni í mánuði Argangurinn kostar kr. 15.00 42. árg. 5. hefti Maí 1948 2

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.