Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 35

Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 35
Frá afhendingu íþróttastyrks Sam- bandsins fyrir árið 1983. Sambandið styður íþróttahreyfinguna Samvinnufélögin hafa ætíð leitast við að efla fjölþætt menningarlíf í landinu. Einn þáttur þess hefur verið að styðja félög og samtök íþróttamanna. Fyrir tæpum þrem árum var sá liáttur tekinn upp af Sambandinu að veita einu af sérsamböndum ISI, eða öðrum iandssamböndum er starfa að íþróttamálum, verulega fjárhæð árlega. Fyrsti handhafi íþróttastyrks Sambandsins var Körfu- knattleikssamband Islands. í júlí s.l. var auglýst eftir umsóknum um íþróttastyrk- inn á árinu 1983 og bárust 11 umsóknir. Iþróttastyrk- urinn fyrir árið 1983 verður kr. 225.000 og hefur verið ákveðið að skipta honum að þessu sinni milli tveggja íþróttasambanda. Iþróttastyrk Sambandsins 1983 hljóta: • Handknattleikssamband íslands kr. 150.000,00 • Frjálsíþróttasamband Islands kr. 75.000,00 Samband ísl. samvinnufélaga væntir þess að íþrótta- styrkurinn komi íþróttasamböndunum að góðum not um í hinu mikla og fjárfreka menningarstarfi þeirra. ♦ og alþýða hefur lítinn áhuga sýnt í því að gjöra vöruna með betri verkun meira virði. 5. Að verzlunin hafi síðustu árin eigi verið svo arðsöm verzlunarstjettinni, sem alþýða álítur, og að álitið um „ok- urverð og verzlunaráþján" sje meira hugarburður en sannleiki. 6. Að í stað þess að skilvísi og skoðun alþýðu, ætti að taka framförum, þá hef- ir þessu talsvert hnignað á næstliðnu 15 ára tímabili. 7. Að það litla af verzlaninni, sem ver- ið hefir í höndum landsmanna hverfur frá þeim í hendur fárra útlendra manna, í hið minnsta um tíma, ef ekki er siglt fyrir þau skerin er áður hafa reynzt hættuleg, og brunnurinn ekki byrgður, áður en barnið er dottið ofan í. Tr. Gunnarsson — o — Hér gefur að líta mat Tryggva Gunn- arssonar á Gránufélagi og þess líkum, kaupfélögununt fyrstu ár þeirra og ís- lenzku verzlunarsiðgæði þessara ára. Myndin er ekki glæsileg, en tímarnir voru líka svo sannarlega alvarlegir, og var Tryggvi öldungis ekki einn um böl- sýn viðhorf. ♦ 1) Húnröður Másson var pennanaf’n eða dul- nefni Bjarnar M. Olsen stúdents 1872, þegar hann gaf út Sendibréf til Húnvetninga og Skag- firðinga. 2) Þessum félögum stjórnuðu helzt Daníel Thorladus verzlunarmaður í Stykkishólmi og Hafliði Eyjólfsson bóndi í Svefneyjum. 3) Vrið Veltuna er Veltusund í Reykjavík kennt. 4) Aðallega hefur Tryggvi hér í huga nokkra fyrrum liðsodda Gránufélags á Austurlandi, en hugsanlega einnig einhverja við E)jafjörð. 5) Hér á Tryggvi ugglaust við Kaupfélag Þingeyinga. 6) Fyrir þessuni samtökum beitti sér eink- um Eggert Gunnarsson, bróðir 'Eryggva. 7) Átt er við ámæli sem Tryggvi hafði sætt í blöðum og á fundum fyrir skuldir við F. Holme stórkaupmann í Kaupmannahöfn, en um 1880 hafði hann allar eigur Gránufélags að þinglýstu veði og réði félaginu sem hans eigin eign væri. 8) Átakanlegasta dæniið um þennan gang mála voru ókunn örlög Eggerts Gunnars- sonar, sem enginn veit hvað um varð, en hann hvarf einmitt um þessar mundir á Eng- landi. 35

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.