Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 44

Samvinnan - 01.10.1982, Blaðsíða 44
t Hafþór Helgason kaupfélagsstjóri Hafþór Helgason kaupfélagsstjóri fórst af slysförum með einkaflugvél sinni, TF-MAO, út af Bjargtöngum að morgni þriðjudags 26. október s.l. MeS Hafþóri er góSur drengur genginn, langt um aldur fram — aðeins 37 ára gamall — vinur og samherji, sem ég vildi minnast nokkrum orSum. Hafþór var fæddur í Reykjavík þann 12. janúar árið 1945 og var næstyngstur sjö systkina. Foreldrar hans voru þau Helgi J. HafliSason bifvélavirki, sem látinn er fyrir allmörgum árum, og eftirlifandi kona hans Sigurbjörg Jónsdóttir, Halldórssonar, bónda að Framnesi í Rangárvallasýslu. Hafþór lauk gagnfræðaprófi frá verknámsdeild í Reykjavík árið 1962, og það sama ár hlaut hann skipstjórnarréttindi til aS fara með stjórn á allt að 30 tonna fiskibátum. Þremur árum seinna, eða árið 1965, lauk hann einkaflugmannsprófi í Reykja- vík, en atvinnuflugmannsprófi með blindflugsréttindum árið 1976. Átti flugið ávallt hug hans meir en hálfan, og skilaði það hon- um að síðustu á drottins fund. Árið 1963 steig Hafþór mikið gæfuspor og trúlofaðist þá eftir- lifandi eiginkonu sinni og jafnaldra, Guðnýju Kristjánsdóttur, en þau giftust 1968 og eignuðust þau þrjá syni, Alexander, 16 ára, fæddan á afmælisdag móður sinnar, 7. mars 1966, Erling Friðrik, 9 ára, fæddan 8. október 1973 og Véstein, fæddan í Reykjavík þann 26. maí 1980. Sjá þau nú öll á bak elskuðum eiginmanni og föður — stórvirkum ágætismanni, sem vænst var að ætti eftir aS leggja áfram gjörva hönd á svo margt sem til framfara horfði. Hafþór dvaldist við nám og störf í bifvélavirkjun í Þýskalandi árið 1967, en á vettvangi véla- og vélfræðslu stóS hugur hans löngum opinn. Árið 1969 starfaði Hafþór að gæðamati á rann- sóknarstofu Isals hf. og síðar við eignaumsýslu hjá Þórisósi hf. á árunum 1970—73, en á árinu 1973 tók hann við framkvæmda- stjórn í flugfélaginu Vængir hf. og rak þaS af mikilli ósérplægni og dugnaði til ársins 1976, þegar eigendaskipti urðu þar og hann seldi eignarhluta sinn í félaginu. ÞaS var laust eftir þessi tímamót, sem leiðir okkar Hafþórs lágu fyrst saman, því að árið 1977 var hann ráðinn kaupfélags- stjóri að Kaupfélagi Saurbæinga að Skriðulándi. Því starfi gegndi hann til miðs árs 1980. Á árunum þeim, eins og raunar enn, steðjaði mikill vandi að dreifbýlisversluninni og vandséð með hvaða hætti smærri rekst- urseiningar gætu séð sér farborða, þar sem eftirtekjan stóð ekki undir dreifingarkostnaðinum. ViS þær aðstæður ráðlagði ég ýms- um góSum forystumönnum smærri kaupfélaganna að skoða möguleikana á að efna til samstarfs við stærri nábúa, því að undan afleiðingunum yrði vart vikist með öðrum hætti. En hér réði sem áður sterkur vilji til sjálfræðis, og fengu bændur hinn 32 ára gamla Reykvíking til kaupfélagsstjórastarfs — og hófst hann þegar handa. Gamalt íslenskt orðtak segir að „veldur hver á heldur" og sú varð raunin á í þessu tilviki. Með atorku sinni, útsjónarsemi og ráðdeild grundvallaði Hafþór enn betur en áður þau félags- og verslunarlegu tengsl sem kaupfélagiS átti í héraði. Fyrr en varði voru þeir Saurbæingar búnir að endurbæta verslunarreksturinn og jafnframt byggja nýtt sláturhús; en um þá framkvæmd höfSu menn ekki þoraS að hugsa sem mögulegan valkost nokkrum mánuSum fyrr. ÞaS sem olli straumhvörfunum í Saurbæ var sleitulaus vinnu- semi kaupfélagsstjórans að hagsmunamálum félagsmanna sem allir urðu vitni að í hinni fámennu byggð. ViS þá atorku leysist úr læSingi vilji margra til að verða að gagni og með vinnufram- lagi margra sveitunganna reis sláturhúsið, sem um mörg ókomin ár kemur til með aS bera bændum þar, og dugmiklum kaupfé- lagsstjóra þessara ára, órækt vitni I Sambandinu var fylgst með þessum þróttmikla nýliða í sam- vinnustarfinu, og enn betur eftir að hann fór að sækja ráðstefnur samvinnumanna, taka þar þátt í umræðum og leggja gagnlegt til mála. Því var það, þegar ísfirðinga vantaði kaupfélagsstjóra snemma árs 1980 og ég var beðinn um að aðstoða við þá ráðningu, að Hafþór varð mér strax ofarlega í sinni. Ég vissi reyndar að bæði hann og fjölskyldan kunnu vel við sig vestur í Dölum og að þar var margt enn ógert, en á ísafirði biðu samt miklu stærri verkefni úrlausnar, sem ekki var allra að leysa. Á Isafirði hefur Hafþór unnið hvert þrekvirkið af öðru, og nú röskum tveim árum síðar er hagur kaupfélagsins og álit með allt öðrum hætti en um fjöldamörg undangengin ár. I rauninni finnst mér að gamla álitið á kaupfélaginu okkar, sem ég man eftir síðan ég var lítill drengur á Isafirði, sé nú fyrst endurvakið og að mikill þróttur sé að færast í alla starfsemina. Á sínum skamma starfstíma á ísafirði megnaði Hafþór að jafna langvinnan lóðaágreining við bæjaryfirvöld, endurskipu- leggja að verulegu leyti verslunarrekstur og mannahald kaupfé- agsins, leggja fram áætlun um byggingu sláturhúss á Isafirði, kaupa Steiniðjuna hf. á IsafirSi, sem er viðamikið fyrirtæki á sviði steinsteypu - og byggingarvörusölu. Og loks tæpum mánuði fyrir sviplegt fráfall hans undirskrifaði hann samning um kaup kaupfélagsins á vörumarkaðinum Ljóninu, sem er önn- ur stærsta smásöluverslunin í kaupstaðnum. Ef honum hefSi enst líf og hcilsa er ekki aS efa að stórvirkni hans hefði gætt víðar í atvinnusögu Isfirðinga, bæði félagi og byggð til heilla. Auk starfa sinna á Isafirði vann hann með Sambandinu við kaup á Fiskiðjunni Freyju hf. og útgerðarfélaginu Hlaðsvík hf. á Suðureyri. Sat hann fyrir hönd Sambandsins í stjórnum beggja félaganna, þar af fyrstu mánuðina sem stjórnarformaður þeirra. Lagði hann sig í framkróka við að sinna þeim störfum af sömu alúð og ábyrgð og öllum öðrum störfum, en eins og mörgum mun kunnugt gerðist kaupfélagið einnig samkaupandi að félög- unum að fjórða hluta og átti fulltrúa úr Suðureyrardeild sinni í stjórnum beggja félaganna. ÞaS var aðalsmcrki þessa kæra látna vinar míns að hann sinnti öllum störfum sem til féllu í kaupfélaginu, hvort heldur þau voru talin til óþrifalegri verkanna eða skrifstofustarfans. Því gátu samstarfsmenn hans eins átt von á honum við kjöttilfærslu í frystiklefa eldsnemma að morgni í sláturtíðinni, við dæluvið- gerðir í kyndiklefanum eða við akstur á steypubílnum. Eins og foringja er siður fór hann fyrir liði sínu í öllum störfum, og það kunnu samverkamenn hans að meta. Mér er minnisstætt lítið atvik fyrir allmörgum mánuðum, þeg- ar kaup á Steiniðjunni voru afstaðin og starfsfólkið var að halda hátíð í tilefni þess aS sláturtíð var nýlokið. Þegar Guðný og Haf- þór gengu þá í veislusalinn klöppuðu viðstaddir þeim hjónum til heiðurs. Slíkt sýna Isfirðingar aðeins sínum bestu mönnum. Þótt ég hafi hér tiundað nokkuð af starfsferli Hafþórs og atorku, skal ekki svo við skiljast að Iáta þess ógetið að hann átti góða konu og sonu sem stóðu með honum í öllum hans störfum. Þess þarf og með í annasömu embætti, og það brást ekki að kon- an og elsti sonurinn stóðu eins og eikur og gerðu honum kleift að vinna svo langan dag sem raunin varð á. Á því heimili heyrði ég aldrei möglað þótt seint væri komið heim frá dagsverki, né um rætt þótt árla væri úr rekkju risið. Á heimili þeirra var ávallt gott að koma, svo gott að þá fannst mér ég vera kominn fyrst heim á æskuslóðir, þegar ég hafði gengið að leiði föður míns og siðan til stofu þeirra Guðnýjar og Hafþórs. I þeirri stofu var kæst með góðum á glaðri stundu. En skjótt hefur sól brugðið sumri, og miklu fyrr en ég hafði vonað og beðið. Komið er að leiðarlokum og kvaðst aS sinni. Hafþóri, eiginkonu hans og sonum flyt ég alúðarþakkir Sam- bandsins fyrir stórmikil og heilladrjúg störf hans í þágu sam- vinnuhreyfingarinnar, en sjálfur drúpi ég höfði í minningu góðs vinar. Eftirlifandi eiginkonu og sonunum ungu, sem misst hafa svo mikið, móður hans, systkinum, ættingjum og venslafólki öllu flyt ég dýpstu samúðarkveðjur á þessum sorgartíma og bið þeim öllum Guðs blessunar. Drottinn minn, gefi dánum ró, en hinum líkn er lifa. Kjartan P. Kjartansson 44

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.