Samvinnan - 01.10.1982, Qupperneq 33
Frœðslunefndir í öll kaupfélög
Þátttakendur á fundi félagsmálafulltrúa og fulltrúa fræðslunefnda kaupfélaganna. Fremri röð frá vinstri: Valgeir Vilhjálms-
son, Kaupfélagi Berufjarðar á Djúpavogi, Sigfús Kristjánsson. Kaupfélagi Suðurnesja í Keflavík, Ann Mari Hansen, Kaupfé-
lagi Hafnfirðinga, Skúli Ingvarsson, Kaupfélagi Borgfirðinga, Isólfur Gylfi Pálmason, kennari í Samvinnuskólanum, Magnús
Finnbogason, Kaupfélagi Rangæinga. Aftari röð frá vinstri: Viðar Oddgeirsson, Kaupfélagi Suðurnesja, Eiríkur Pálsson,
Kaupfélagi Hafnfirðinga, Jóhann Björnsson, Kaupfélagi Vestmannaeyja, Asgerður Pálsdóttir, Samvinnufélögunum í Austur-
Húnavatnssýslu, Erla Einarsdóttir, Kaupfélagi Skagfirðinga, Rebekka Þráinsdóttir, Kaupfélagi Reykjavíkur og nágrennis, Jón
Kristjánsson, Kaupfélagi Héraðsbúa, Gylfi Gröndal, ritstjóri Samvinnunnar, Sólveig Ebba Olafsdóttir, Kaupfélagi Skag-
firðinga, Guðbjartur Össurarson, Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga, Guðmundur Guðmundsson, fræðslufulltrúi Sambandsins
og Kjartan Reynisson, Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga. A myndina vantar: Eystein Sigurðsson, ritstjóra Sambandsfrétta, Gunn-
laug P. Kristinsson, Kaupfélagi Eyfirðinga á Akureyri, Pétur Bjarnason, Kaupfélagi Kjalarnesþings og Þóri Pál Guðjónsson,
kennara í Samvinnuskólanum.
og um hugsanleg námskeið fyrir félagsmálafulltrúa og
fulltrúa í fræðslunefndum.
Framsðgumenn á fundinum voru þau Asgerður Páls-
dóttir, Guðmundur Guðmundsson, Gunnlaugur P.
Kristinsson, Jón Kristjánsson og Rebekka Þráinsdóttir.
Undirbúning og skipulag fundarins annaðist Guð-
mundur Guðmundsson fræðslufulltrúi Sambandsins.
Nokkur árangur hefur náðst í fræðsiumálum kaupfé-
laganna undanfarin ár. Sérstakir félagsmálafulltrúar
hafa verið ráðnir hjá nokkrum félögum, og frétta-
bréfum hefur fjöigað stórlega, en góðar upplýsingar
eru undirstaða þess, að félagsmenn geti lekið þátt í
samvinnustarfinu. Sérstakar fræðslunefndir starfa einnig
í sumum kaupfélögum - og á næstunni verður reynt að
koma á fól slíkum nefndum í öllum kaupfélögum lands-
ins. ♦
Hinn 11. október síðastliðinn var haldinn í Reykja-
vík fundur félagsmálafulllrúa og fulltrúa
fræðslunefnda kaupfélaganna. Fundinn sóttu
rúmlega tuttugu manns hvaðanæva af landinu, þar á
nteðal starfandi félagsmálafulltrúar hjá kaupfélögunum,
fulltrúar frá fræðslunefndum allmargra kaupfélaga, og
nokkrir af starfsmönnum Skipulags- og fræðsludeildar
Sambandsins.
Umræðuefni á fundinum voru mörg, en m.a. var
fjallað þar um hlutverk og starf fræðslunefnda, starfs-
lýsingar og starfsreglur fyrir félagsmálafulltrúa og
fræðslunefndir, um fyrifliggjandi fræðsluefni um sam-
vinnumál. og líka var rætt sérstaklega um hlutverk
hinnar nýju stefnuskrár samvinnuhreyfingarinnar í
fræðslustarfínu. Þá var einnig fjallað um sameiginleg
höfuðviðfangsefni í fræðslumálum hjá kaupfélögunum,
33