Samvinnan


Samvinnan - 01.04.1964, Blaðsíða 20

Samvinnan - 01.04.1964, Blaðsíða 20
KAUPFÉLAGSSTJÓRASKIPTI mundssonar kaupfélags- stjóra. Við starfi Helga í Haganesvík hefur tekið Garðar Viborg, sem undan- farin ár var erindreki Slysa- varnafélagsins. Áður hafði hann verið kaupfélagsstjóri á Drangsnesi. Kaupfélag Vopnfirðinga var stofnað 1918. Þar hefur undanfarin ár verið kaupfé- lagsstjóri Guðjón Ólafsson. Er hann um það bil að láta af störfum, en við tekur Hall- dór Kr. Halldórsson, ungur maður, sonur Halldórs Ás- grímssonar alþingismanns og fyrrverandi kaupfélags- stjóra á Vopnafirði. Halldór Halldórsson stundaði nám við Héraðsskólann að Laug- um og síðan í Samvinnuskól- anum. Að námi loknu þar árið 1957 hóf hann störf hjá S.Í.S. í Reykjavík, fyrst í Út- flutningsdeild og síðan Skipadeild, en 1960 gerðist hann starfsmaður Kf. Aust- ur-Skaftfellinga. Nú flytur hann á æskustöðvarnar í Vopnafirði. Halldór er fædd- ur 5. janúar 1937. Halldór Halldórsson Guðjón Ólafsson, sem ver- ið hefur kaupfélagsstjóri á Vopnafirði og þar áður í Búðardal, flytur nú á Akra- Borgfirðinga. Kaupfélagið var stofnað 1938. Þar hafa verið kaupfélagsstjórar Björn Stefánsson frá Stöðv- arfirði og í mörg ár Sveinn Kr. Guðmundsson, en nú síð- ast Ólafur J. Þórðarson. Guðjón Ólafsson hefur mikla reynslu sem kaupfé- lagsstjójri, öegar hann nú tekur við starfi sínu á Akra- nesi. Nokkur undanfarin ár hefur Helgi Traustason ver- ið kaupfélagsstjóri við Sam- vinnufélag Pljótamanna í Haganesvík. Hann hefur nú látið af því starfi og flutt til Sauðárkróks. Verður hann þar önnur hönd Sveins Guð- Guðjón Ólafsson TVÖ NÝ MJÓLKURSAMLÖG Á VESTURLANDI Nýlega tóku til starfa tvö mjólkursamlög á Vesturlandi á vegum Mjólkui-samsölunn- ar í Reykjavík. Mjólkursam- lagið í Grundarfirði, sem fyrst tók við mjólk 20. febr- úar s. 1. og mjólkursamlagið í Búðardal, sem hóf starf- semi sína 18. marz. Grafarnesbúinu er ætlað að taka við mjólk frá bænd- um á norðanverðu Snæfells- nesi, nema Skógarströnd, og sjá þorpunum þar fyrir neyzlumjólk, skyri og rjóma. Væntanlegt mjólkurmagn er þar nú 800.000-----1.000,000 ltr. á ári, en samlagið getur annað verulegri aukningu. Samlagsstjóri er Bent Bryde, mj ólkurfræðingur. Mjólkursamlagið í Búðar- dal mun taka við mjólk frá bændum í Dalasýslu og Skógarströnd og nú flytja A.-)Barðstrendingar einnig mjólk þangað. Væntanlega verður innvegið mjólkur- magn þar 1,5—2 millj. ltr. á ári, fyrst í stað. Samlags- stjóri er Lauritz Jörgensen, mjólkurfræðingur. Samlagið mun vinna afurðir úr mest- um hluta mjólkurinnar, en þar sem flutningaleiðir þess- ara tveggja mjólkursamlaga mætast, mun samlagið í Grundarfirði fá mjólk og mjólkurafurðir frá Búðardal til að fullnægja eftirspurn á sínu svæði, ef mjólkurfram- leiðslan þar nægir ekki hluta ársins en senda hinn hluta ársins þá mjólk sem afgangs verður til vinnslu í Búðar- dal. Garðar Viborg Tilraunastöðin í Hafnarfirði í Tilraunastöð Sambands- ins í Hafnarfirði er látlaust unnið að nýjungum í fram- leiðslu fiskafurða. Ein af mörgum verðmæt- um fiskategundum, sem veiðist við strendur íslands, er humar. Á meðan á hum- arvertíð stendur, er nokkur hluti aflans frystur í skel- inni og síðan fluttur út. Hinn annar hluti aflans er 20 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.