Samvinnan - 01.03.1966, Blaðsíða 18
Haustlaufin falla
Fallandi lauf og fölgrár himinn,
flogin er heiðló um sœ.
Hrímperlur kaldar daggir dala,
drifhvítum skarta tindar snæ.
Septemberdagur dvelur í landi
dimmur og kaldur í sveit og bœ.
Nú eru sumarsins söngvar allir
sungnir að fullu bróðir kœr.
Nú sigla ekki lengur sólfleyin okkar
á svifléttum skýjum nœr og fjœr.
Því vetrarkvíðinn um veröld situr,
hann vakir og bíður unz marki nœr.
Nú vefja skuggarnir vœngina svörtu
um víðáttur hvolfsins og byrgja sýn,
og margir peir, sem lögðu frá landi,
peir liggja í vari unz myrkrið dvín,
en aðrir villast á vegleysum hafsins
og vita ekki leiðina heim til sín.
Cg svo kemur vetur, er valkesti hleður
úr vonum, er sumarið ól,
en vœngfarar smáir, sem villast í stormi.
peir vita pó oftast um skjól.
Og bíðum rólegir, bróðir, að lokum
mun birta að nýju frá sól.
Ingólfur Jónsson
frá Prestbakka.
Alþýðusambandið
Framh. af bls. 8.
framleiðslu og útvegun lífs-
nauðsynja, þar sem aftur á
móti í flestum löndum öðr-
um, þessum tveim greinum
lífsbaráttunnar er skipt á milli
tvenns konar félaga, annars
vegar bændurnir sem fram-
leiðendur og hins vegar sem
neytendur. Þessi alíslenzka
tegund kaupfélaga hefur
reynzt vel og ekki staðið í
vegi þess, að verkamannastétt
bæja og þorpa yndi hag sín-
um í kaupfélögum með bænd-
unum. Vitanlega verður ekki
hjá því komizt, að vandamál
beri að höndum í sambandi við
kaupgjaldsmál o. fl., þar sem
félag verkamanna og kaup-
félag eigast við. En verkamenn
vita að kaupfélög eru ekki
stofnuð og rekin til þess að
græða á öðrum og þeir sem
kaupfélögum stjórna vita, að
verkamenn hljóta að standa
vörð um hagsmuni sína og eru
verðugir réttiætis í launamál-
um. f fjölmcrg skipti og á
mörgum stöðum hafa kaup-
félögin verið hjálparhella
fólksins, þegar að hefur þrengt
um atvinnu og lífsbjörg, og þá
jafnvel tekið á sig þyngri byrði
en hollt hefur verið og heppi-
legt fyrir rekstur þeirra, því
þau hafa svo sannarlega ekki
úr neinum sjóðum að ausa.
En þetta hefur ekki valdið á-
greiningi milli bænda og
verkamanna. Þessar þýðingar-
miklu stéttir þjóðfélagsins
hafa mætzt í kaupfélögunum
og í sameiningu notað yfir-
burði samvinnuhreyfingarinn-
ar sér til gagns og nytsemd-
ar.
í mesta þéttbýli landsins,
þar sem kaupfélög eru einung-
is neytendafélög, hafa þau
einnig haft þýðingarmikil
áhrif til gagns fyrir fólkið. Þó
er í tilefni þessa merka afmæl-
is Alþýðusambandsins rétt að
benda á, að .þar eiga hinar
fjölmennu stéttir innan vé-
banda þess mikil tækifæri ó-
notuð í eflingu kaupfélaganna,
svo þau megi verða þeim til
enn meiri nytsemdar við hlið-
ina á hinni annarri baráttu
fyrir bættum lífskjörum og
réttlæti í mannlegum viðskipt-
um.
Rit samvinnufélaganna,
Samvinnan, sem komið hefur
út samfellt í 60 ár og verið til
varnar og sóknar fyrir sam-
vinnuhreyfinguna í landinu og
þar að auki látið sig fjölmörg
mál varða á breiðari grund-
velli sem stjórnendur ritsins
hafa á hverjum tíma talið
þjóðinni til heilla og borgur-
unum viðkomandi, samfagnar
Alþýðusambandi fslands með
hálfrar aldar afmælið og óskar
því gæfuríks gengis á komandi
árum. Páll H. Jónsson,
18 SAMVINNAN