Samvinnan - 01.04.1964, Síða 30
eins og hann gat út á
svell. Hann var bara að
hugsa um að græða
meiri peninga og tók til
að sópa svellið, en nú fór
illa. Hann datt kylliflat-
ur á hálu svellinu og
hrökk í sundur í þúsund
mola, af því hann var
stökkur eftir að vera
svona lengi í ísskápnum.
Aumingja snjókarlinn;
honum var nær að una
við sitt. Hann hafði allt,
sem hann þurfti til að
lifa lengi, en svona fer
fyrir þeim, sem vill gína
yfir meiru en hann þarf.
Klaufskur
einræðisherra
Gríski hershöfðinginn og
einræðisherrann Metaxas
var einhverju sinni viðstadd-
ur, er verið var að reyna nýj-
an flugbát fyrir flugherinn.
Krafðist einræðisherrann,
sem annars var flugvélum ó-
vanur, þess að fá að stýra
sjálfur. Gekk það vonum
betur í fyrstu, en um síðir
„IMaður skyldi nú ictla, að milljóncradólt-
ir væri með meira en nokkurra sillinga
virði af fötum utan á sér!“
veitti flugmaðurinn, sem sat
við hlið Metaxas, því athygli,
að þeir voru i þann veginn að
lenda á venjulegum flugvelli.
— Afsakið, yðar ágæti,
mælti flugmaðurinn tauga-
óstyrkur, — en það væri
heppilegra að lenda á sjón-
um — vélin sú arna er sjó-
flugvél.
— Já, auðvitað, svaraði
hershöfðinginn hlæjandi, —
hvað er ég eiginlega að
hugsa?
Hann lenti síðan óaðfinn-
anlega á haffletinum, sneri
sér svo að flugmanninum og
mælti:
— Ég leyfi mér hérmeð að
votta yður ánægju mína með
þá háttvísi, sem þér sýnduð
mér, er þér vöruðuð mig við
þeirri ótrúlegu vitleysu, sem
ég var í þann veginn að gera.
Síðan lauk hans ágæti upp
dyrunum og gekk — beint í
sjóinn.
m
cuiáoncýá
Útuvi haga pýðum pytum
puldi bragarháttinn sinn
unaðsfagur yfirlitum
engjadagur minn og pinn.
Þar sem gróðurgrœnar anga
glaðar slóðir sumardags
gekkst pú rjóð með varma vanga
veg píns hljóða morgundags.
Reis og hneig í gullnum gárum
gróðurveig á okkar leið.
Valinn teigur skornum skárum
skúradeigur eftir beið.
Sveinbjörn Beinteinsson.
Þad er leikur einn
jggsL
POLYTEX #
PLASTMÁLNINGIN SEM ER
SÉRLEGA ÁFERÐARFALLEG
AUÐVELD í NOTKUN, ÞEKUR
MJÖG VEL OG FÆST í MIKLU
ÚRVALI FALLEGRA LITA
POLYTEX
PLASTMÁLNINGIN
SKER SIG ÚR
ÞVÍ LITIRNIR
HAFA ÓVENJU
MILDAN
OG DJÚPAN BLÆ
Gerið heimilið hlýlegra og vistlegra með Polytex
30 SAMVINNAN
=iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiii>iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!i!!iniiiiín! iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiniiiiiniii