Samvinnan - 01.03.1966, Side 21
SAMVINNUMENN
THORSTEN 0 D H E
Fæddur 24. apríl 1892
Gestkoma þykir ekki lengur miklum tíðind-
um sæta í sveitum landsins. Oðru máli var að
gegna á fyrstu áratugum aldarinnar, á meðan
fáferðugra var. Þá þóttu tíðindi, er gesti bar
að garði. Hitt var óráðnara, hversu gestir urðu
mönnum minnisstæðir, þegar frá leið.
Sumarið 1936 ferðaðist um mikinn hluta
landsins sænskur samvinnuleiðtogi, Thorsten
Tdhe og kom víða við. Fylgdarmaður hans og
túlkur, ef á þurfti að halda, var Guðlaugur
Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri. Thorsten Odhe
var einn þeirra gesta, er ógjama gleymdust,
þótt kvatt hefði. Kom þar til óvenjulegur
persónuleiki, ljúfmannleg framkoma, gáfulegt,
vökidt og leitandi gestsauga og erindi það, er
hinn framandi ferðamaður átti við landsmenn.
Hann var þá ritstjóri við sænska samvinnu-
blaðið Kooperatören og var til Islands kominn til þess að
safna efni í bók, sem koma skyldi út í Svíþjóð um sam-
vinnuhreyfinguna á íslandi. Efnis safnaði hann með því móti,
að skoða mikinn hluta landsins, heimsækja samvinnufyrir-
tæki og tala við fjölda fólks, jafnt leiðtoga sem óbreytta liðs-
menn, auk þess sem hann aflaði sér skriflegra, sögulegra heim-
ilda. Árangurinn varð bók sem hann skrifaði og út kom í
Stokkhólmi 1937 og bar nafnið Det modema Island, og í ís-
lenzkri þýðingu Jóns í Yztafelli 1939, Samvinnan á íslandi.
Bók Thorsten Odhes vakti mikla athygli, bæði hér á landi
og erlendis og er það bezta sem skrifað hefur verið um sam-
vinnuhreyfinguna á Islandi fyrir erlenda lesendur. Síðar kom
bókin út á ensku í Bandaríkjunum, aukin og yfirfarin af höf-
undinum.
Eftir ferð sína til Islands 1936 var Thorsten Odhe bundinn
landi og þjóð sterkum vináttuböndum. Hann eignaðist hér
fjölda vina og vináttu sína við þjóðina hélt hann áfram að rækja,
með því að sitja sig ekki úr færi ef gafst, til þess að taka tali
jjá Islendinga, er til Stokkhólms komu og áttu erindi við sam-
vinnuhreyfinguna þar, og miðla þeim af örlæti hjarta síns.
Thorsten Odhe andaðist 12. desember 1965. Hann fæddist
24. apríl 1892. Eftir stúdentspróf stundaði hann nám við há-
skólann í Gautaborg og lagði einkum stund á hagfræði. Mjög
snemma varð hann þekktur fyrir greinar sínar í dagblöðum
og hagfræðitímaritum, en árið 1924 gerðist hann fastur starfs-
Dáinn 12. desember 1965
rnaður hjá sænska Samvinnusambandinu, KF.
Ritstjóri Kooperatören var hann frá 1932 til
1948, forstjóri Alþjóðasambands samvinnu-
manna 1948 til 1951, fulltrúi jæss hjá Samein-
uðu þjóðunum 1947 til 1951 og sérfræðingur
í hagfræði við evrópískt sendiráð Bandaríkj-
anna í París 1952 til 1953.
Ævistarf Thorsten Odhes má með sanni
segja að væri tengt samvinnuhreyfingunni.
Hann var með afb igðum afkastamikill rit-
höfundur, skrifaði n. 1. 30 bækur um sam-
vinnuhreyfingu ýmsra landa og um hagfræði.
Þekking hans í þeim fræðum var næstum
ótæmandi og starfsþrek hans og iðjusemi með
afbrigðum. Hann var allra manna vinsælastur
og hvers manns hugljúfi. Hann bjó yfir djúp-
stæðri þekkingu á bókmenntum og skáldskap
og fékkst sjálfur við að þýða erlend ljóð á sænsku, en birti þau
hins vegar ekki.
Þegar ég hitti Thorsten Odhe og átti við hann löng sam-
töl 1962, var hann mjög farinn að heilsu, átti erfitt með gang og
sjónin orðin mjög döpur. Þrátt fyrir jiað mætti hann á skrif-
stofu sinni hvem dag og vann eins og víkingur. Lét einn af
vinum hans svo um mælt, að ef hann þá hætti störfum fyrir KF,
mundi þurfa ])rjá venjulep;a menn til þess að afkasta því sem
hann gerði. Var þar einkum um að ræða skýrslugerðir og up|)-
lýsingar til hins opinbera og svo til erlendra aðila, á vegum
KF. Honum var mjög hugleikið að tala um ísland, vissi glögg
deili á mönnum og málefnum og átti sér heita þrá að heimsækja
á ný land og þjóð.
Thorsten Odhe er ógleymanlegur öllum sem kynntust hon-
um. íslenzkir samvinnumenn hafa ástæðu til að minnast hans
með jjakklæti og virðingu.
Thorsten Odhe var raunsær hugsjónamaður. Hann gerði se'r
og öðrum glögga grein fyrir skuggaliliðum mannlegra við-
skipta og án jiess að vera svartsýnn, og sá í samvinnuhreyf-
ingunni möguleika til úrlausnar margra vandamála í sambúð
jjjóðaima og sambúð stétta og borgara innan hvers þjóðfélags.
Hann lýsti up]) myrkur vandamálanna með kastljósi samvinnu-
hugsjónarinnar.
Á bókmerki Odhes, standa þessi orð: „Ég tel aðeins sólskins-
stundir þínar.“ P. H. J.
Atómfjöll
Framh. af tals. 3.
á grundvelli jafnréttis og' bræðralags, stendur í miðjum dal á
milli atomfjalla hinna blokkanna og hefur sannað svo ekki
verður um deilt að það er hægt að framkvæma réttlæti í
samskiptum frjálsra manna, ef þeir hafa þroska til jafnréttis
og bræðralags.
Engin mannanna verk eru fullkomin. Þeim sem stjórna
samvinnufélögum getur mistekizt. En grundvallarreglur þær,
sem samvinnufélögin byggja starfsemi sína á eiga að baki
sér meira en hundrað ára reynslu. Á þeim tíma hafa þær
ekki breytzt svo teljandi sé, svo þrauthugsaðar, réttlátar og
viturlegar eru þær. Ef breiðfylking menntaðara og hugsandi
ungra manna og kvenna, sem sjá og skilja hvernig heims-
málunum er komið, byggja á þeim nýja siðabótahreyfingu,
endurbæta þær, ef þeir geta og færa þær út til æ fleiri
sviða, er það ein af sárafáum vonum mannkynsins um
réttlæti, frið og frelsi. Páll H. Jónsson.
SAMVINNAN 21