Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 26

Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 26
Sigurður Gunnarsson segir frá alþýðuskáldinu Guðmundi Guðmundssyni yngra, Nýjabæ, Kelduhverfi Einn því skrefar auðnuleið annar refilstigu... Vorþrá Kreppt er land í klakaböndum, kólnað fjör og þróttur frýs. Sæli er nú í syðri löndum sólin blessuð hærra rís. Veklu líf með vængjum þöndum, vorgyðja, þú góða dís. Nóg er veitt af sviða og svala, sollnum undum, þungum kross, sjónhverfingum, kvíða, kala, koma í drauma svikin linoss. Allt af vondum vetrardvala vek þú, sól, með hlýjum koss. Leiddu að eyrum hörpuhljóminn, hundrað radda ástamál. Ljúfa fugla unaðsóminn aldrei láttu verða tál. Leystu, ó, leystu dauðadóminn, er dæmdi vetur minni sál. Um er liðið hret og hríðar, heiftarnorna brotin völd. Vordísir sér vagga fríðar á vængjum sólargeisla í kvöld, boða komu belri tíðar, böndin leysa vetrarköld. Guðmundur Guðmundsson yngri í Nýjabæ í Kelduhverfi er fædd- ur í Nýjabæ 12. maí 1879. For- eldrar hans voru Guðmundur Guð- undsson bóndi þar, Sveinssonar á Hall- bjarnarstöðum á Tjörnesi og kona hans, Guðrún Einarsdóttir bónda á Banga- stöðum í Kelduht erfi, jóhannessonar. Guðmundur ólst upp í Nýjabæ hjá foreldrum sínum og varð fljótt liðlækur við öll bústörf, sem vinna þurfti á heimil- inu. Skólaskylda var þá engin og nutu börn því mjög lítillar fræðslu á þeini árum, — heimiliskennslu ef til vill nokkr- ar vikur á uppvaxtarárunum, þegar best horfði. Guðmundur í Nýjabæ var þar engin undantekning. Hann naut sem barn aðeins nokkurra \ikna kennslu. • Settur til mennta Snemma bar á því að drengurinn væri einkar athugull og gáfaður. Kont það fram í mörgu, en þó ekki síst því, að hann tók fijótt að kasta frant vel gerðum stökum, sem vöktu athygli. Þetta varð til þess, að ýmsir höfðu orð á því við for- eldrana, að drengurinn þyrfti að fá að fara í skóla. Og þótt efni væru lítil, eins og algengast var meðal bænda á þessum tímum, var þetta ákveðið. Sautján ára gamall var hann sendur í Möðruvalla- skóla, sem þá var eini norðlenski skól- inn, og hafði þegar getið sér gott orð. Þar var Guðnntndur síðan nemandi í tvo vetur, útskrifaðist þaðan vorið 1898. Enginn vafi er á því, að nántsdvölin á Möðruvöllum hafði mikil og góð áhrif á Guðmund og þroskaði hæfileika hans. Atti það ekki síst við um skáldskapar- gáfu hans, sem tók þar örum framtör- um og varð nú brátt víða kunn. Vel má minnast í þessu sambandi, að nemendur frá Möðruvöllum, — Möðruvellingar, — eins og þeir voru gjarnan nefndir, urðu flestir oddamenn og merkisberar í heimabyggðum sínum. Svo sterk og örvandi áhrif hafði þessi norðlenski skóli á nemendur sína. Guðmundur í Nýjabæ var þar engin undantekning. Þegar Guðmundur hafði lokið námi, varð hann kennari næsta áratug í Keldu- hverfi, Öxarfirði, Presthólahreppi og einn vetur í Grenivík í Höfðahverfi, en heimili átti liann alltaf í Nýjabæ og var þar á sumrum við bústörf. Hann var oft- ar en einu sinni heimiliskennari hjá foreldrum mínum og voru eldri systkini mín nemendur hans. Hann var ein- lægur heimilisvinur foreldra minna og okkar allra, meðan hans naut við, og á ég urn hann margar heillandi minning- ar. • í hópi góðskálda Árið 1906 kvæntist Guðmundur heit- konu sinni, Guðbjörgu Ingimundardótt- ur, lneppstjóra á Brekku í Núpasveit, Rafnssonar og konu hans, Hólmfríðar Jónsdóttur. Hún var dugmikil mann- kostakona. Þau reistu bú í Nýjabæ og bjuggu þar síðan samfelll í 27 ár, eða til 1933, en það ár andaðist Guðmundur 26

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.