Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 14

Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 14
^Samvinnan kynnir Sjálfsævisögu Jakobs Hálfdanarsonar Almenningur var þungaður þessu fóstri Fyrstu tildrög til Kaupfélags Þing- eyinga hafa margar rætur framan frá að rekja, bæði að því er snert- ir aðstöðu mína til þess og svo hin al- mennu atvik og skilyrði. Hvað mig snertir hafði ég við og við allt frá því að ég fór að teljast með bændum í Mý- vatnssveit, þótt í smá stíl ntætti kallast bóndi, verið kvaddur til, ýmist einn eða með öðrum, að gangast fyrir fram- kvæmdum í verslunarefnum, þegar um einhvern félagsskap eða samtök var að ræða um það. Ég var af þeint vana orð- inn í allt að 20 ár skyldur að taka eftir öllum þeint táknum tímanna, er bend- ing gáfu í hagfelldari stefnu. Eins og kunnugt er komust sam- göngur milli landa í reglubundnara fornt með gufuskipaferðunum eftir 1874 en áður þekktist meðan engu, lif- andi né dauðu, var hægt að koma milli landa nema upp á kaupmanna náð, á seglskipum þeirra. Með gufuskipaferð- unum opnaðist svo greinilega vegurinn, sem áður hafði verið gjörsamlega lokað- ur — vegur til að fá heim nauðsynjar sínar á annan hátt en úr búðum kaup- manna. Á þessum árum fóru einstöku fróðir menn að skjóta í blöðin brotum úr verðlistum erlendis. Minnist ég, að sr. Arnljótur Ólafsson setti einn slíkan lista um þær mundir í „Norðling". Þar hjá varð einnig kunnugt, að innanlands var líka mun betra verðlag annars staðar en hér, einkum í Reykjavík. Það varð einn vetur að venju að halda samkomur á hverju sunnudagskvöldi að Haganesi við Mývatn; gjörðu menn ým- ist að skemmta sér. segja til unglingum eða tala saman um alvarleg ntál. Þá var til í sveit þeirri einhleypra manna versl- unarfélag, er mun hafa haft einkum að markmiði að koma vöru sinni í peninga. Ætla ég, að út úr umræðu um þennan félagsskap vekti ég fyrst á einum þess- um Haganesfundi máls á, að rétt væri að reyna að panta, annað hvort frá Eng- landi eða Kaupmannahöfn, dálítið af nauðsynjum og senda verð fyrir. Þetta var skjótt samþykkt, og þó varð eigi af í fyrstu, að pantað væri nema frá Reykjavík iijá kaupmanni H. Th. A. Thomsen, því alþingismaður Jón Sig- urðsson hafði af nijög mikið betra verði að segja hjá honum. Þessi fyrsta pöntun mun hafa fram farið árið 1878, en mjög lítið, og Jón alþm. Sigurðsson komið mér á framfæri við kaupmann Thomsen. Því fyrir aðal- reikningnum mun ég hafa verið skrifað- ur, svo ég þurfti að svara til viðskipt- anna við Thomsen. Var það og auðveldara fyrir það, að ég sömu árin hafði með höndum vegabólastörf á austurfjöllum, og þar fyrir ráð á pen- ingum úr Landsjóði. Fóru því saman reikningar til sveitamanna, vegabóta- vinna og vörur hinar pöntuðu, og reikningshald þella hafði ég með hjálp Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum. • Skrifað eftir vörum til útlanda Til útlanda mun ég fyrst hafa skrifað eftir vörum 1880, - að tilvísan hr. Jóns A. Hjaltalíns á Möðruvöllum, er benti mér á norskan kaupmann í Leith, O. Fischer að nafni. Fékk ég frá honum mjög ódýrar og þóknanlegar vefnaðar- vörur og leirtau það ár og árið eftir, en þá varð hann gjaldþrota og niissti ég hjá honum nál. kr. 150,00, því ekki reyndi ég enn að tryggja mér nokkra ábyrgð hjá þeint, sem ég pantaði vörurnar fyrir. Jafnframt þessum viðskiptum hafði ég einnig nokkur stórkaup hjá L.G. Pred- björn, bornhólmska, þessi sömu ár, — reikningana við hann munu flestir fé- lagsmenn hafa haft sjálfír, þó ég væri milliliður í samningum við hann. Samhliða sauðasölunni til Gránufé- lagsins fór þessi pöntunarverzlun Mý- vetninga fram árin 1879-1880. Um sama tíma fékkst Sigfús Magnússon í Múla dálítið við að panta frá Kaupmannahöfn, smávarning fyrir sig og sína kunningja fáeina, og fékk það fólk. sem þessa naut, þegar að reyna, að ólíku lægra verð fékkst á flestu þessu en hjá kaupmönnum. Svo fór og, að mönnum þótti ekki hverfandi frá þessu aftur, og óánægja með verslun kaup- manna fór að aukast, og engu síður við Gránufélagið, þegar hér var komið. Eink- um olli það óánægju við sauðasöluna, að menn fengu ekki nema sumt af verðinu í peningum, en voru neyddir til 14

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.