Samvinnan - 01.10.1982, Qupperneq 8
^Samvinnan
heimsækir
Kaupfélag Hafnfirðinga
Aðilar innan samvinnuhreyfingar-
innar bundust samtökum og
hjálpuðu okkur að reisa þetta stóra
hús...
Þokast jafnt og þétt í rétta átt
Flestum sem ég ráðfærði mig við
leist lteldur illa á þetta nýja starf
sem ég var beðinn um að takast
á hendur. Og ég vissi vel, að það yrði
erfitt. Samt langaði mig til að spreyta
mig á því. Og ég sé ekki eftir að hafa
látið tilleiðast. Starfið hefur þegar borið
meiri árangur en ég þorði að vona í
upphafi, og jafnt og þétt hefur tekist að
þoka málum Kaupfélags Hafnfirðinga í
rétta átt. . .
Þannig fórust Erni Ingólfssyni
kaupfélagsstjóra orð, þegar Samvinnan
heimsótti hann á skrifstofu hans að
Strandgðtu 28 og spjallaði við hann
stundarkorn. Það var á októberdegi,
þegar vetur var enn ekki genginn í garð
og haustið skartaði fögru litskrúði í
Hafnarfirði.
Kaupfélag Hafnfirðinga hefur átt vel-
gengni að fagna undanfarin ár, en áður
en vikið var að málefnum þess, var Örn
beðinn um að segja svolítið frá sjálfum
sér:
• Verslunarstjóri hjá KRON
Eg er fæddur í Reykjavík hinn 30.
ágúst árið 1940. Foreldrar mínir eru
Ingólfur Guðmundsson bakarameistari
og Þórey Sigurðardóttir. Eg lauk prófi
frá Samvinnuskólanum að Bifröst 1959
og hóf síðan starf hjá KRON, en
kaupfélagsstjóri þess var þá Kjartan
heitinn Sæmundsson. Eg var fyrst versl-
unarstjóri í matvörubúð KRON við
Dunhaga, en sumarið 1960 brá ég mér
til Kaupmannahafnar og var þar við
nám og starf hjá dönskum samvinnu-
mönnum. Frá hausti 1961 sá ég um
matvöruverslun KRON við Skólavörðu-
stíg, en tók við stjórn verslunarinnar Liv-
erpool í nóvember 1963. Við opnun
vöruhússins DOMUS við Laugaveg í des-
ember 1970 varð ég verslunarstjóri þar
og gegndi því starfi þar til ég tók við
kaupfélagsstjórastarfinu hér í apríl
1978. Kona mín er Gerður Baldursdótt-
ir og við eigum fjögur börn.
Hve gamalt er Kaupfélag Hafnfirðinga?
Það er farið að nálgasl fertugsaldur-
inn. Það var stofnað 11. október 1945
og var áður deild í KRON. Fyrstu
stjórnina skipuðu Ólafur Þ. Kristjánsson
formaður, Óskar Jónsson, Guðjón
Gunnarsson, Þórður Þórðarson og
Guðjón Guðjónsson. Fyrsti kaupfélags-
stjóri var Guðmundur Sveinsson, en
hann lést árið 1947. Þá tók við kaupfé-
lagsstjórninni Ragnar Pétursson, sem
gegndi því starfi síðan samfleytt í tæpa
þrjá áratugi við góðan orðstír. Ragnar
lét af störfum 31. mars 1976, og síðan
gegndi Bogi Þórðarson kaupfélags-
stjórastarfmu skamman tíma, þar til ég
tók við því.
Núverandi stjórn kaupfélagsins skipa
Hörður Zóphaníasson formaður, Hörð-
ur Vilhjálmsson, Yngvi Rafn Baldvins-
son, Kristinn Guðnason og Sigurður
Sigurjónsson.
• Verslunarmiðstöð í Miðvangi
Þegar árið 1978 var hafist handa um
byggingu nýs 1400 fermetra verslunar-
húss í Miðvangi, á lóð sem kaupfélagið
átti. Þetta var fjárfrekt verkefni, og okk-
ur hefði ekki tekist að leysa það, ef sam-
vinnuhreyfingin hefði ekki stutt okkur
dyggilega. Húseignin var byggð í sam-
einingu af Kaupfélagi Hafnfirðinga,
Sambandinu, Samvinnutryggingum,
Olíufélaginu og Regin. Þessir aðilar
bundust samtökum og stofnuðu Mið-
vang sf. til þess að byggja þetta myndar-
lega hús. Verslunina sem slíka rekur
hins vegar Kaupfélag Hafnfirðinga
eingöngu og greiðir húsaleigu til þessa
félags, Miðvangs sf.
Byggingarsaga Miðvangs er ekki löng.
Hún hefst 1978, þegar undirstöður
eru steyptar; það er byrjað að slá upp
fyrir húsinu í júní 1979 — og verslunin
er síðan opnuð 31. júlí 1980. Það tók
því ekki nema rúmt ár að byggja húsið
og koma stórmarkaðnum á laggirnar,
sent telst ekki langur tími á íslenskan
mælikvarða.
Eg fór utan til Svíþjóðar og Danmerk-
ur ásamt ntönnum frá Teiknistofu og
Skipulagsdeild Sambandsins. Við skoð-
uðum þar sambærilegar verslanir með
Aðalsetur Kaupfélags Hafnfirðinga er að Strandgötu 28.
8