Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1948, Blaðsíða 6

Samvinnan - 01.05.1948, Blaðsíða 6
1848 OG 1948 Lærdómar liðins tíma Flóðbylgjan 1848. VORIÐ 1848 — eins og vorið 1948 — var byltingartíð í Evrópu. Órói, sem hófst af sniávægilegum erjuni í Palermo, var orð- inn allsherjarbylting í París áður en árið var liðið. Byltingarnar komu hver á fætur ann- arri, unz svo var komið, ;ið vart var nokkur ríkisstjórn frá Spáni til Póllands, sem ekki hafði orðið fyrir barðinu á þeim að meira eða minna leyti. Jafnvel í Bretlandi var ókyrrð. I>etta var ár kommúnistaávarpsins, og þetta ár ritaði Nikulás Rússazar Viktoríu drottningu: „Hvað stendur eftir í Evrópu?" Enda þótt byltingarnar fyrir hundrað ár- um hafi nær því allar farið út um þúfur, og hefðu ekki gagngerð áhrif á líf Evrópu- þjóðanna næstu áratugina á eftir, fer vel á því, að minnast ársins 1848 á árinu 1948. Bæði árin eru kennd við ókyrrð og óvissu, ótti og angist áttu í þeim djúpar rætur, og yfirleitt var ástandið sjúkt. Við höfum að sjálfsögðu miklu betri tækifæri en kynslóðin, sem uppi var fyrir 1914, að skilja og meta menn byltingarársins 1848. Við eigum sam- eiginlega, með langöfum okkar og langömm- um, erfiðleika, hættur — og tækifæri, óróa- tíma. Það eru þessi sálfræðilegu bönd, sem tengja okkur fastast við kvnslóðina frá 1848, hversu breyttar sem stofnanir okkar og ytri kringumstæður annars eru orðnar. Ekki þarf annað en líta í blað eða tímarit frá því fyrir miðja 19. öldina til þess að finna þar and- rúmsloft ókyrrðar og óánægju yfir því, hvern- ig gekk að stjórna veröldinni, ótta gagnvart framtíðinni, en samt sterka trú á því, að mannkynið gæti, þrátt fyrir allt, ef það beitti allri vizku sinni og siðgæði, fundið leiðina til hamingjuríkara lífs á jörðunni. í þessum ritum má og sjá, að ekki voru allir á eitt sáttir um leiðina að þessu marki, þar voru á ferð andstæðir spádómar, efablandnir menn og örvæntir.garfullir, en eigi að síður miklar og lifandi umræður um örlög mannsins, og þessar umræður hafa vissulega átt sinn þátt í'því að móta veröldina eins og hún lítur út í dag. A þessu tímabili rekst maður á Carlyle, iiruggan á yfirborðinu um ágæti læknisað- gerða þeirra, er hann ráðlagði gegn sjúku stjórnmála- og fjárhagsástandi, en hið innra með sjálfum sér eins reikulan í ráði og óham- ingjusaman og stjórnmálaskriffinna nútím- ans. A þessu ári var Marx þegar búinn að tilkynna veröldinni aðalatriði boðskapar síns í gegnum kommúnistaávarpið. Og á þessu ári ritaði heimspekingurinn Emerson í dagbók sína: „París, 6. maí: Götur höfuðborgarinnar hafa misst trén fögru, þau voru öll liöggvin niður í götuvirki í íebrúar. Við árslokin verð- ur hægt að gera upp reikningana og sjá, hvort byltingin var þess virði.“ SAGNFRÆÐINGURINN, sem ætlar sér að greina frá því, sem líkt var með árunum 1848 og 1948 í stórum og smáum atriðum, kemst fljótt að því, að þar var margt líkt með árunum og margt ólíkt með þeim. Því rneir, sem hann einblínir á hinar ytri að- stæður mannsins, á vélar hans, borgir, stjórn- mála- og efnahagskerfi, því betur sér hann það, sem ólíkt er. En því meiri rækt sem hann leggur við að kynna sér lijörtu mannanna og skapgerð þeirra, allt það, sem þeir hata, vona og óttast, því betur sér hann það, sem líkt er. Þeir áttu enga atómbombu árið 1848, og raunar áttu þeir ekkert grimmilegra vopn en frumstæðar vélbyssur og marghleypta riffla. En samt höfðu þeir þungar áhyggjur af í þessari grein raeðir ameríski sagnfræð- ingurinn CRANE BRINTON byltingar- tíðina í Evrópu órið 1848 og óstandið í veröldinni í dag. Mannkynið leitar enn að leiðum að takmarki, sem for- feður okkar sáu í hillingum auknum möguleikum mannskepnunnar til þess að tortíma náungum sínum. Þeir höfðu engan síma, ekkert útvarp og aðeins ófull- komin símritunartæki. Þeir áttu engin tæki til þess að útbreiða áróður til fjöldans í lík- um mæli og þessi kynslóð. Samt sem áður höfðu þeir þungar áhyggjur af „kúgunarvaldi meirihlutans", og þeim möguleika, að spilltir leiðtogar notfærðu sér trúgirni og fáfræði fjöldans. Þeir höfðu ekki haft neitt heimsstríð á ár- unurn íyrir 1848. Þeir höfðu meira að segja búið við ástand, sem nálgaðist að vera heims- friður, síðan 1815. Staðbundnir ófriðir voru að vísu uppi á þessu tímabili. En ókyrrðin, sem greip um sig 1848, var ekki, líkt og nú, af völdum styrjaldar. Ófriðarhættan lá samt allt af í loftinu, og í lausn vandamálanna voru al- þjóðasamskiptin ævinlega þung á metunum. Árið 1848 voru uppi tvær andstæðar þjóð- félagsstefnur, sem mönnum liætti til að kenna við tvær andstæðar þjóðir, Frakkland, er var frjálslynt lýðveldi, og Rússland, aftur- haldssamt keisaradæmi. Óttinn við einvígi í milli Frakklands og Rússlands út af skipt- ingu Miðevrópu og Ítalíu í áhrifasvæði, varð aldrei að veruleiká, og þegar við lesum sög- una nú, sjáunt við gerla, að slíkt einvígi var mjög ólíklegt eins og á stóð. En árið 1848 voru menn rnjög kvíðafullir og óttuðust átök, og þessi ótti setti svip á athafnir þeirra. Þeir urðu öfgafyllri og ósamvinnuþýðari og fljót- ráðari. HVERGl er augljósari munurinn á þessum árum, 1848 og 1948, en þegar litið er til hlutverks Bandaríkjanna. Þá voru þau fjar- læg ntiðpúnkti heimsins, áhugalítill áhorf- andi byltingatímans í Evrópu. Bandaríkja- 6

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.