Neisti - 01.12.1965, Qupperneq 23
ALYKTDN
SAM6ANDSSTJ0RNAR
UM ÆSKULYÐSMÁL
fslenzkri æsku er enginn akkur að þvf að við-
halda ríkjandi þjóðfélagsháttum. Hún hlýtur
að vera andstæð þvf þjóðfélagi, sem hefur
það markmíð að græða á löngun hennar til
starfs og leiks. Hún vill þjóðfélag samvinnu
og samstarfs þar sem hver og einn nýtur frum-
réttinda til að nýta þann auð, sem hann hefur
sjálfur skapað.
Vandamál æskunnar eru margvfsleg og flók-
in f gróðaþjóðfélaginu en einfaldari og auð-
leystari fþjóðfe'lagi samhjálpar.
Æskan f dreifbýlinu á við önnur vandamal að
etja en æskan f Reykjavík og þéttbýlinu, Þar
er æskan hvorki f jafn ríkum mæli leiksoppur
þeirra þjóðfélagsafla og einstaklinga, sem
glatað hafa trúnni á sjálfstæða tilveru þjóð-
arinnar, né þeirrar gróðahyggju sem er að
verða eitt höfuðeinkenni okkar tfma. Þar er
hernámssjónvarp enn óþekkt og hernámssið-
gæðis gætir ekki eins.
Þrátt fyrir þetta á æska landsins við mörg
sameiginleg vandamál að strfða. Langur vinnu-
tfmi sviptir æskuna möguleikum á ástundun
heilbrigðrar tómstundastarfsemi. Sfvaxandi
dýrtfð torveldar aðstöðu æskunnar til fram-
haldsnáms innanlands sem utan. Ungu fólki
er gert ókleift að koma þaki yfir höfuðið vegna
okurs húsabraskara og vaxandi dýrtfðar.
Hér er róttækra úrbóta þörf. Æskan þarf að
samstilla krafta sfna til að knýja fram nauð-
synlegar endurbætur. Æskulýðsfylkingin er
reiðubúin til samstarfs við öll þau félagssam-
tök ungs fólks, sem vilja vinna að úrbótum á
raunhæfum grundvelli.
Sambandsstjórn Æskulýðsíylkingarinnar -Sam-
band ungra sósfalista - ályktar á fundi sfnum
f september 1965 :
l að f stað þess að skemmtanaþörf æsku-
lýðsins sé höfð að markaðsvöru verði að skapa
skilyrði til ástundunar heilbrigðrar tómstunda-
starfsemi. Verði félagsheimilin betur nýtt æsk-
unni f vil og brennivfnshofum breytt f æskulýðs-
hallir.
að skora á þingflokk Alþýðubandalagsins
að beita sér fyrir þvf, að sett verði strax á næsta
alþingi lög um vinnuvernd barna og ungmenna.
Fundurinn vftir það sinnuleysi ríkisstjórnarinnar
að láta ofangreint frumvarp ekki ná fram að
ganga á alþingi sl. vetur. Fundurinn bendir á,
að vaxandi vinnuþrældómur gerir æskunni æ
torveldara að njóta sumarleyfa, menntunar og
eðlilegra tómstunda.
að banna verði þegar f stað rekstur banda-
rfsku sjónvarps- og útvarpsstöðvarinnar á Kefla-
víkurflugvelli. Hin skaðvænlegu áhrif sjónvarps-
giáps koma æ dtýrar f ljós fþjóðlffinu á þétt-
býlasta hluta landsins og ekki hvað sfzt á með-
al æskunnar. Börnin apa eftir villimennskunni
f sjónvarpinu og hinir eldri iðka fjárdrátt og
fjársvikastarfsemi að fyrirmynd útvarða auð-
valdsins f vestri. Það er eindregin krafa Æsku-
lýðsfylkingarinnar að þegar f stað verði komið
f veg fyrir þetta ófremdarástand með þvf að
vfsa Hérnum úr landi.
4
að fræðslukerfið verði endurskoðað strax
frá grunni með tilliti til breyttra þjóðfélags-
og atvinnuhátta. Taka verður upp námslaun
f öllum framhaldsskólum til að öllum gefist
kostur á að stunda það nám, sem hugur stend-
ur til. Sjá verður sveitaæskunni fyrir sömu að-
stöðu til náms og börnum og unglingum fkaup-
stöðum með þvf að veita henni ókeypis vist f
barna- og unglingaskólum. Aðeins á þennan
ofangreinda máta er unnt að tryggja fullt
efnahagslegt jafnrétti æskulýðsins til mennt-
unar, ÆF skorar á þingflokk Alþýðubandalags-
ins að beita sér fyrir slikum breytingum á
fræðslulöggjöfinni hið allra fyrsta.
6
að ÆSf verði að efla starfsemi sfna á
innanlandsvettvangi og lýsir ÆF stuðningi
sfnum við hvers konar jákvæða hreyfingu f þá
átt. ÆF hvetur jafnframt til aukinna samskipta
ÆSf við erlend æskulýðssamtök hvar sem er f
heiminum og fagnar hinni breiðu samfylkingu
allrar félagsbundinnar æsku um herferðina gegn
hungri og f mannréttindamálum. Jafnframt
beinir sambandsstjórnin þeim tilmælum til
fulltrúa Alþýðubandalagsins f sveitastjórnum
og á alþingi, að barnaheimili verði reist f
stórum stíl svo stúlkur, ekki sfður en piltar,
geti lagt stund á hverskyns nám.
að hraða beri setningu löggjafar um æsku-
lýðsmál þar sem tryggður sé nægur fjárstuðn-
ingur ríkis og sveitarfélaga við félagssamtök
æskunnar. Skorar fundurinn á fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins á alþingi að sjá um að lagafrum-
varp um þessi mál fái sem skjótasta og vand-
aðasta meðferð alþingis.
að skora á þingflokk Alþýðubandalags-
ins að sjá svo um, að breytingartillögur iðn-
nemasambandsþings við frumvarp til laga um
iðnfræðslu nái fram að ganga, og beiti sér
jafnframt fyrir þvf að frumvarpið fái að öðru
loyti sem skjótasta og vandaðasta afgreiðslu.
\