Samvinnan - 01.11.1963, Blaðsíða 13
SPRENGINGIN
í HALI FAXHÖFN
Þegar franska vöruflutningaskipið Mont Blanc sprakk í
loft upp í höfninni í Halifax í Kanada 6. desember 1917,
var sú sprenging líklega hin mesta, sem sagan greinir frá
af mannavöldum, unz atómbomban kom til sögunnar. Enda
var skipið fermt með 3000 smálestum af TNT-sprengiefni
og 2300 smálestum af eldfimri sýru. Eldur kom upp í skip-
inu er það rakst á annað skip. Komst hann brátt í farminn
og var þá ekki að sökum að spyrja.
Eldsúlan frá sprengingunni náði 300 feta hæð. Tjónið
varð gífurlegt, einkum í höfninni, þar sem fjöldi skipa
lá. Að minnsta kosti 2000 manns fórust, og um 8000 hlutu
meiri eða minni meiðsli. Hver einasti gluggi í borginni
molnaði mélinu smærra, og eldar komu víða upp, þar sem
glóandi tætlur úr hinu sundurtætta skipi komu niður. Um
200 manns blinduðust, er loftþrýstingurinn feykti gler-
brotum í augu þeirra. Margar byggingar hrundu saman
eins og spilaborgir, og jafnvel í 60 mílna fjarlægð var
loftþrýstingurinn nógu mikill til að brjóta rúður og koma
lausum hlutum á hreyfingu.
Elgurínn — þraut
Hér er elgur á hlaupum úti í skógi. Hann er dálítið
sérkennilegur, settur saman úr tölustöfum. Sérðu, hvaða
tölustafir það eru, og hve margir af hverjum? Lausnina
er að finna neðarlega á síðunni.
Annað bréf ....
Framhald af bls. 16.
fólk á íslandi. En því er liollt
að muna, að félagshvggja er
viturlegt hugarfar, og því er
skylt að vita að samvinnufé-
lögin eru hjálpartæki sem um
munar í sköpun landsbyggðar-
innar. Samvinnufélögin ein eru
ekki þess umkomin að endur-
bæta heiminn, svo sem með
þarf. En án þess undirbúnings,
sem jarðvegur hins dáfríða dals
hefur notið í 80 ár frá hendi
samvinnufólksins, hefði ekki
vaxið hið fagra býli og frið-
sæla heimili, sem hér hefur
verið notað sem stef í lítilli
blaðagrein.
Páll H. Jónsson.
•iuuis nuia o So mn
-uuis mmij i ‘umuuis xos g ‘aBASt.icí 9 ‘iuuis nui9 L ‘iuuis
nui9 8 '9J ?m mnuSi9 in jn :iuuijm!i(JsSi9 n usnnq
SAMVINNAN 13