Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1964, Blaðsíða 8

Samvinnan - 01.04.1964, Blaðsíða 8
SKÁLDIÐ Á SIGURHÆÐUM Safn ritgerða um þjóðskáldið Matthías Jochumsson eftir 27 höfunda. Davíð Stefánsson tók saman. Bókaforlag Odds Björnsson- ar, Akureyri. í síðastliðin 77 ár hefir Ak- ureyri með nokkrum hætti verið aðsetursstaður „kon- unga“. Þar hafa þeir ríkt tveir og sá síðari tekið við af hinum fyrri. Konungshallir þeirra hafa verið Sigurhæðir Matt- hiasar Jochumssonar og „Hús skáldsins" Daviðs Stefánsson- ar. í þessum „konunga“bæ kom út fyrir síðustu jól bók, sem heitir Skáldið á Sigurhæðum. Sú bók er gagnmerk. Hún er um bióðskáldið Matthías Joch- umsson, í hana er safnað og hún er búin til prentunar af bióðskáldinu Davíð Stefáns- syni, og hún er gefin út af hinu gagnmerka Bókaforlagi Odds Biörnssonar. Bókin hefur inni að halda ritgerðir um Matthías eftir 27 höfunda. marga þeirra öndvegis rithöf- unda og fræðimenn. bar á með- al tvær eftir Davíð Stefánsson. Vegna þess hvernig bókin er til komin, verður hún i einu vitnisburður um Matthías •Tochumsson frá mörgnm hlið- um og ólíkum siónarmiðnrn og ”m leið stórbrotin og glæsileg mvnd af bióðskáldinu. Það rv i st’i við stærð. snilld og fiöl- hæfar gáfur Matthíasar. að svo mörg stórmenni skuli hafa verið leidd sem vitni um yfir- burði hans. Það er öllum beim, sem hug hafa á að kynna sér hið andlega stórmenni og hafa af þeim kynnum sálubót, mik- ill greiði gerður, með því að safna saman í eina bók öllum þeim sjónarmiðum, skoðunum og margbreyttu myndum, sem bókin hefur upp á að bjóða. Hún er 389 bls. og allur frá- gangur vandaður. Það eru merkileg forlög, að ein hin síðasta þjónusta, sem Davíð Stefánsson veitti þjóð sinni, skyldi vera þessi bók, Skáldið á Sigurhæðum. m Árni Jónsson: LAUSNIN Bókaforlag Odds Björnsson- ar, Akureyri 1963. Bók þessi er skáldsaga og höfundurinn, sem er bókavörð- ur við Amtsbókasafnið á Akur- eyri, hefur skrifað eina sögu áður, sem vakti athygli: Ein- um unni eg manninum. Lausn- in er 226 bls. í Skírnisbroti. Skiptist hún í tvo kafla, fyrri- hluta, sem heitir Daníel og síð- ari hluta, sem ber nafnið Finn- ur. Ber sagan nokkur merki þeirrar skiptingar og verkar nánast sem tvær sögur, þótt ná- in tengsl séu á milli. Engum þarf að leiðast lestur þessarar sögu og er að henni góður fengur. Ber hún vitni hóglát- um, gáfuðum og fjölhæfum prýðismanni, eins og höfundur hennar er. BARNABÆKUR Þegar hinn gagnmerki bóka- frömuður, Oddur Björnsson, hóf í Kaupmannahöfn útgáfu á „Bókasafni alþýðu“, nokkru fyrir síðustu aldamót, var það brautryðjandastarf. Ekki var sú útgáfa þó með neinum byrj- endabrag, heldur gaf hann út bæði góðar bækur, í þess orðs venjulegu merkingu, og vand- aðar að öllum frágangi. Síðan hafa, eftir fordæmi Odds, mörg bókafélög verið stofnuð með það mark fyrir augum, að gefa út eins konar „bókasafn al- þýðu“. Mjög hefur þeim tekizt misjafnlega og þó oft vel. Hef- ur brautryðjandastarf Odds B.jörnssonar og annarra merkra bókaútgefenda fyrir og um síðustu aldamót, borið ríku- legan ávöxt, eins og allt það sem vel er til vandað og af góðum hug gert. Einn er sá flokkur bóka, sem Bókaforlaer Odds Björnssonar lætur sér hugað um. Það eru barnabækur. Um leið og hér verður miög lausleaa getið mkkurra, skal á það bent, að bótt hér á la.ndi komi árlega út miMll fíöldi barnabóka. og margar þeirra ágætar, er ein t°gund bóka. sem virðist vanta. bæði frá hendi íslenzkra höf- nnda og útgefenda. Það eru bækur fvrir unglinga á a.ldr- inum frá fermingu til 18 ára„ 03 Oestur Hansson: T^BÚLIMBTMM Bókaforlag Odds Biörns- sonar, Akureyri. Þetta er ..saga fyrir litlar stúlkur, og drengi jafnvel líka". Áður hafa komið nokkrar barnasögur eftir höfundinn, sem skrifar undir dulnefni. Hafa þær allar verið kærkomn- ar og vakið athygli. Svo mun einnig verða með þessa. Sögu- efninu er brugðið fyrir augu lesandans frá siónarhóli lítillar stúlku og margt er að sjá og margt að reyna, jafnvel þar sem hversdagsleiki hinna full- orðnu segir: Hér gerist aldrei neitt. 1 bókinni eru allmargar ágætar teikningar eftir bróður höfundarins, en þeir bræður eru sonarsynir Odds Björns- sonar, bókafrömuðar. Sagan er 120 bls. í Skírnisbroti. Gísli Ástþórsson: ÍSAFOLD FER í SILD Bókaforlag Odds Björns- sonar, Akureyri 1963. Þessi barnasaga er aðeins 63 bls. að stærð, brotið með nokk- uð öðrum hætti en venjulegt er, mjórra í hlutfalli við hæð, prentun og pappír í bezta lagi. Höfundurinn notar myndauð- ugt líkingamál og gefur sögu- efninu fyllingu með myndum, sem hann hefur teiknað sjálf- ur. Þessi myndauðgi er til þess fallin að leiða huga ungra les- enda að margs konar fyrir- brigðum í notkun málsins og að fjölskrúðugum akri lífsins sjálfs. m Ármann Kr. Einarsson: ÓLI OG MAGGI í RÆNINGJAHÖNDUM Bókaforlag Odds Björns- sonar, Akureyri. Ármann Kr. Einarsson hefur verið ötull barnabókahöfundur og er þetta 17. barna- og ung- lingabók hans. Hún er með öllum einkennum fyrri bóka hans. Frá sjónarmiði fullorð- ins fólks hefir hún og þær all- ar þann ómetanlega kost, að vera skrifuð á góðri íslenzku. Annar kostur þessarar sögu er sá, að svið hennar er ósnortin náttúra á lítilli varpeyju og þar komast ungir lesendur í snertingu við lærdóm og undur lífsins sjálfs. Sagan er 139 bls. í Skírnisbroti. PHJ. 8 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.