Samvinnan


Samvinnan - 01.05.1948, Blaðsíða 10

Samvinnan - 01.05.1948, Blaðsíða 10
iiiiiiiiiimiiiiiMiiiiiiiiiiiiimmimiiiiiMimmmmmimiimiiim»»* Frá aðalfundum kaupfélaganna Kaupfélag Eyfirðinga. Aðalfundur KaupfA'ags Eyfirðinga var haldinn á Akureyri 19. og 20. apríl s. 1. Fundinn sóttu 234 fuHtrúar frá 24 félagsdeildum í umboði 4656 félagsmanna. Hafði félagsmönnum fjölgað um 118 á árinu. Auk fulltrúanna sátu fundinn stjórn félagsins, framkvæmdastjóri og deildar- stjórar, endurskoðendur og allmargir gestir. Þórarinn Kr. Eldjárn, hinn nýkjörni formaður félagsins, flutti skýrsiu stjórnarinnar. f fundar- byrjun minntizt hann Einars Árnasonar á Eyrar- landi, sem andaðist i nóvember sh, rakti störf hans fyrir félagið ng giftu þá, sem jafnan hefði fylgt störfum hans. Risti fundarmenn úr sætum í virðingarskyni við hinn látna samvinnu- leiðtoga. í skýrslu þeirri, er Þórarinn Kr. Eld- járn flutti af hálfu stjórnarinnar, um helztu framkvæmdir á sl. ári, voru þessi atriði helzL: Keypt var bílaverks'æði á Dalvfk til þess að annast vélaviðgerðir fyrir félagsmenn í Dalvík og Svarfaðardal. Keypt hálf jörðin Sjáland í Grímsey ásamt íbúðarhúsi fyrir útibússtjóra félagsins þar. Keyptir olíukynntir katlar úr Hvalfirði fyrir ketilhús Mjólkursamlagsins, sem ákveðið er að reisa í Grófargili. Hafin viðbótar- bygging fyrir Skipasmlðastöð félagsins á Odn- eyrartanga og húsrúm ætlað þar fyrir málm- húðunarverkstæði það, sem félagið hyggst koma á fót. Haldið áfram byggingu verzlunarhússins við Hafnarstræti og hraðfrystihúsa í Datvik og Hrísey. í skýrslu sinni um rekstur og hag fé- lagsins rakti Jakob I'iirnannsson framlivœmda- stjóri mjög ýtarlega starfrækslu einstakra deilda félagsins, skýrði frá hag þeirra á árinu og las upp reikninga þeirra. Af skýrslu hans kom í Ijós, að heildarsala allra starfsgreina félagsins á innlendum og erlendum afurðum varð um 68 millj. króna og er það hæsta upphæðin í sögu félagsins. Vegna lækkaðrar álagningar og aukins tilkostnaðar varð heildarafkoma félagsins ekki eins góð og áöur. Rekstursafgangur til ráðstöfunar fyrir aðalfund af almennri, ágóða- skyldri úttekt varð 271.588.72 og lagði stjórnin til að greiddur yrði 4% arður. Ennfremur að brauðgerðin grciddi 5% arð og lyfjabúðin 5% arð. Samkvæmt skýrslunni voru innstæður (é lagsmanna í innlánsdeildum, stofnsjóðum cg viðskiplareikningum kr. 19.747.108.14 en sku'. 1- ir þeirra kr. 337.458.50. Höfðu ástæður félagmna gagnvart félaginu batnað á árinu um kr. 2.004. 584.89. Innstæða í stofnsjóði var í árslok <r. 3.324.58489 og hafði aukizt um 294.279.73. - Úlborgað úr stofnsjóði á árinu samtals kr. 102. 745.70. Innslæður félagsmanna í innlánsdeild námu kr. 10.805.685.74 og höfðu aukizt um kr. 1.329.189.18 á árinu. Árið 1947 greiddi félag- ið um 450 j)ús. kr. til félagsmanna, sem arð af viðskiptum ársins 1946, fyri, utan arð af lyfja- búðar- og brauðgerðarvörum. í skýrslu fram kvæmdasljóra og endurskoðenda, kom fratu. að eignir félagsins eru varlega metnar og fjárhagur þess mjög traustur. BYGGINGAMÁL SVEITANNA. Á fundinum urð'. allmiklar umræður um byggingamál sveitanna í tilefni af tillögu frá stjórn félagsins. Er lillaga þessi svohljóðandi: „Aðalfundur KEA felur stjórn félagsins að gangast fyrir stofnun hlutafélags til að annast byggingaframkvæmdir fyrir lélagsmenn". Ætlunin cr að þátttakendur í félagi þessu verði, auk kaupfélagsins, byggingamenn og verka- menn og taki jrað að sér byggingaframkvæmdir Munu menn gera sér vonir um, að með jaessum hætti muni e. t. v. takast að greiða úr þcim erfiðleikum, sem á því eru að fá fagmcr.u til vinnu við byggingar í sveitum. Þá var samþykkt eftirfarandi tillaga um vot- heysgryfjur, í framha'd af þeim umræðum, sem um það mál urðu á ársfundi Mjólkursamlagsins. „Aðalfundur KEA skorar á stjórn félagsins að láta fram fara rannsókn á jní, hve almennur vilji er fyrir hendi hjá bændum um að fá steypt- ar votheysgryfjur. Komi í ljós við rannsókn al- mennur áhugi fyrir þessu, treystir fundurinn stjórn félagsins að hefjast handa um fram- kvæmdir". SAMVINNUÞV OTT AHÚS. Eftirfarandi tillaga var sampykkt einróma, flutt af fulltrúa Akureyrardcildar: „Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga, h.dt.inn á Akureyri 19. og 20. apríl 1948, samþykkir að fela stjórn félagsins og deildarstjórum á hverjum stað, að rannsak möguleika á því að koma upp félagsþvottahúsum til afnota fyrir heimill á félagssvæðinu, bæði hér í bæ og sveitum og sjávarþorpum. Ef skilyrði eru fyrir hendi "g áhugi og skilningur ' þess.i máli kemur í Ijós, vænlir fundurinn að undirbúningur verði haf- inn að starfsemi þessari". FULLTRÚAKJÖR. Allmiklar umræður urðu um tillögu frá stjórn- inni um að fækka fulllrúum á aðalfundi, þar sem fyrirsjáanlegt væri, að ftindirnir væru að verða svo umfangsmiklir sakir fjölmennis, að erfitt væri úr að greiða. Samþykkt var að vísa þessari tillögu til félagsdeildanna og liggi álil þeirra fyrir næsta aðalfundi. Kaupfélag Svalbarðseyrar. Aðalfundur Kaupfélags Svalbarðseyrar, hinn 59. í röðinni, var haldinn í samkomuhúsi Sval barðsstrandar hinn 12. apríl sl. Mættir voru 32 fulltrúar, auk stjórnar og framkvæmdastjóra. Formaður félagsstjórnarinnar, Jón Laxdal, setti fundinn. Framkvæmdas'.iórinn, Finnur Kristjánsson flutti skvrslu i:m reksti.r félagsins 1947. Heildarvörusalan varð kr. 1.928. 509.00 og haði aukizt um rösklega 121 þús. kr. Innstæður viðskiptaraanna námu 950 þús. kr., og stofnsjóður félagsmanna kr. 86.488.00. Sam- eignarsjóðir eru kr. 221.289.00 — Samþykkt var að úthluta 3y2% arði. VÖRUSKORTÚR. Á fundinum var upplýst, að það sem félagið hefir fengið af vefnaðarvörum og búsáhöldum frá sl. áramótum, er ekki í neinu samræmi við útgefna skömmtunarmiða til félagsmanna. Hafa félagsmenn því orðið að leita út fyrir verzlunar- svæðið til kaupa á þrssum vörum. Ákveðið var að minnast 60 ára afmælis fé- lagsins á næsta ári. Að loknum fundi hélt félagið skemmtun fyrir fulltrúa og gesti þeirra. Kaupfélag Verkamanna. Aðalfundur Kaupfélags verkamanna Akur- eyrar var haldinn hinn 14. apríl s. 1. Samkvæmt skýrslu stjórnar og framkvæmdastjóra varð vöru- sala félagsins á árinu 1947 kr. 1.206.719.07 og hafði aukizt um 29% að krónutali. Samþykkt var að greiða félagsmönnum 10% arð. Kaupfélag Þ»ingeyinga. Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga var settur í samkomuhúsinu í Húsavík þriðjudagiim 20. þ. m. og stóð yfir í tvo daga. Fundinn sáti 80 fulltrúar, auk félagsstjórnar, framkvæmdastjóra og endurskoðenda. Framkvæmdastjóri, Þórhallur Sigtryggsson, flutti þar sína venjulegu ársskýrslu yfir rekstur og hag félagsins á árinu, sem var Jjökkuð af full- trúum og fundargestum með almennu lófataki. Vörusala félagsins var 7.358.034.29 og hafði hún aukizt á árinu um 2.224.712.69. Samþykkt var að greiða til félagsmanna 5% arð af ágóðaskyldri últekt þeirra. Fyrir fundinum lágu engin stór mál, því að i fyrra samþykkti aðalfundur miklar framkvæmd- ir, sem nú standa yfir. Nýtt brauðgerðarhus tekur til starfa í stimar, haldið verður áfram með verzlunarhúsbyggingu, sem haíin var í fyrra og hafin verður bygging í sumar á stóru hrað frystihúsi, sem félagið á stóran hlut í. í mörg ár hefur Björn Sigtryggsson Dóncti á Brún verið félagsstjórnarfonnaður, en á þessum fundi mætti hann ekki, vegna langvarandi veik- inda, og hafði hann lýst því yfir, að hann tæki ekki endurkosningu. í hans stað var kosinn i stjórnina Úlfur Indriðason bóndi á Héðinshöfða, sem búinn var að vera varamaður í allmörg ár. Karl Kristjánsson, odclviti Húsavík, var kjörinn formaður félagsins. Tveir nýir menn voru kosnir í varastjórn, jieir Steingrímur Baldvinsson bóndi í Nesi og Tryggvi Sigtryggsson bóncli á Laugabóli. SKEMMTIKVÖLD FYRIR FÉLAGSMENN. Eins og að undanförnu hafði kaupfélagið tvö skemmtikvöld fyrir fulltrúa og gesti þeirra. Fyrra kvöldið var kvöldvaka, sem skcmmtinefnd félagsins stóð fvrir. Hófst hún með því að kirkju- 10

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.