Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1948, Page 8

Samvinnan - 01.05.1948, Page 8
Eflir JOIIN COLLIER Framliald Hún var í þungu skapl þegar In'm vaknaði morguninn eftir. l>á beið hennar það verk að matbúa mikla máltíð handa Maríu. Þegar því var lokið kallaði Fred hana á eintal. „Heyrðu," sagði hann. „Þetta gengur ekki. Eg get ekki látið þig sofna úti eins og sígauna. Og nú skaltu heyra hvað mér hefir dottið í hug. Eg fer að stunda loftfimleika á ný. Eg kann tðluvert af þeim listum og mér þykir skemtntilegt að stunda þær. Eg hefi hara ekki haft tíma né tækifæri til þess að æfa mig vegnu þess að eg hefi þurft að annast Maríu, en ef þú sérð um hana getum við haft tvö númer á sýningarskránni, og þá öflum við brátt svo mikilla peninga að við getum. .. .“ „Já“, sagði Rósa. „Að við getum síðar keypt dráttarvagn handa þér.“ „Jæja,“ sagði Rósa og sneri sér frá honum. Brátt sneri hún sér þó að honum aftur og leit á hann logandi augum. „Það má vel vera að þú vitir heilmikið um grísi og gyltur," sagði hún biturlega. „Að þú getir stokkið heljar- stökk og sýnt töfrabrögð, riðað körfur og hundið sófla, og eg veit naumast hvað eg á til að taka, en eitt er þó, sem þú hvorki veizt né kannt". Þegar Rósa hafði sagt þetta hljóp hún burtu og faldi sig á hak við runna þar sem hún grét beisklega. Eftir nokkru stund sefaðist hún að gekk heim að vagninum. Fred kenndi henni að baða Maríu, síðan þurfti að slíta burtu öll þau hár, sem til óprýði uxu, og það verk var liarla sárt fyrir fingurna, því næst var María núin um allan skrokkinn upp úr andlits- smyrslum, þá var hún dyft og klaufir henn- ar skornar og gljáðar. Rósa ,sem var fastákveðin í því að gera sitt bezta bældi niður andúð sína á grísnum og rækti að lokum þessi morgunstörf á mjög sæmilegan hátt. í fyrstu var hún blátt áfram þakklát fyrir það að hinn dekursjúki grís skyldi þekkjast þjónustu hennar án þess að sýna mótþróa. Til lengdar get henni þó ekki dulist meinfýsni glampinn í augum Maríu. En henni vannst ekki tími til þess að sýta yfir honum. Strax og morgunsnyrtingunni var Iokið mátti hún taka til óspilltra málanna að búa til hádegisverðin. Og að loknum há- degisverði var María vön að ganga stutta skemmtigöngu, nema á laugardögum, en þá var jafnan síðdegissýning, svo að hún varð að hvílast til undirbúnings undir erfiði því, sem sýningunum fylgdi. Fred sagði að lienni þætti gott að láta skrafa við sig og klóra sér dálítið á bakinu á meðan hún hvíldist. Og Rósa komst brátt að því að María vildi láta klóra sér meira eu dálítið. Þá þurfti að núa hana upp úr húðsmyrslum á ný. Og var þá 8 kominn tími til þess að fara að hugsa um kvöldverðinn. Þegar þessu dagsverki var lok- ið þakkaði Rósa fyrir að mega skríða undir vagninn og Ieggjasl til hvíldar á hálmpok- anum. Þegar Rósa hugsaði um rúmið uppi í vagn- inum, um Fred og alla einfeldni hans, lá við hjarta hennar brysti. Það eina, sem gaf henni þrek til að þola þetta var það að hún elskaði hann svo ósegjanlega mikið þrátt fyrir allt, að hún fann að ef þau aðeins fengju næði til þess að kyssast ofurlítið meira mundi kann- ske svolítill ljósgeisli megna að rjúfa þoku einfeldni hans og sakleysis. Og á hverjum degi beið hún þessa tæki- færis, en það kom aldrei. María sá um það. Öðruhvoru stakk Rósa upp á því að þau færu stuttar gönguferðir, en þá byrjaði jafnan hinn andstyggilegi grís að brauka og ríta svo hún varð að dekra við hann þangað orðið var um seinan að hugsa um skemmtigöngu. Fred æfði sig og þjálfaði af mikilli kostgæfni og hörku, — en til hvers? Til þess að geta síðar keypt vagn til að tengja aftan í hjólahúsið handa Rósu. Með hverjum degi, sem leið varð Rósu betur ljóst að hún var orðin þræll þessar kenj- óttu og dekursjúku gyltu. Hana verkjaði í bakið og hendur hennar voru orðnar rauðar og sprungnar. Henni gafst aldrei stundarfrið- ur til þess að snyrta sjálfa sig, og því síður nokkurt tækifæri til þess að vera ein með elskhuga sínum. Fötin hennar voru orðin slit- in og óhrein, og brosið var horfið af vörum hennar. Hárið, sem fyrr var svo fagurt, féll nú í óhirtum rytjum um höfuð hennar og hún var hætt að hafa löngun til þess að hirða það, enda gafst enginn tími til þess. Rósa reyndi að tala um þetta ástand við Fred, en það leiddi einungis til ásakana og liarðyrða. Fyrir sitt leyti reyndi hann að sýna henni ást sína á ótal vegu, en nú orðið skoð- aði hún þær tilraunir sem spott og spé frá hans hendi og galt með illyrðum. Þá gafst liann upp og komst að þeirri niðurstöðu að hún elskaði hann ekki lengur, og það sem verra var: Hún fór sjálf að trúa því að hún væri hætt að elska hann. Þannig leið sumarið, og fór sífellt versnandi. Nú var svo komið að vel liefði mátt halda að Rósa væri sígauna- stelpa. Brumberin voru nú orðin þroskuð á ný, og Rósa hafði íundjð marga og stóra runna al- setta berjum. Þegar hún bragðaði berin, streymdu endurminningarnar frá síðasta sumri um sál hennar eins og flóðalda, og hún flýtti sér á fund Freds. — „Fred,“ hróp- aði hún. „Brumberin eru orðin þroskuð. Smakkaðu." Og liún rétti honum ber í lófa sínum. Fred tók nokkur ber og bragðaði þau. Rósa beið í ofvæni. „Já,“ sagði hann. „Þau eru fullþroskuð. Hún fær enga kveisu af þeim. Farðu með hana þangað út seinni partinn í dag og láttu hana borða dálítið af berjunum." Rósa sneri sér frá honum án þess að mæla orð. Síðari hluta dagsins tók hún Maríu með sér í berjamóinn. Strax og María sá berja- runnana tók hún til að háma í sig berin af mikilli græðgi. En Rósa, sem þessa stundina hafði ekkert að starfa við að þjóna gyltunni, settist niður og grét beisklega. Meðan hún sat þarna grátandi heyrði hún allt í einu rödd, sem spurði hvað þarna væri um að vera, og þegar hún Ieit upp kom hún auga á gamlan feitan og góðlegan bónda. „Hvað er að stúlka mín?“ spurði hann. „Ertu svöng?" „Nei, eg er ekki svöng," svaraði hún, „en mér er kökkur í háisi." „Hvað veldur þ\í?“ spurði bóndinn. „Grís,“ svSraði hún og kjökraði. „Það er þó sannarlega ekkert til þess að vola yfir. Ekkert í lieiminum er eins dásam- lega gott og flesk. Eg skyldi vinna það til að hafa magapínu hvern einn og eilífasta dag ef hún kæmi af því að borða flesk." „Það er ekki flesk," sagði Rósa. „Það er lif- andi grís.“ „Hefir hann stolist burtu?“ spurði bónd- inn. „Nei, en eg vildi næstum því óska að liann hafði gert það,“ svaraði hún. „Eg er svo ör- væntingarfull að eg veit engin lifandi ráð." „Segðu mér betur frá því, sem amar að þér,“ sagði bóndinn. „Ofurfítif hluttekning ætti ekki að skaða." Og nú sagði Rósa honum frá Fred og Maríu, og frá öllum sínum vonum. Hvernig allt hefði farið út um þúfur. Hvernig hún hefði orðið þræll þessa hræðilega dekursjúka \g afbrýðissama griss. Já, hún sagði honum allt nema ofurlítið, sem hún mundi aldrei hafa fengið sig til að segja nokkrum bónda, hvað feitur og vingjarnlegur sem hann hefði verið. Bóndinn ýtti halttinum niður fyrir augu, og klóraði sér hugsandi í hnakkanum. „Ja, virkilega," sagði hann. „Það er naum- ast að maður trúi þessu."

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.