Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1964, Blaðsíða 7

Samvinnan - 01.04.1964, Blaðsíða 7
í þessari grein segir frá bréfaskriftum skálda og þjóðmála- skörunga aldamótaáranna. Gefa þau nokkra innsýn í sögu þess- ara tíma, sem undanfarið hefur verið mjög á dagskrá vegna nýútkominnar bókar um Hannes Hafstein ..... undir þeirri byrð'i, sem daglegar annir leggja á hana. Ég hefði kosið að penni minn þyrfti eigi að ryðga. Þessvegna sótti ég um styrkinn til þingsins ’99, sem þér cr kunnugt um. Ég hélt, að þið Jón minn í Múla mynduð láta hann koma til tals í breytingar- tillögu, ef ekki beinl. í fjárlagafrumvarpinu. En það fórst fyrir, enda bað ég engan um fylgi og hefi líkl. eigi átt það skilið. — Auðvitað drep eg ekki fingri á þá hurð oftar, þótt eg komist í krappan dans. Um pólitíkina er það að segia, að prógram Vestra, það sem á pappírnum stendur, kemur ekki í bága við vilja minn í stjórnar- skrármálinu. Ee er líka ó- bundinn við flokk Valtýs, eins og þú munt fara nærri um. En þó bítur það á mig, að vopnaskipti flokkanna séu eigi öll sén ennþá. — Ee er eigi upp- lagður til að hallast að hlutunum. Ef eg tæki Vestra að mér, væri ég bar með kominn inn í það stormahvel. sem hrifi mig með sér. Mörg mál Valtýs (peninga- eða bankamálið, samgöngnmál o. fl.I eru bannig vaxin, að ég er heim móthverfur. Það er bví eigi víst að eg fylH flokk þeirra framvegis. Annað mál er það, hvort eg nenni að skjóta geig- skotum í þann flokk, eða vilji gera leik til þess. Báðir flokkarnir þykjast vera „Opportúnistar". En við því er búið, að þeim komi ekki saman um hvað sé „Opportúnisme" þegar til kemur. Um það mun deilt í sumar komanda og af miklu kappi ef ég get rétt til. Þið munuð telja innlendan ráðgjafa stjórn- bót. En hinir fallast ekki á neitt, sem er í líkingu við minnihl.fr.v. frá í sum- ar og telja Valtýs ráðgjaf- ann betri — að líkindum. En hvað sem þessu tvennu líður, heimafestu minni og skoðunum, þá ætti ég á hættu, að fá mesta skítkast á mig í blöðunum fyrir allt illt: stefnuhringl, sannfæring- arsölu, skoðanaleysi o. s. frv. Eg er tilfinningaveilli en sumir ætla og gæti skeð, að eg færi ekki með góðan hlut frá þeim skiptavelli. Nú getur þú séð vilja minn og svar — að eg fer hvergi í þessum vændum. Og hefi eg þó gott álit á H. H. bæði drengskap hans og hæfileikum. Eg hefi kynnzt honum lítið eitt og minnist með ljúfum end- urminningum þeirra stunda, er eg átti tal við hann, og var eg þó eigi heill heilsu stundum. Þú fyrirgefur hvað þetta er illa úr garði gert. Papp- ír hefir orðið unpgangs- samur í vetur h.iá mér og ennþá hefi eg ekki náð í kaupstað, síðan nýja árið hófst, sökum ótíðar. Það getur ekki heitið að eg geti skrifað bréf. Vissara er að þú tjáir H. H. þetta. En verið get- ur, að eg sendi honum línu með næsta pósti. Vinsaml. og virðingarf. Guðmundur Friðiónsson Ekki liðu margar vikur frá því að skáldið á Sandi skrifaði bréf sitt til Péturs, til þess er sýslumaðurinn á ísafirði sendi vini sínum á Gautlöndum línu. Þar í er þetta, skrifað 22. febr- úar 1902: „Leitt var að Guðmund- ur Friðjónsson skyldi ekki fást í ritstjórnina. Ég er viss um, að hann gæti haft hér ýmsar aukatekjur, auk ritstjóralaunanna, sem brátt mundu hækka. Blað- ið ætti, þegar þessi heima- stjórnar kollhríð er gengin um garð, að verða sem mest „littærert", og þaö getur ekki annað en átt vel við Guðmund. Hann skrifaði mér ekk- ert.“ Eftir að þessum bréfa- skriftum lauk héldu for- lögin áfram að vefa sína voð. Hannes gekk út í stjórnmálabaráttuna, varð tvisvar sinnum ráðherra og fyrstur i bví tignarsæti íslenzkra manna. Hann átti eftir að skrifa Pétri á Gautlöndum mörg og löng bréf. oft um hin mestu vandamál. Með þeim var mikil vinátta og náið sam- starf. Bóndinn á Sandi héH einnig áfram að skrifa. bót.t ekki yrði hann rit- stióri. sendibréf. ræður. sögur og l.ióð. Pannírinn varð ..upngangssamur" hiá ho"um fleiri vetur en 1901 til 1905. Eft.ir hann licrtrií). 99 ti'maritsyreinqr. 209 blaðaereinar, 30 fyrirlestr- ar. 4 ritgerðasöfn, 6 kvæða- söfn, 1 skáldsaga, 10 smá- sagnasöfn. og er þó ekki allt fulltalið. Þeim hjónum fæddust 12 börn. ellefu beirra komust yfir tvítucrt, os tíii aru enn á lífi. Auk ritstarfa og upneldis og menntunar barnahónsins. er svo ótalið starf bóndans á búiörð sinni. fsfirðingar virðast, hafa vitað. að hað va,r enginn meðalmaður. sem beir vildu fá fvrir rit,- stióra og leiða frá ..viHu síns valt'\ska vegar“ 2. des- ember 1901. Páll H. Jónsson Hannes Hafstein: „Ýmsir hér hafa augastað á Guðmundi Friðjónssyni . . . og hafa von um að hann mundi fást til að snúa af villu síns val- týska vegar ..." Guðmundur Friðjónsson: „... getur þú séð vilja minn og svar — að ég fer hvergi í þessum vændum". SAMVINNAN 7

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.