Neisti - 01.12.1965, Qupperneq 13
Beljaéf: Aætlunin er líf okkar, og lffið bír
eitt og annað 1 skauti sér. Hvað varðar okk-
ur sjálfa, þá höldum við.áfram þjálfun, og
ef okkur verður falið nýtt verkefni, förum við.
Gunnar : Hvað um tengjngu flauga úti f gpþp
geimnum;
lieljaéf: Það vandamál er raunar leyst, bæði
fræðilega og eins tæknilega, en það hefur
ekki verið framkvæmt enn. Slík tenging er
hins vegar næsta verkefni og verður fram-
kvæmd f náinni framtfð. Hún hefur geysi
mikla þýðingu, þá verður hægt að senda ein-
staka hluti, og tengja sfðan saman úti f
geimnum.
Eyv.: Hvaða áhrif hefur hraðaukning flaug-
arinnar f flugtaki á manninn?
Beljaéf: Þegar flauginni er skotið, fer hún
örhægt af stað, við finnum aðeins hreyfingu
og flaugin vaggar. Sfðan eykst hraðinn ört
og sú aukning reynir talsvert á líkamann.
Leonof: Eftir mestu hraðaaukninguna er eins
og maður sé f þægilegri farþegalest, það
vaggar notalega allan tfmann.
Beljaéf: Þegar kúplað er frá tekur þyngdar-
leysið skyndilega við. Og þá getum við far-
ið að njóta útsýnisins, það er mikið og fag-
i#t. Við höfum þjálfað með tilliti til þessa,
við fundum ekki sérlega fyrir hraðaaukning-
unni. Það er öllu verra, þegar geimfarið er
aftur á leið til jarðar og kemur inn f þéttari
loftlög.
Gunnar: Hvernig verkar þyngdarleysið, er
það þægilegt?
Beljaéf: Það atriði er raunar ekki fullrann-
sakað enn. Sumir þola þyngdarleysi mjög vel,
verða léttir f skapi og hressir, öðrum lfður
illa, verða niðurdregnir og þunglyndir.
Leonof: Við höfðum búið okkur mjög vel und-
ir bæði þessi atriði. Við æfingar verður álagið
á líkamann slíkt, að það samsvarar þvf, að
maður, sem er 70 kg, verði 840 kgá þyngd.
Við æfðum ýmis störf þegar hraðaaukningin
var mest, og það gekk vel. Það sannar, að
maðurinn er sjálfbjarga f geimferðum sfnum,
er alltaf herra farartækis sfns og það hefur
auðvitað mikla þýðingu.
Helena: Er fallegt úti f geimnum?
Beljaéf: Ég vil ekki segja að sjálfur himin-
geimurinn sé fallegur, en Jörðin okkar er
fögur utan úr geimnum að sjá.
Eyv.: Mig langar að snúa að öðru. Taka
sovézkir vfsindamenn tillit til geimferða
Ameríkumanna f sfnum áætlunum? Getur
velheppnuð bandarfsk geimferð orðið til þess,
að þið breytið ykkar áætlun, takið t. d. næsta
skref fyrr en ráðgert var?
Beljaéf: Öllum er ljóst, að það erum ekki
við, sem fylgjum Bandarikjamönnum eftir,
þeir feta f fótspor okkar. Flug okkar gerði
þeim tvfmælalaust fært að hraða sinni vel-
heppnuðu ferð. Flug hinna amerfsku starfs-
bræðra okkar var mikið afrek, og það mun
líka koma okkur til góða.
Leonof: já, sérstaklega ef þeir vildu hafa
samband við okkur. - Þeir voru fyrr á ferð-
inni en áætlað var, þeir ætluðu ekki að stfga
út úr geimfarinu á þessu ári, geimfarinn átti
aðeins að stinga út annari hendinni. Þeir höfðu
fram að þessu ekki viljað nota sér reynzlu
okkar, og héldu lengi vel áfram með þessi
geimhopp sfn, sem voru algerlega einskis
virði. Við urðum undrandi nú sfðast yfir, að
þeir skyldu hafa dregið lærdóm af okkar ferð.
Eyv.: Vesturlandapressan lagði á það mikla
áherzlu, að amrfski geimfarinn, White, hefði
notað svokallaðar gaspfstólur til að stýra sér
með. Það var talið mikið vfsindaafrek, að
White hefði getað stýrt sér, en Leonof hefði
flotið stjórnlaust f geimnum. Hvað segið þið
um það.
Beljaéf: Það er ekkert vandamál að stýra
sér. Við höfum líka þessar gaspfstólur, þetta
er mjög einfalt verkfæri. Astæðan til þess,
‘að við notuðum það ekki, var fyrst og fremst-
sú, að okkar ferð var sú fyrsta sinnar tegund-
ar, og annað sem skifti máli.
Leonof: Við höfum notað þessar pfstólur f
sambandi við þjálfun okkar. Okkar tilgangur
var að koma manni út úr farinu, rannsaka
áhrif þyngdarleysis á hann, o. fl.
Beljaéf: Þetta er mjög frumstætt tæki, það
hefur verið þekkt lengi.
Eyv.: Er þá ykkar skoðun, að þetta sé áróð-
ursbragð hjá Amríkumönnum, þeir hafi not-
að tækið fyrst og fremst f pólitfzkum tilgangi?
Beljaéf: Eins og ég sagði áðan, þá er þetta
mjög einfalt tæki. Afrek Amríkumannanna
er fólgið f þvf, að maður steig út, og að
stýra geimskipinu. Notkun pfstólunnar er
hvorki þýðingarmikið né " interessant" .
Leonof: Það var margt líkt með flugi Banda-
ríkjamannanna og okkar ferð. Hins vegar
var margt ólíkt. Okkar geimskip hafði loku-
kerfi, þ. e. sérstakan útgönguklefa, sem ég
notaði til að fara út, en þeir af-hermetiser-
uðu sitt geimfar, opnuðu sjálft geimfarið.
Lokan er mjög flókið tæki og mikið vfsinda-
afrek. f framtfðinni munu menn oft stfga út
úr förum sfnum, ef opna á farið sjálft f hvert
skipti, mun það reynast varasamt fyrir tæki
geimfarsins. Þegar þeir ætluðu að opna farið
f annað skipti, var það ekki hægt.
Beljaéf: Við vorum f 500 km hæð þegar
13