Samvinnan - 01.03.1966, Síða 2
NÝR STARFSMAÐUR?
Eins og frá hefur verið skýrt í Samvinnunni
hefur Dagur Þorleifsson samkvæmt eigin ósk
látið af störfum sem fastur blaðamaður við rit-
ið. í stað hans hefur verið ráðinn Eysteinn Sig-
urðsson stud. mag.
Eystetfnn fæddist í Reykjavik 11. nóv. 1939.
Hann lauk stúdentsprófi við Verzlunarskóla
Islands og stundar nám í íslenzkum fræðum
við Háskóla íslands. Ásamt námi sínu hefur
hann undanfarin ár stundað ýmsa vinnu hjá
Sambandi íslenzkra samvinnufélaga og er því
vel kunnugur samvinnuhreyfingunni í landinu.
Samvinnan býður hann velkominn til starfa.
Ritstj. Eysteinn Sigurðsson
í HEIMSÓKN Á AKUREYRI
18. og 19. febrúar s.l. komu um 60 stúdentar úr viðskiptafræðideild
Háskóla íslands í heimsókn til Akureyrar í boði SÍS og KEA. Með í
förinni var kennari þeirra, Árni Vilhjálmsson prófessor. Skoðuðu
stúdentarnir ve;rksmiðjur, verzlanir og skrifstofur þessara aðila á
staðnum og hlýddu á erindi um atvinnurekstur og skipulag samvinnu-
hreyfingarinnar. Einnig snæddu þeir hádegisverð í boði bæjarstjórn-
ar Akureyrar í skíðahótelinu í Hlíðarfjalli. í heild var heimsóknin vel
heppnuð og bæði gestum og gestgjöfum til ánægju og fróðleiks.
Fararstjóri úr hópi stúdentanna var Steinar Berg Björnsson, en
leiðsögumaður og fylgdarmaður hópsins, meðan dvalið var á Akureyri,
var Gunnlaugur P. Kristinsson hjá KEA. Þá var Helgi Bergs, fram-
kvæmdastjóri Tæknideildar SÍS, hópnum til aðstoðar á Akureyri, og
auk þess veittu forstöðumenn og verkstjórar á hverjum stað hópnum
leiðsögn og svöruðu spurningum.
Á meðfylgjandi mynd sjást nokkrir stúdentanna virða fyrir sér
sápupökkunarvél í Efnaverksmiðjunni Sjöfn. (Ljósm. Gunnlaugur P.
Kristinsson).
■
■
■
■
Forsiffumynd:
Snjór á Akureyri.
Barnaskólinn. ®
Ljósm.: Gunnlaugur E
P. Kristinsson. Q
■
------------------------- E
■
■ Efni: |
2. Nýr starfsmaður. _
í heimsókn á Akureyri.
■ 3. Atómfjöll til beggja handa. *
H Páll H. Jónsson. ■
p 4. Færeyingar góðir heim að sækja. y
_ Rætt við Harry Frederiksen, framkvæmdastjóra, _
nýkominn heim úr Færeyjaför.
“ 6. Dæmdir elskendur. "
■ Smásaga eftir Garnett Radcliffe, Dagur Þor- ■
Ei leifsson þýddi. ■
m 8. Alþýðusamband íslands fimmtíu ára. _
Páll H. Jónsson.
m 9. Krossgáta.
■ 11. Bókaskápurinn. ■
ES 12. Sagan í smásjá: „Betlarauppreisnin“ á Niöur- ■
■ löndum, M
_ Dagur Þorleifsson. _
14. í sviðsljósinu: Eskýlos,
Dagur Þorleifsson.
■ 16. Myndlistarþáttur: Velazquez, ■
■ Dagur Þorleifsson. ■
p 18. Haustiaufin falla ■
_ Ijóð eftir Ingólf Jónsson frá Prestbakka. _
19. Föndurkrókurinn.
■ Veraldarsaga heimilanna. ■
■ Jónas Jónsson frá Hriflu. ■
■ 21. Minningarorð um Thorsten Odhe. ■
_ Páll H. Jónsson. _
22. Samvinnumyndir.
“ 24. Þarfastir Kanadamanna — Kristjánsson-
■ sniliingamir 6. ■
■ 25. Töfrapensillinn, ■
I ljóðaþýðing eftir Sveinbjörn Beinteinsson. B
_ Fögnuður, _
ljóð eftir Valborgu Bentsdóttur.
Samvinnan
MARZ 1966 — LX. ÁRGANGUR 3.
Útgefandi: Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Páll H. Jónsson.
Blaðamaður:
Eysteinn Sigurðsson.
Ritstjórn og afgreiðsla í Sambandshúsinu, Reykjavik.
Ritstjórnarsími: 17080.
Verð árg.: 200,00 kr., í lausasölu kr. 20.00.
Gerð myndamóta: Prentmót h.f.
Prentverk: Prentsmiðjan Edda h.f.
2 SAMVINNAN