Samvinnan


Samvinnan - 01.11.1963, Side 31

Samvinnan - 01.11.1963, Side 31
Á MARKAÐINUM Á MARKAÐINUM Á MA Þjófnaður í kjörbúðum Þegar kjörbúöirnar komu fyrst til sögunnar, létu andstæðingar þessa verzlunarforms í ljós ótta um, að meira yrði stolið úr hinum nýju búðum en hinum með gamla laginu. Sá ótti hefur þó sem betur fer reynst fremur ástæðulítill. Þýzka firmað Cornelius Stússgen A/S, sem rekur um fimmtíu kjörbúðir, heldur því fram, að árið sem leið hafi 697 þjófnaðir verið framdir í búðum þess, sem samsvarar einum þjófnaði á búð á mánuði. Hinar stolnu vörur voru að verðmæti 3472 mörk, eða 4.98 mörk á þjófnað. 65% þjófanna voru konur, 20% karlmenn og 15% börn af öllum stéttum þjóðfélagsins. Mestu ágirnd höfðu þjófarnir á súkkulaði og öðrum sætindum, en einnig var töluverðu hnuplað af kaffi, fleski, pylsum, smjöri og áfengi. Sárasjaldan hafa kjörbúðaþjófnaðir verið framdir í beinni neyð. Þar ráða auðgunarsjónarmið mestu, en einnig stela menn stundum sér til gamans eða til að fá einhvers konar ævintýrafýsn fullnægt. - • urs og aðstæður þær er sam- vinnufélögin ættu nú við að búa. Árið 1926 var stórt spor stigið í þessum málum, er sett var verzlunarlöggjöf samvinnu- manna, en samkvæmt henni var skipuð afurðasöludeild samvinnumanna í landbúnað- arráðuneytinu. Hún tryggði bændum frá stjórnarinnar hendi samhjálparregluna inn- an sinna eigin félaga. Þessi lög, sem Samvinnudeild bænda í ráðuneytinu fer með, nær til rannsókna, ráðgefandi aðstoð- ar, og fræðslu varðandi verk- stjórn, skipulagningar, stjórn- un, afköst, fjármál og aöild fé- laga að samböndum. Síðan útbreiðsluþjónustan hóf starfsemi sína árið 1914, hefur hún haldið uppi fræðslu til að útbreiða þekkingu á gagnsemi samvinnunnar fyrir bændur. Umboðsmenn til sveita hafa kappsamlega aðstoðað við stofnsetning smærri kaup- félaga og enn í dag hafa út- sendarar og aðrir starfsmenn útbreiðsluþjónustu ríkisins haft náið samstarf við samvinnufé- lögin. Búnaðarskólarnir veita samvinnufélögunum aðstoð við rannsóknir, upplýsingar og kynningu. Landbúnaðarráðu- neytin hafa og verið þeim hjálpleg, sér í lagi varðandi lagasetningar, skipulagsvanda- mál og reikningsfærslur. Um síðastliðin hundrað ár hafa samvinnufélögin átt sí- vaxandi og mikilsverðu hlut- verki að gegna við að hjálpa bændum til betri aðstöðu við framleiðslu og sölu á vörum, hvort heldur er matvara eða annað. Þetta hefur tekist með góðri stjórn, heilbrigðu fjár- málakerfi, síauknum rann- sóknarstörfum og fjölmennum hópi félagsmanna er sýnt hef- ur skilning og veitt aðstoð. Með nánara samstarfi, með heils hugar starfsemi og með árangursríkri aðstoð bændum til handa, geta samvinnufélög þeirra byggt á fenginni reynslu í framtíðinni. Jóhann Bjarnason þýddi. SAUERKRAUT Einn kunnasti og vinsælasti þjóðarréttur Þjóðverja er súrkál, eða sauerkraut, eins og það heitir á tungu inn- fæddra. Svo samtvinnaður er réttur þessi þýzku þjóðerni í hugum manna, að í heimsstyrjöldinni síðari uppnefndu bandarískir hermenn þýzka andskota sina eftir honum og kölluðu þá „krauts“. Enda er það sannast mála, að fáir Þjóðverjar munu telja sig geta án súrkálsins verið, og utan heimalandsins hefur það átt sívaxandi vinsældum að fagna. Einna bezt þykir að neyta þess með grísasultu, en annars má vel hafa það með öllum mögulegum mat, bæði fisk- og kjötréttum. Enn sem komið er hafa íslendingar lítt látið til sín taka í neyzlu þessa ágæta káls, en væntanlega getur orðið breyt- ing á því. Sem stendur er eitthvað af því í matvöruverzl- unum, að vísu ekki flutt inn frá Þýzkalandi sjálfu, heldur frá ísrael, en það ætti að gera sama gagn. Fæst það í 540 gramma dósum, sem sjá má á meðfylgjandi mynd. SAMVINNAN 31

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.