Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1964, Blaðsíða 22

Samvinnan - 01.04.1964, Blaðsíða 22
Tveir menn Framhald af hls. 14. í hringi í átt til dalsins, meö jaðri frumskógarins. Það sigldi í gegnum hóp af kind- um, sem flutu uppíloft á ólg- andi vatninu. Úteygir fiskar skutust undan skugganum af því. Hópur svartra hræ- gamma, sem sátu á kinda- skrokki, barst með straumn- um. Þeir horfðu blóðþyrst- um augum í kringum sig. Blóm, húsgögn og lik söfn- uðust saman í helreið, sem hélt niður í dalinn, út í óvissuna. Undir morgun reis bónd- inn á fætur og skipaði vinnumanninum að halda sér vakandi. Indíáninn undraðist hörkuna í rödd- inni. Hann hefði umhugsunar- laust fylgt húsbónda sínum á heimsenda. Hann var Indí- áni og vissi, hvað karlmað- ur er. En hann vissi líka, að karlmaður er þungur. Sitji einn maður á þaki, flýtur það vitanlega lengur en þeg- ar það brotnar sundur und- an þunga tveggja manna. Og þá er öllu lokið. Honum datt ekki í hug, að bóndinn yfirgæfi þakið af fúsum vilja. En hér var um líf og dauða að tefla, og það mátti ýta við honum. Þannig hugsaði Indíáninn, og hann færði sig nær. Stjarft andlitið var renn- vott. Þakið mundi alls ekki fljóta lengur en til morguns. Nú þegar voru farnir að losna úr því vöndlar og flj óta burt. Mennirnir höfðu ekki hugmynd um, hvar þeir voru staddir. Allt í kring var svört þoka, og vatnið virtist hreyf- ingarlaust. Bar þá í hring? Þeir vissu það ekki. Og svo horfðust þeir í augu. Þá var það, sem bóndinn dró upp síðustu sigarettuna, braut hana í sundur og rétti Indíánanum annan helm- inginn. Þeir rifu bréfið af og tuggðu tóbakið, því að eld áttu þeir ekki. Þetta gat hann látið ógert, hann er sannur vinur, hugs- aði vinnumaðurinn, og smám saman breytti tóbaksremm- an hatrinu í tryggö. En hann sjálfur? Hann hafði misst bæði barn og konu. Hún hafði sprengt síðustu loft- bóluna með hendinni. Hann átti ekkert lengur til að lifa fyrir. Stráþakið sökk dvpra og dvpra. Stykki hann í vatnið, bæri þakið húsbónda hans máski til morguns. Þjónustunni er lokið, adi- os, Senor. Vinnumaðurinn klifraði ofan af mæninum út á þakbrúnina. Þá sá hann allt í einu krókódíla svamla í vatninu og horfa á hann. í fyrsta skipti gretti Indíán- inn sig, en svo dró hann diúnt andann og stökk. En á sama augnabliki greip húsbóndinn í hann, dró hann uop úr og æpti að honum, óður af reiði. Hann beygði sig yfir hann, kallaði hann öllum illum nöfnum og skók hann til. Svo skipaði hann honum að fara aftur á sinn stað og gefast ekki upp. Fjandinn hafi það. Um morguninn rak bá að landi. Þeir klifruðu yfir trjá- boli og óðn unz þeir komn á burrt. Þá börðu beir iörðina tU þess að fæla burt siöngur. Áður en beir löaðust til svefns, sagði bóndinn: „Á morgun förum við t.íi baka og bvrium á nv“. „Bueno“. sagði Indíáninn, Það stytti upp, 22 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.